Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1971, Blaðsíða 13

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1971, Blaðsíða 13
Dr. RICHARD BECK, prófessor: Aldarártíð ritsnillingsins Charles Dickens, í heimi bókmenntanna sannast það eftirminnilega, að „margir eru kallaðir, en fáir útvaldir“. I hópi hinna síðarnefndu er rit- snillingurinn Charles Dick- ens, en aldarártíðar hans hefur á þessu ári#) verið minnzt víða um lönd, og sérstaklega í hinum ensku- mælandi heimi, með af- mælisútgáfu af bókum hans og ritum um hann, ennfremur með sýningum á skáldritum hans á bóka- söfnum, að ógleymdum frímerkjum, sem gefin hafa verið út honum til heiðurs, með myndum hinna víðkunnustu karla og kvenna úr fjölskrúðug- um flokki sögupersóna hans. Allt ber þetta því vitni, hve frægð hans stendur enn traustum fótum víðsvegar, og hve mikilla vinsælda hann nýtur enn sem fyrri. Rúmsins vegna verður hér aðeins stikl- að á nokkrum meginatriðum í ævi hans og athygli dregin að helztu *) Ritgerð þessi átti að birtast í Rökkri síðastliðið ár, en af þvi gat eigi orðið, Þar sem ekki varð af útgáfu ritsins það ár. CHARLES DICKENS

x

Rökkur : nýr flokkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.