Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1971, Page 18

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1971, Page 18
16 fengn eigi lamað starfsþrek hans né frjósama skáldgáfu. Hann hélt áfram ritun skáldsagna, ritstjórnarstörfum, ræðuhöldum og upplestrarsamkomum til dánardægurs. Meðal seinni skáldsagna hans voru A Tale of Two Cities (1859), söguleg skáldsaga, sem gerist í Lundúnum og París á tímum Frönsku stjórnarbyltingarinnar, og Great Expectations (1860— 61), en sögusvið hennar er á æskustöðvum höfundar í grennd við Rochester. En þótt ólíkar séu um efni, bera þær báðar vitni fast- mótaðri efnismeðferð af skáldsins hálfu. Á árumun 1858—59, 1861—63, 1866—67 og 1868—70 ferðaðist Dickens víðsvegar um Bretland og las upp úr verkum sínum við mikla aðsókn og ágætar undirtektir áheyrenda, en hann var af- burðasnjall upplesari, og nutu leikarahæfileikar hans sín þar ágætlega. Haustið 1867 fór hann öðru sinni til Ameríku, dvaldi þar fram í apríl 1868, las upp úr verkum sínum fyrir fjölmenni á mörgum stöðum, og voru viðtökurnar þar eigi síðri en heima fyrir. Stórgræddi hann á þeirri upplestrarferð sinni, en ofbauð jafnframt heilsu sinni, eins og síðar kom á daginn. Milli upplestrarferðanna á árunum 1863—66 skrifaði hann sein- ustu fullgerðu skáldsögu sína, Our Mutuál Friends (1864—65). Er hún þjóðfélagsleg ádeila, þar sem höfundur beinir skeytum sínum að meðalstétt Victoríualdarinnar og þröngsýnum hugsunar- hætti hennar. Er saga þessi talin eitt af fremstu verkum hans um efnisgerð og mannlýsingar. Dickens lét ekki þar við standa. Segja má, að honum hafi ekki fallið penninn úr hendi fyrri en á dauðastundinni. Árið 1870 var hann að semja skáldsöguna The Mystery of Edvnn Drood. Nokkr- inn klukkustundum eftir að hann hafði lokið við sjötta kafla henn- ar, hneig hann niður í borðstofunni á heimili sínu, og dó morgun- inn eftir, þann 9. júní. Að dæma af þeim hluta bókar, sem höf- undurinn hafði lokið við, var þar um að ræða f jölþætta skáldsögu, slungna ótta og kvíða. Og hvernig, sem framhaldið hefði orðið, er þar afburða vel úr hlaði farið. Dickens hafði óskað eftir því, að hann yrði grafinn í grennd við hjartfólgið heimili sitt, Gad’s Hill Place. En almenningsálitið krafðist þess, að hinum mikla óg ástsæla ritsnillingi væri feng- inn hinzti hvílustaður í „Skáldhorninu" í Westminster Abbey, og skipar hann þar sitt virðingarúm meðal annarra öndvegisskálda þjóðar sinnar. Gagnrýnendur eru, hins vegar, ekki á einu máli um það, hvar skipa beri Dickens til rúms í bókmenntasögunni, og er það gömul

x

Rökkur : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.