Veiðimaðurinn - 01.12.1959, Qupperneq 43
bréfsins skilið, að þessi kafli þess komi
fyrir almennings sjónir, en liann er á
þessa leið:
„Áður en ég lýk þessu bréfi, vil
ég lýsa yfir, að oss er mikil ánægja
að taka á móti íslenzkum keppend-
um. Ágreiningur sá, sem ni'x er milli
landa vori'a, hefur engin áhrif á oss
hér, en sem veiðimenn höfum vér
margir ntikla samúð með hverri þjóð,
sem vill vernda fiskstofna sína. Vér
erum mjög óánægðir með vettlinga-
t()k vorra eigin stjórnarvalda varð-
andi fiskstofna bæði í sjó og vötn-
um.
Oss er ókunnugt um grunvallar-
atriði þessarar milliríkjadeilu, og get-
um því hvoruga ríkisstjórnina áfellst.
En, eins og þér skiljið, er oss áhuga-
mál, að vernda stofninn, í stað þess
að leyfa svo mikla veiði, að honum
stafi hætta af. Vafalaust getið þér
frætt oss meira um þetta ófremdar-
ástand, þegar þér komið hingað í
september. Og þér megið a. m. k.
vera þess fullviss, að vér munum veita
yður innilegar viðtökur, sem veiði-
vinir!
Yðar einlægur,
Erik Horsefall Turner,
borgarEitari
í Scarborough.“
Mér er ljúft að bæta því við ofan-
skráðan kafla, að ekki var andinn í
þeim Englendingum, sem ég átti tal
við utn þetta mál, lakari, nema síður
væri, og voru þeir engu minna undr-
andi á framkomu brezku stjórnarinn-
ar en við.
Til Scarborough komum við daginn
fyrir mótið, en það hófst þann 23. sept.
og stóð til 27. sama mánaðar. Allir þátt-
takendur, bjuggu í sama hóteli, og
hafði það ýmsa kosti í för með sér. Kvöld-
ið fyrir mótið voru allir boðnir í „Cock-
tail-party“ í ráðhúsi borgarinnar, og tóku
borgarstjórinn og frú hans á móti gest-
um. Viðeigandi ræður voru fluttar og
Keþþendnr athuga tœkin.
góðar veitingar fram bornar. Hinn
þekkti Martini klúbbur hélt boð tveim
dögum seinna fyrir stjórnir liinna ýmsu
hópa.
Auk mín fóru héðan Sverrir Elíasson
og Halldór Erlendsson, og höfðum við
ákveðið að keppa í 4—5 greinum af
þeim 10, sem keppt er í. í 46. tbl. Veiði-
mannsins er lýsing á öllum keppnis-
greinum I. C. F. og því óþarfi að endur-
taka hana hér. En af þessum 10 grein-
um eru 6 í lengdarköstum. flugu og
beitu (lóð), en hin 4 eru ýmsar tegundir
af nákvæmnisköstum, líka með flugu eða
lóði.
Miðv.ikud. 23. sept. hófst svo mótið
kl. 8 f. h. á grein nr. 7, (tvíhendiskast)
17,72 grömm. Lengst kastaði K. Rosen-
gren, Svíþjóð 90,15 metra — nýtt heims-
Vf.idimaðurinn
33