Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1980, Page 83

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1980, Page 83
81 sinn ákaft, að hún gætti þess, er færi gafst, að tala um börn sín við Gabriello í viðurvist nágranna sinna og þakka honum fyrir hjálpsemi hans og góðvild í sinn garð og barnanna. Kvöld eitt lá Gabriello andvaka og hugleiddi hvernig ráðlegast væri fyrir sig að hrinda fyrirætlunum sínum í framkvæmd. Komst hann loks að niðurstöðu um hvað gera skyldi. Reis hann snemma úr rekkju og lagði leið sína til Santa Catarina kirkju, en þar var munkur nokkur, ráðvandur og tryggur, sem almenningur í Pisa bar hið mesta traust til og dáðist að fyrir guðrækni og góðsemi. Þegar til kirkjunnar kom gerði hann boð fyrir munkinn og sagði honum, að hann hefði mjög einkennilegt og mikilvægt mál við hann að ræða og vildi hann njóta ráðlegginga hans. Munkurinn göfuglyndi fór með Gabriello í klefa sinn og þar kynnti Gabriello sig fyrir honum sem Lazzaro di Maestro Basilio da Milano. Þuldi Gabriello upp alla ættartölu sína og skýrði munk- inum frá því, hvernig ættmenni hans hefðu hrunið niður í pestinni, og hann loks staðið einn uppi með allan auð ættarinnar. Því næst skýrði hann honum frá því, sem gerðist, er „vesalings Gabriello drukknaði“. Tók hann alla sökina á sig. Kvaðst hann hafa stungið upp á því, að fiskimaður þessi færi með sér að Arno til fiskveiða. Að svo búnu sagði hann munkinum frá hversu ástatt var á heimili Gabriello við fráfall hans. Konan stæði ein uppi með börnin, svift umsjá trygglynds eiginmanns. „Hvílir þetta svo þunglega á sál minni,“ sagði hann, „að ég er reiðubúinn til þess að gera allt, sem í mínu valdi stendur til þess að létta byrði hennar og barnanna.“ Og svo bætti hann við: „En hvernig er hægt að bæta slíkri konu, trygglyndri og göfugri, þótt af lágum ættum sé, slíkan missi, nema með því að snúa hug hennar frá hinum sorglegu minningum. Og sannleikurinn er sá, að ég mundi fúslega ganga að eiga hana og verða faðir barna hennar — og þá kannske mundi guð fyrirgefa mér þá miklu synd, að hafa fengið mann hennar í fiskileiðangurinn.“ Síðustu orðin voru mælt af miklum innileik og látleysi. Hinn guðhræddi faðir gat vart varist brosi, er hann hafði spurnir af því, hve einfaldur Lazzaro var, og hann efaðist ekki um, að þetta var mælt af einlægum huga í hinum göfugasta tilgangi. Og munk- 6
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Rökkur : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.