Veiðimaðurinn - 01.12.1959, Page 69
Sigurður Z.
Guðmundsson
KAUPMAÐUR.
Minningarorð.
HINN 15. maí sl. varð Sigurður Z.
Guðmundsson, kaupmaður, bráðkvadd-
ur. Hann var fæddur 27. okt. 1894 og
því tæplega 65 ára er liann lé/.t. Vinum
lians og kunningjum kom fráfall ltans
mjög á óvart, þótt þeir vissu að liann
hefði um nokkurt skeið kennt lasleika
fyrir hjarta. Þeir gátu vart trúað því, að
um svo alvarlega veilu hefði verið að
ræða, þar sem Sigurður var alltaf svo
liraustlegur og frár á fæti; liann sem hafði
þá líkamsbyggingu, sem líklegust er talin
til langlífis. Hann iðkaði líkamsrækt, var
grannur og spengilegur og léttur á fæti,
og lagði óspart stund á gönguferðir um
nágrenni bæjarins.
Sigurður var einn liinna gömlu Elliða-
árveiðimanna, sem stofnuðu Stangaveiði-
félag Reykjavíkur, og var hann því einn
úr fyrstu röðum félagsins, og orðinn fé-
lagsmaður nr. 1, þegar hann lézt. Hann
var alltaf mjög áhugasamur um laxveiði
á stöng, og hafði mestu ánægju af veiði-
ferðum og að tala um laxveiði í hópi
góðra kunningja. Sigurður fann í skauti
móður náttúru þá hvíld, sem öllum er
nauðsynleg, frá amstri og áhyggjum
hversdagsins, og aldrei fann liann betur
sjálfan sig, en í fögru umhverfi við fall-
ega laxveiðiá.
Frarnan af veiddi Sigurður aðallega
í Elliðaánum, en síðar stundaði hann
veiðar í Grímsá og Notðurá í Borgar-
fjarðar- og Mýrasýslum, og liann var fyrsti
félagsmaðurinn, sem hlaut verðlaunabik-
ar félagsins, fyrir stærstan lax veiddan á
flugu, í Norðurá 1947.
Myndina, sem hér fylgir með, tók ég
af Sigurði, er hann kom til veiða í Norð-
urá hinn 3. júní 1958; síðasta skiptið,
sem hann veiddi þar, og má sjá hinn eld-
lega áhuga speglast í andliti hans, þar
sem hann er aðsetja saman stöngina sína.
Þann 14. maí sl., daginn áður en andlát
hans bar svo skjótt að, kom hann í skrif-
59
Vf.iuimaihirinn