Fréttablaðið - 25.02.2023, Blaðsíða 54
Peugeot 508 fær viða-
miklar breytingar á
útliti og nýtt i-Con-
nect upplýsingakerfi,
en búnaðarútfærslum
mun fækka.
Líklegast má telja að
ný Insignia sem koma
mun fram um miðjan
áratuginn, verði nokk-
urs konar blendings-
bíll með veghæð jepp-
lings en form kúpulaga
hlaðbaks.
Líklegt er talið að nýr
Mercedes sem keppa
mun við Tesla Model 3
fái kerfið fyrst.
njall@frettabladid.is
Volkswagen vill ef laust koma sjö
sæta útgáfu ID.Buzz sem fyrst á
markað og nýlegar njósnamyndir af
slíkum bíl við vetrarprófanir náðust
á dögunum. Mun sá bíll keppa við
sjö sæta bíla eins og Citroen e-Spa-
ceTourer, Peugeot e-Traveller og
Opel Life Electric.
Sætaskipan nýs sjö sæta ID.Buzz
mun skiptast þannig að tvö sæti
verða fremst, þrjú í miðjunni og tvö
aftast. Hægt verður að færa til sæti
og einnig fjarlægja til að auka flutn-
ingsrými. Búast má við svipuðum
búnaði og í fyrstu útgáfu ID.Buzz.
Þrátt fyrir lengra hjólhaf er lík-
legt að bíllinn noti sömu 77 kWst
raf hlöðu og fimm sæta útgáfan.
Það gefur 201 hestafl í afturhjólin
ásamt 310 Nm togi. Þar sem sjö sæta
útgáfan verður þyngri má búast við
aðeins minna drægi. n
Sjö sæta VW ID.Buzz á njósnamynd
Myndin sýnir bílinn með litlum
felubúningi sem venjulega þýðir að
mjög stutt er í frumsýningu hans.
MYND/AUTO EXPRESSnjall@frettabladid.is
Opel Insignia var lagður á hilluna
í fyrra vegna minnkandi sölu bíla
í þessum stærðarflokki stórra fjöl-
skyldubíla. Þar hafa jepplingar nán-
ast tekið yfir markaðinn í Evrópu.
Samkvæmt fréttamiðlinum Auto
Express er þó Opel Insignia ekki
dauð úr öllum æðum því að von er
á endurhannaðri útgáfu með eigin-
leika jepplings.
Opel mun þó ekki fara alla leið í
jepplingformið að sögn hönnuðar-
ins, Mark Adams. Hann viðurkennir
að Insigna muni halda áfram í öðru
formi og taka mið af vinsældum
jepplingsins, en þó með nýju sniði.
Líklegast má telja að ný Insignia,
sem koma mun fram um miðjan
áratuginn, verði nokkurs konar
blendingsbíll með veghæð jepplings
en form kúpulaga hlaðbaks. Það
mun para vel við þörfina á að gera
bíla straumlínulagaðri þegar bílar
Opel rafvæðast. Ef fer sem horfir
mun Insignia fylgja í fótspor Peu-
geot og Citroen sem einnig eru hjá
Stellantis, en 408 og C5X eru einmitt
með sama formi. Þeir munu byggja
á STLA Medium undirvagninum og
því líklegt að um sömu tækni og raf-
hlöður verði að ræða. Peugeot hefur
þegar gefið upp að 408 hafi allt að
700 km drægi. STLA Medium er með
annað hvort einum mótor sem er
201 hestafl, eða tveimur rafmótor-
um sem samtals gefa 443 hestöfl. n
Insignia ekki dauð úr öllum æðum
Þessi tölvumynd gefur nokkuð góða hugmynd um hvernig næsta kynslóð
Insignia gæti litið út. MYND/AVARVARII
Mercedes hefur forkynnt
nýjasta upplýsingakerfið sem
koma mun með MMA undir-
vögnum merkisins um miðjan
áratuginn. Kerfið býður
upp á nýtt afþreyingarkerfi,
sjálfkeyrimöguleika og upp-
færslum á fleiri en einn veg.
