Fréttablaðið - 04.03.2023, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 04.03.2023, Blaðsíða 20
Barist um geirfugl í London Þann 3. júní árið 1844 var síðasti geirfuglinn drepinn í Eldey. Á þessum degi 127 árum síðar fóru Íslendingar til London þar sem þeir keyptu uppstoppaðan geir- fugl. Safnað hafði verið fyrir fuglinum um allt land á nokkrum dögum. birnadrofn@frettabladid.is Geir fuglinn var afar algengur á Norður-Atl- antshafi fyrr á öldum. Hann var meðal annars algengur á ströndum Íslands, Grænlands og Færeyja, við Noreg, Kanada og á nyrstu eyjum Bretlands. Talið er að geirfuglar hafi verið margar milljónir áður er farið var að veiða þá en ekki eru til skýrar tölur um það hversu stór stofninn var hér á Íslandi. Um aldamótin 1800 var ofveiði farin að hafa áhrif á fjölda geirfugla sem hafði þá fækkað verulega. Geirfuglinn var óf leygur og því var auðvelt að veiða hann. Mest var hann veiddur af sjómönnum sem á löngum ferðum sínum lögðu sér fuglinn til munns en hann var bæði kjötmikill og stór, rúmir 70 sentí- metrar á hæð. Það voru þó ekki einungis sjó- menn sem veiddu geirfuglinn heldur var farið út í eyjarnar þar sem hann lifði og hann veiddur til matar og einnig voru fjaðrir hans notaðar í fatnað. Til eru ýmsar frásagnir af því að þegar menn komu á eyjarnar í fuglatekju hafi þeir orðið fyrir árásum geirfugla. Fuglarnir hafi ráðist á mennina í þéttum fylkingum með miklum krafti og troðið þá niður. Eina leiðin til að sjá við árásum að þessu tagi hafi verið að drepa fuglana sem fremstir voru í fylkingunni. Þá hafi hinir snúið við og reynt að f lýja, aldrei hafi verið auðveldara að veiða þá en á f lóttanum. Þegar geirfuglum fór að fækka jókst eftirspurn safnara sem ásamt náttúru- gripasöfnum borg- uðu háar fjárhæðir fyrir fuglinn. Segja má að það hafi ver ið enda lok g e i r f u g l s i n s . C a r l F r a n z Siemsen var k au pmaðu r í Reykjavík, en hann var einnig umboðsmaður fyrir erlend söfn og safnara. Árið 1844 fékk hann ósk um geirfugl að utan. Hann bauð bændum í Höfnum 300 krónur fyrir fugl, dauðan eða lif- andi. Þeir fóru þá fjórir saman út í Eldey þar sem þeir fundu tvo geir- fugla sitjandi á klettasnös, fuglana sneru þeir úr hálsliðnum og þáðu 300 krónurnar. Talið er að þarna hafi verið um að ræða tvo síðustu geirfuglana. Einhverjar sögur eru af því að sést hafi til geirfugla eftir það, f lestar frá Grænlandi. Nýjustu sögurnar eru frá sjötta áratug nítjándu aldar en óvíst er um áreiðanleika þeirra. Geirfuglinn heim Á þessum degi, þann 4. mars, árið 1971, 127 árum eftir að síðasti geir- fuglinn var veiddur í Eldey var upp- stoppaður geirfugl boðinn upp hjá uppboðshúsinu Sotheby’s í Lond- on. Íslendingar fengu fregnir af því að bjóða ætti fuglinn upp og ætluðu sér strax að ná honum. Valdimar Jóhannesson, blaða- maður og lögfræðingur, setti af stað söfnun fyrir fuglinum nokkrum dögum áður en uppboðið fór fram. Um tvær milljónir króna söfnuð- ust, á þeim tíma var slík upphæð andvirði einbýlishúss. Í viðtali við DV árið 2018 sagðist Valdimar hafa séð tækifæri til að koma geir- fuglinum heim þegar hann heyrði af uppboðinu. Hér á Íslandi hafi á þeim tíma verið til beinagrind geir- fugls og egg, en enginn hamur. Vitað var að f leir- um hugnaðist að eignast uppstoppaða geirfuglinn, bæði söfnum og einka- aðilum. Helsti keppinautur Íslendinga var þó hin amer- íska Du Pont-fjölskylda sem var þá að koma sér upp einka- reknu náttúrugripasafni. Valdimar fór til London ásamt doktor Finni Guð- mundssyni frá Náttúrugripa- safni Íslands. Þeir fóru með það að markmiði að koma fuglinum heim, ekki kom annað til greina. Mikil spenna var í loftinu þegar geirfuglinn var boðinn upp, margir blaðamenn voru á svæðinu sem og margir Íslendingar sem búsettir voru í London. Uppboðið tók ekki nema fimm til sex mínútur en Íslendingarnir fengu lögmann frá Sotheby’s sér til halds og trausts. Fyrsta boð í uppstoppaða geir- fuglinn var 500 pund. Hann seldist þó mun dýrara og endaði í höndum Íslendinganna. Du Pont-fjölskyldan hafði þá reynt sem hún gat að yfir- bjóða Íslendingana. Þegar Íslend- ingar höfðu boðið sex þúsund pund sá ameríska fjölskyldan sér leik á borði og bauð tveimur þúsundum betur. Ekki bjuggust þau við að Íslendingarnir byðu þá þúsund pundum meira og hrepptu geir- Á myndinni sem tekin er á Þjóðminjasafninu sjást Þórarinn Eldjárn og Kristján Eldjárn, Valdimar og eiginkona hans Fanný Jónmundsdóttir, Gylfi Þ. Gíslason og uppstoppaði geirfuglinn. Mynd/aðsend Síðasti geirfuglinn var veiddur í Eldey árið 1844. Sett var af stað söfnun fyrir uppstoppaða geirfuglinum. Tvær milljónir söfuðust sem þá var andvirði ein- býlishúss. fuglinn á 9.000 pund. Dagana á eftir var í fréttum talað um heimsmet í verði fyrir náttúrugrip. Í viðtalinu við DV sagði Valdimar frá því að aðeins örfáir hefðu vitað að hann hafði heimild frá ríkis- stjórninni til að bjóða þrefalt meira. „Ef þetta hefði farið hærra hefði ég sjálfur gripið inn í. En þetta mátti ekki spyrjast út,“ sagði hann. Það sem kom Valdimar á óvart eftir að fuglinn var keyptur var að þá tók uppboðshúsið enga frekari ábyrgð á honum. „Þetta var svolítið ógnvænlegt og við höfðum ekki gert ráð fyrir þessu. Ég varð að taka fugl- inn í fangið og fara með hann í leigu- bíl að íslenska sendiráðinu,“ sagði Valdimar. Þar var fuglinn tryggður og honum pakkað vel og komið til Íslands. Um 80 uppstoppaðir geir- fuglar hafa varðveist til dagsins í dag. Þann sem keyptur var á upp- boðinu í London má finna hjá Nátt- úrufræðistofnun Íslands. n 20 helgin FRÉTTABLAÐIÐ 4. mARs 2023 lAUgARDAgUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.