Veiðimaðurinn - 01.12.1959, Qupperneq 35

Veiðimaðurinn - 01.12.1959, Qupperneq 35
Ég breiddi vel ytir laxinn til þess að verja hann fyrir flugunni og hitanum, tók stöngina og ætlaði að fara að ganga niður að ánni, til þess að leggja tálbeit- una fyrir stóra laxinn úti á Brotinu. En þá greip mig skyndilega liugsun, sem raunar hefur oft hvarflað að mér fyrr og síðar, einkum þegar veðrið er fagurt og lífsgleðin mikil í náttúrunni um- hverfis mig: Er rétt að granda lífi sér til ánægju? Veiðieðli mitt hafði ótal svör á reiðum liöndum: Er ekki sanra livort laxinn er veiddur á stöng eða með öðrum liætti? Einhver nýtur góðs af þessari veiði þinni. Annaðhvort selur þú fiskinn eða gefur iiann. Hann verður einhverjum að gagni. Náttúran sjálf sóar lífi og virðist kæra sig kollótta um einstaklingana o. s. frv. Ekkert af þessu er fullnægjandi svar við því, sem ég spurði um, og ég finn með sjálfum mér að ég vil ekki fá rétta svarið. Og nii stökk liann enn sá stóri fram á brotinu. Þá brauzt hinn frurn- stæði eðlisarfur eins og eldur út um æð- ar mínar og taugar. Ég hljóp af stað með stöngina, óð út í ána og fór að kasta, með þá ósk eina í huga, að sá stóri tæki og ég næði honum! Og liann tók — eða einhver frændi hans af svipaðri stærð. Hann barðist eins og ljón, þeyttist í loftköstum um brotið, stríddi og streyttist eins og ólmur, ný- genginn liængur kann bezt. Og hann vann leikinn. Hann hristi úr sér flug- una og livarf mér í djúpið og frelsið. Hann átti það skilið, en ég sá eftir lionum samt, enda fékk ég ekki meiri veiði í þetta sinn. Elestir eða allir félagar mínir höfðu veitt þennan morgun, og það var glatt á hjalla við maíborðið. Svo fengum við okkur miðdegisblundinn. Síðari hluta dagsins áttum við veiði- félagi minn að vera á neðsta svæðinu. Við liugðum gott til að koma í Stokk- hyl, því að þar átti að vera fiskur núna, enda veiddist þar unt morguninn. Uni leið og við gengum niður skógargötuna litum við eftir þrastahreiðrum og fund- um tvö í greinum rétt við götuna. Félagi minn sagði að þetta væri góðs viti, við mundum fá a. m. k. sinn laxinn livor, því að við fundum sitt hreiðrið hvor. Við fórum okkur hægt, enda var heitt í veðri, og margt fallegt að sko'ða. Þegar við komuni niður á móts við Myrkhyl, fundum v:ð lóuhreiður, og það taldi ég boða gott, því að mér þykir vænt um lóuna. Það gleymist að nokkuð illt sé til í Iieiminum, þegar maður hlust- ar á lóukvak í friðsælu umhverfi á fögr- um sumardegi. Myrkhylur var fallegur núna, en við ætluðum að geyma okkur liann þangað til á heimleiðinni. Þar hef ég orðið fyr- ir undarlegustum áhrifum á veiðistað, en það er önnur saga. Þegar við komum niður fyrir Myrk- hyl sá íélagi minn lax í skottinu og taldi rétt að annar okkar kastaði á hann. Það varð úr að hann gerði það, enda hann sem sá hann, og ég hélt því einn áfram niður í Stokkhyl. Stokkhylur er sannkallaður ævintýra- s;taður í svona vatni, einhver allra falleg- asti flugustáðurinn í ánni, og þótt víð- ar væri leitað. í veðri eins og nú var, er umhverfið nrjög notalegt og Iiamra- brekkan austan við ána býr yfir ein- Veiðimaðurinn 25
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.