Veiðimaðurinn - 01.12.1959, Side 61
Laxveiðin í Olfusá-Hvítá 1958.
Eftir Þór Guðjónsson.
HINN 17. apríl s.l. sendi greinarhöf-
nndur Veiðifélagi Árnesinga tvö bréf
varðandi veiðimál á svæði félagsins. í
öðru var fjallað um veiðina 1958, og í
liinu var óskað tillagna félagsins um
stangafjölda, sem nota skal á félagssvæð-
inu. Verður efni bréfanna með smávægi-
legum viðbótum birt hér, þar sem það
varðar fjölda manna í Árnessýslu. Orða-
lag og niðurröðun á efni þeirra er að
nokkru breytt.
LAXVEIÐIN 1958.
Skýrsla um veiði á félagssvæði Veiði-
félags Árnesinga fer hér á eftir. Hún er
byggð á veiðiskýrslum veiðieigenda og
veiðimanna, svo og skýrslu veiðieftirlits-
manns. Hafa flestir veiðibændur skilað
skýrslum um laxveiði sína, og margir um
silungsveiði og margir stangaveiðimenn
hafa einnig skilað skýrslum. Veiði í net
var með ákveðnari brag heldur en stanga-
veiðin. Flest net voru notuð um lengri
tíma, en fáein aðeins reynd.
Ástundun stangaveiðimanna á einstiik-
um hlutum vatnasvæðisins var mjög mis-
jöfn. Á nokkrum stöðum var veitt með
nokkurn veginn sama stangafjölda frá
degi til dags, en annars staðar var hann
mjög misjafn. Þess munu dæmi, að hann
hafði skipt tugum suma daga.
Mest var ástundun um helgar, en í
miðri viku var hún jafnan minni, F.r
erfitt, að gera sér nákvæmlega grein fyrir,
hve samanlagður stangafjöldi á vatna-
svæðinu var mikill.
Eins og fram kernur í umræddri
skýrslu, þá hefur laxveiðin á vatnasvæði
Ölfusár-Hvítár verið ágæt síðastliðið sum-
ar og miklu betri hlutfallslega heldur en
í ám í nærliggjandi héruðum. Skal ni'i
þetta fyrirbrigði skýrt nokkuð.
V7ið athugun á laxgöngum hér á landi
og erlendis hefur komið í ljós, að veiði í
ám á stórum svæðum eða heilum lands-
hlutum fylgist að frá ári til árs. Þannig
varð t. d. veiðin í mörgum ám sumarið
1957 með albezta móti, sem hún hefur
orðið í áratugi. Það hefur sýnt sig, að
veiðin á vatnasvæði Ölfusár-Hvítár svar-
ar til veiði árið áður í mörgum öðrurn
ám. I ánum, þar sem veiðin var ágæt,
sumarið 1957 var veiðin nálega þriðjungi
minni sumarið 1958. Má því vænta ná-
lega þriðjungi minni veiði í Ölfusá-Hvítá
í sumar, heldur en var 1958, ef aðstæður
verða ekki að einhverju leyti óvenjuleg-
ar, og ef ekki hefur verið um o,fveiði að
ræða 1958.
Meðalveiði á hvern km. á vatnasvæði
Hvítár í Borgarfirði var 26 laxar á árun-
um 1947—56. Á vatnasvæði Ölfusár-Hvít-
ár var tilsvarandi tala 31,8 árið 1958.
Sumarið 1957 var afbragðs laxveiði í
Borgarfirði, þá komst umrædd tala laxa
upp í 36 á km. Ef laxveiðin á vatnasvæði
Veidimaðurinn
n