Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1980, Page 124

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1980, Page 124
122 band hinn 4. júní 1949 og var heimili þeirra alla tíð í húsinu nr. 28 við Þingholtsstræti. Jóhanna hafði fullan hug á að ljúka læknis- náminu, og lagði mjög hart að sér til að ná því marki, en það varð henni um megn með vaxandi húsmóðurskyldum og vanheilsu, er ágerðist æ meira, unz hún eftir mikla og hættulega uppskurði og langa legu hneig í valinn frá elskuðum eiginmanni sínum og þremur kornungum börnum. I allri sinni hörðu baráttu og sárum þjáningum kvartaði hún aldrei. Hún bar sina þungu byrði án þess að æðrast, af sama blíða hugarfarinu og traustinu, sem hafði einkennt hana frá blautu barnsbeini. Vissulega er mikill innri styrkur þeirra, sem þess eru megnugir, að ylja ástvinum sínum og öðrum með ljúfum brosum og huggandi augnatilliti, þótt sjálfir megi vart mæla fyrir þján- ingar sakir. Er ég fyrir nokkru sat stundarkorn hjá Jóhönnu heitinni, er hún lá á sjúkrabeði og hægt og hægt þokaði í áttina að landa- mærunum miklu, minntist ég ósjálfrátt löngu liðinna daga, er ég sleit barnsskónum á hennar bernskuslóðum, lítill hnokki, á heimili móður hennar, er þá var gjafvaxta mær, afa hennar, Jóhannesar bónda, og ömmu, Kristínar, sem þá lá langa og þunga banalegu í litlu baðstofunni á Gufá. Er að lausnarstund hennar leið, tók Jóhannes mig við hönd og lét mig setjast hjá sér úti á túni, og spurði mig hlýlega, hvort ég héldi að ég yrði hræddur, ,,ef hún Kristín dæi?“ Ég man ekki hverju ég svaraði, eða hvort ég svaraði nokkru, en ég hafði ekki á tilfinningunni að neitt væri að óttaast, þrátt fyrir öll veikindin og sorgina. Ég hefi kannske aðeins haft hugboð um það þá, mjög óljóst, að þar sem góðir menn fara og traustir er aldrei neitt að óttast. Þar var skjól litlum drenghnokka, sem var að fá sín fyrstu kynni af sorgum mannanna — sem öðrum. Gott er skjól að eiga hjá þeim, sem eiga góðleik hjartans og traust- ið, sem aldrei bregzt, og gott er öllum að vera slíks minnungir. Við beð Jóhönnu heitinnar þessa stund skildist mér enn betur, er hugurinn fló til hins liðna, hve dýran arf hún hafði fengið í vöggugjöf. Minningarathöfn um Jóhönnu fór fram árdegis í dag í Dóm- kirkjunni og flutti Sigurbjörn Einarsson líkræðuna, en að þeirri athöfn lokinni fluttu ástvinir hinnar látnu lík hennar heim, heim
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Rökkur : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.