Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1971, Síða 44

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1971, Síða 44
42 Naisi, fremur en að búa með konunginum Conchubor. Leikritið var ófullgert, þegar Synge dó, í marz 1909, en það telja margir gagnrýnendur hans fegursta og þroskaðasta verk. Deirdre of the Sorrows hefur til að bera mikinn skýrleika í samtölum, þannig að áhorfendur eru dregnir að tilfinningatogstreitunni í leikritinu, svo mjög, að við sjálft liggur að leikritspersónur gleymist, og spennan í leikritinu eykst smám saman, svo að það verður næst- um því líkamlegur léttir, þegar Deirdre að lokum stingur sverð- inu í brjóst sitt; þessi léttir er í fullkominni samúð við frelsun Deirdre frá bitrum örlögum lífsins. Auk þess að skrifa leikrit, skrifaði Synge ljóð og ritgerðir. Hann var í nánum tengslum við Abbeyleikhúsið og aðdragandinn að stofnun þess. Hann var þjóðernissinni og sagt hefur verið um hann, að í verkum sínum túlki hann lífsskoðun, sem heyri til gelískri hefð. S. S. pýddi. Þjóðlitir íslendinga. „Blátt og hvítt eru þjóðlitir vorir, þeir litir, sem þjóð vor hefur fest sérstaka ást við. Og það er ekki óeðlilegt. Að vísu sjást þeir litir víðar en á Islandi, en varla mun himininn heiðari eða fjöllin fagurblárri annars staðar en á íslandi og hvergi gnæfir hreinhvítari jökull við himin en hér. Af öllum litum, sem náttúran býr sig verða þessir oss hugstæðastir: „Hnjúkafjöllin himinblá, hamragarðar, hvítir tindar“. I fánanum eiga þjóðlitir vorir að vera, þeir og engir aðrir.“ (Dr. Guðmundur Finnbogason, ræða við Fánahvöt Stúdentafé- lagsins 29. 11. 1906).

x

Rökkur : nýr flokkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.