Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1971, Síða 11

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1971, Síða 11
9 herra, landritara og kennurum öllum, og var þá Sigríður Sigurðar- dóttir, forstöðukona Hótels Skjaldbreiðar hæstráðandi í eldhúsi, og stjórnaði þar af alkunnum skörungsskap, og amaðist ekkert við litla snáðanum, sem þar var að sniglast, af því að hann varð að halda sig í hæfilegri fjarlægð á slíku kvöldi, en fátt fór fram hjá leitandi barnsaugunum, og vel man ég móður mína, klædda sínum fagra skautbúningi, þar sem hún sat við hinn fjarlægari borðenda við hlið Hannesar Hafstein. Er staðið var upp frá borð- um, var farið upp í stofurnar uppi, þar sem veitt var kaffi og líkjör. Faðir minn naut sín jafnan vel í samkvæmum. Tækifærisræður hans, ekki sízt veizluræður, voru rómaðar, og í einkasamkvæm- um, eftir að ég fermdist, þar sem við öll vorum gestir, man ég hve hann gat eins og lyfzt á flug í viðræðum, einkum við þá, sem voru latínumenn eins og hann, og flóði latínan þá af vörum hans, eins létt og ljóð af vörum íra, sem fer allt í einu að raula þjóð- lag, af því að honum finnst, að hann geti betur túlkað með því, það sem í huganum býr en í bundnu máli. Ég hef raunar líka kynnzt öðrum Islendingum gamla tímans, og þó yngri, sem þannig eins og tókust á loft í miðri frásögn, og var einn þeirra dr. Sig- fús Blöndal orðabókarhöfundur. Á unglingsárum mínum heim- sótti ég hann á heimili hans í Kaupmannahöfn. Það var á tíma fyrri heimsstyrjaldar og tal hans barst að stríðinu milli Dana og Þjóðverja 1864, er Danir urðu að láta Slésvík af hendi, og baráttan hafin til þess að vinna það upp með ræktun Jótlandsheiða, sem glatast hafði („hvad udad tabes, skal indad vindes“). „Þér kannist við baráttusönginn, sem sprottinn var upp úr þess- um jarðvegi," sagði dr. Sigfús, og svo fór hann að syngja: „Det haver saa nyligen regnet, det har stormet, men stormen gjorde stærk . . .“ Kvæðið þekkti ég og lagið, en hitt var mér ekki kunnugt um. Einhverntíma las ég einhvers staðar, að faðir minn hefði títt sést á göngu í bænum „og alltaf einn“. Hafi einhver skilið þau orð svo, að hann hafi verið maður ómannblendinn eða einmana, jafnvel vinafár, er það mikill misskiiningur. Minnistætt er mér, er hann var á gangi í miðbænum með einhverjum vina sinna eða kunningja, sem voru fjölmargir í hópi menntamanna og annarra borgara, og var þá tíðast gengið kringum Austurvöll hvern hring- inn af öðrum og rabbað saman.

x

Rökkur : nýr flokkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.