njall@frettabladid.is
Um fullkomið hugbúnaðarkerfi
er að ræða að sögn Mercedes sem
gefur mun meiri tengingarmögu-
leika gegnum 5G. Mun kerfið tengj-
ast öðrum kerfum eins og Google
Maps og f leira, og hafa aðgang að
tónlistarveitum og öðrum streym-
isveitum. Kerfið er mun fullkomn-
ara en hefðbundin farsímaspeglun
eins og við þekkjum úr Apple
CarPlay sem dæmi. Notast verður
við skjái sem ná yfir alla breidd
bílsins og fullkomnasta raddstýri-
búnað sem völ er á. Samstarfsaðili
Mercedes í sjálfkeyribúnaði verður
tæknifyrirtækið Nvidia. Notast
verður við sjálfkeyrslubúnað á stigi
2 sem þýðir að bílarnir munu geta
keyrt að hluta til sjálfir utan stór-
borga.
Uppfærslur munu koma gegn-
um netið en bíllinn mun einnig
senda upplýsingar til baka svo að
hægt verði að bæta kerfið að sögn
Mercedes. Framtíðar hleðslunet
Mercedes mun vera hannað með
þetta kerfi í huga. Fyrsti bíllinn
sem fá mun þetta kerfi verður
jafnvel frumsýndur seinna á þessu
ári. Um verður að ræða rafdrifinn
fólksbíl sem keppa mun við Tesla
Model 3. n
Mercedes kynnir MB.OS
upplýsingakerfi framtíðar
Þótt MB.OS kerfið hafi ekki verið frumsýnt ennþá mun það þó líkjast mjög því sem sést hefur í Vision EQXX-tilrauna-
bílnum að undanförnu. MYNDIR/MERCEDES
Á sama tíma og Mercedes kynnti nýja kerfið frumsýndi merkið líka nýtt
mælaborð E-línunnar.
njall@frettabladid.is
Fiat mun frumsýna rafdrifinn Fiat
panda seinna á þessu ári en um
verður að ræða lítinn jeppling eins og
áður. Verður bíllinn annar af tveimur
rafdrifnum bílum merkisins á þessu
ári en hinn verður í sama stærðar-
flokki og er ný kynslóð Punto. Til-
kynnt var um þetta af forstjóra
Stellantis, Carlos Tavares, á fundi
fjárfesta Stellantis á dögunum.
Nýr Fiat Panda verður smíðaður
við hlið Jeep Avenger EV í verksmiðju
Stellantis í Tychy í Póllandi. Munu
báðir bílarnir deila sama eCMP
undirvagni. Tveir aðrir rafdrifnir
jepplingar eru einnig í bígerð hjá Fiat
á næstunni. n
Fiat Panda frumsýnd seinna á árinu
Ef að líkum lætur verður ný rafdrifin Panda frumsýnd seint á þessu ári.
njall@frettabladid.is
Peugeot hefur fengið mikið af upp-
færslum að undanförnu og meira að
segja merki fyrirtækisins ekki und-
anskilið. Margir bílar hafa fengið
andlitslyftingu að undaförnu á sá
nýjasti til að hljóta þannig meðferð
er Peugeot 508.
Eins og sjá má er breytingin nokk-
ur að framan með nýrri hönnun á
grilli og Matrix aðalljósum. Aftur-
ljósin fá einnig nýja hönnun og ljón-
ið er horfið af afturendanum. Ekki
eru eins miklar breytingar á útliti
innandyra en kominn er i-Connect
gagnagrunnur til að stýra upplýs-
ingakerfinu. Færri búnaðarútfærsl-
ur eru nú en áður en á toppnum er
áfram PSE tengiltvinnútgáfan með
sín 355 hestöfl og 1,6 lítra bensínvél
með forþjöppu. n
Peugeot 508 fær andlitslyftingu
Mestar breytingar verða á bílnum að framanverðu með nýju merki, grilli og
Matrix aðalljósum en afturljósin fá líka nýtt lag. MYND/PEUGEOT
34 BÍLAR FRÉTTABLAÐIÐ 25. FEBRÚAR 2023
LAUGARDAGUR