Fréttablaðið - 04.03.2023, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 04.03.2023, Blaðsíða 42
Það er alltaf freist- andi að tefla saman ljúffengum ávöxtum, ostum, hráskinku, hnetum og fleira góð- gæti. Sjöfn Þórðardóttir sjofn @frettabladid.is Fram undan í kvöld er Söngvakeppni og þá er lag að bjóða í gómsæta partírétti til að njóta með fjölskyldu og vinum. Á sjónvarpskvöldum er gaman að vera með bragðmikla og fjöl- breytta stemningsrétti sem auðvelt er að borða. Hér eru tillögur að réttum sem eiga eftir að kitla bragðlaukana og steinliggja í partíi eða á sjónvarpskvöldi. Freistandi sælkerabakkar Upplagt er að setja saman skemmtilegan osta- og sælkera- bakka. Þá er fjölbreytnin ráðandi og alltaf freistandi að tefla saman ljúffengum ávöxtum, ostum, hráskinku, pistasíuhnetum og fleira góðgæti. Á bakkanum hér á eftir er geitaostur, hráskinka, kryddpylsa, hrátt nautakjöt, brómber, hindber, blæjuber, vínber, kryddkurl, pistasíuhnetur, hrökkkex, perur, ferskja, reyktur lax og foie gras. Með reykta laxinum er borinn fram sýrður rjómi sem er toppaður með steinselju og foie gras sem er toppað með grófum, svörtum saltflögum. Vert er að leyfa hug- myndafluginu að ráða hvað fer á bakkann og svo getur hver og einn valið sína uppáhalds osta, ávexti, sæta bita eða hvað eina sem hann langar til að bjóða upp á. Svo er lag að vera með bakaðan brie-ost með þessum sælkerabakka. Ljúffengt andasalat 1 andalæri Ferskt blandað salat 2-3 mandarínur Hindber Ferskar sprettur 1 pera Létt dressing: Sýður rjómi Safi úr appelsínu Ferskt andasalat er kærkomið á þessum árstíma og tekur örskamma stund að útbúa. Rífið niður andakjöt og setið á bakka. Setjið blandað salat með, ásamt mandarínulaufum, hindberjum og ferskum sprettum. Salatið er svo toppað með perubitum og léttri dressingu með, sýrðum rjóma með appelsínukeim. Bakaður brie-ostur með mangó chutney 1 stk. brie-ostur að eigin vali ½ krukka mangó chutney Valhnetur eftir smekk Byrjið á að hita ofninn í 200°C. Setjið ostinn í eldfast mót eða litla pönnu sem má fara inn í bakar- ofn. Setjið mangó chutney yfir ostinn, hafið magnið eftir smekk og toppið ostinn með nokkrum valhnetum. Bakið í um það bil 15 mínútur eða þar til osturinn hefur bólgnað aðeins út án þess að opnast. Berið fram með súrdeigs- brauði eða kexi að eigin vali. Chili Con Carne með nýrri útfærslu 500 g nautahakk 1 laukur, smátt skorinn 2–3 hvítlaukar (þessir í körfunni, geiralausir), smátt skornir 2 stk. ferskt rautt chili smátt skorið 1 tsk. chiliduft 1 tsk. paprikuduft 1 tsk. cumin 300 ml soðið vatn 1 msk. nautakraftur 1 dós niðurskornir tómatar 2 msk. tómatpúrra ½ tsk. oreganó 1 dós rauðar nýrnabaunir Salt og pipar eftir smekk Meðlæti Tortillabátar eða mini tortillu Sýrður rjómi Nachos-flögur Rifinn mozzarellaostur Byrjið á að steikja lauk við lágan hita á djúpri pönnu eða í potti þar til hann er orðinn mjúkur. Bætið þá hvítlauk, fersku chili, chilidufti, paprikudufti og cumin saman við. Steikið nautahakkið á pönnu við háan hita og brúnið það. Partíréttir sem steinliggja með Söngvakeppninni Hér er ljúf- fengt, litríkt og brakandi ferskt andasalat með sumar- ívafi, toppað með frískandi appelsínudress- ingu. Leyfum hugmyndafluginu að ráða hvaða krásir fara á veislubakkann. Bakaður brie-ostur með mangó chutney er sælkeraréttur sem fáir standast. Chili con Carne er veislu- réttur sem hittir alltaf í mark og þessi nýstár- lega útgáfa er einfaldlega ómótstæðileg. MYNDIR/AÐSENDAR Freistandi bakki með ostum, kexi, berjum, ávöxtum, hnet- um, hráskinku, reyktum lax og foie gras. Setjið hakkið síðan saman við laukinn og hitt hráefnið. Bætið við nautateningnum ásamt 300 ml af heitu vatni (getið forsoðið vatnið í tekatli), hellið því út á pönnuna/ pottinn ásamt tómötum, tómat- púrru og oreganó. Látið malla í um það bil 20 mínútur. Bætið þá nýrnabaunum saman við og látið malla í 10 mínútur til viðbótar. Saltið og piprið eftir smekk og bætið við chilikryddi ef þurfa þykir. Mikilvægt er að leyfa réttinum að standa í 10 mínútur áður en hann er borinn fram. Þegar rétturinn er tilbúinn er lag að setja eina til tvær meðalstórar ausur af blöndunni í tortillabáta eða á mini tortilla- pönnukökur, toppa síðan með sýrðum rjóma, rifnum osti og nachos-f lögum. Raðið á bretti eða bakka og berið fram. Gott er að hafa sýrðan rjóma, rifinn ost og nach os- f lögur til hliðar svo hver og einn geti bætt við meðlæti eftir smekk. n 8 kynningarblað A L LT 4. mars 2023 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.