Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1971, Page 30

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1971, Page 30
28 lendingseinkennin svo skýrt í ljós, að allir gætu séð það og skilið, að það væri ekki minnkun og vansi, heldur sæmd og tign, að vera Islendingur. Þá orti Þorsteinn Erlingsson hið fagra kvæði sitt: Af álfunnar stórmennum einn verður hann og ættlands síns frægustu sonmn. — Það stendur svo skínandi mergð um þann mann af minningum okkar og vonum. En Hannes Hafstein orti hið glæsilega kvæði sitt: ,,Sjá, roðann á hnjúkunum háu“, sem þá var sungið og oft síðar. En það var margt fleira gert minningu Jóns Sigurðssonar til heiðurs þann dag. Háskólinn var vígður. Minningarathöfn var haldin í Mennta- skólanum og dómkirkjunni og Bókmenntafélagið minnist og for- setans. Iþróttamótið hófst með leikfimissýningu kvennaflokks úr Iðunni, undir stjórn Björns Jakobssonar. Var það í fyrsta sinn, sem slík- ur flokkur kom fram opinberlega hér á landi. Keppt var í glímu, stökki, hlaupum, lyftingum og sundi o. s. frv. Mótið hófst á laugardegi, en þriðjudaginn í vikunni á eftir keppti Fram við K. R. Ólafur Rósenkranz var dómari. Veður var gott og margt áhorfenda — og þeirra meðal félagar okkar úr Fram, sem hvöttu okkur óspart til dáða. Friðþjófur var vitanlega lífið og sálin í okkar flokki og skoraði bæði mörkin sem skoruð voru. Leikurinn var f jörugur — gleði okkar mikil, í leik og að unnum leik, og vonbrigði K. R.-manna auðsæ, en þeir tóku ósigrinum drengilega, og ég man, að einn úr þeirra flokki, Þorsteinn Jóns- son, lét orð falla í þá átt, að „strákarnir hefðu átt skilið að sigra“. Sá var líka dómur allra. Við höfðum æft kappsamlega og vorum vel að sigrinum komnir. I ísafold, sem þá var aðalblaðið hér, var þessi frásögn um leikinn: „Loks var sýndur fjörugur knattspyrnukappleikur milli Fót- boltafélags Reykjavíkur og Fótboltafélagsins Fram. I hinu síðar- nefnda eru einungis unglingar en eigi að síður unnu þeir svo, að mjög skar úr. Þeir komu knettinum tvisvar í mark og gerði það hvort tveggja sinnið Friðþjófur Thorsteinsson. Dómari var Ólafur Rósenkranz.“ Á lokadegi mótsins gengu allir þátttakendur þess í skrúðgöngu um völlinn og upp á pall nokkurn, þar sem ungfrú Sigríður Ás- björnsdóttir, síðar kona Sigurjóns Péturssonar, úthlutaði verð-

x

Rökkur : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.