Fréttablaðið - 04.03.2023, Blaðsíða 35
ÚTBOÐ
Dalvíkurbyggð óskar eftir tilboðum í
endurbætur utanhúss við Leikskólann Krílakot
við Karlsrauðatorg 23, Dalvík.
Endurnýja skal utanhússklæðningu, glugga og
hurðir í hluta hússins.
Verktími er frá maí til október 2023.
Ósk um afhendingu rafrænna útboðsgagna skal
senda á netfangið avh@avh.is og verða þau af-
hent frá og með fimmtudeginum 9. mars 2023.
Tilboð skulu berast rafrænt á netfangið
avh@avh.is fyrir kl. 11:00 föstudaginn
24. mars og verða tilboðin opnuð kl. 14:00 sama
dag í Ráðhúsinu á Dalvík í fundarstofu á 3.hæð í
viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.
Bjóðendum mun gefast kostur á að fylgjast með
opnun tilboða á fjarfundi óski þeir þess.
Borgartúni 26, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
UPPSTEYPA BÍLAKJALLARA OG
TENGIGANGA VIÐ HRINGBRAUT
ÚTBOÐ 21729
Nýr Landspítali ohf. óskar eftir tilboðum í verkið:
Uppsteypa bílakjallara undir Sóleyjartorgi og tengigangar
Afmörkun verkefnis
Um er að ræða opið útboð með skilgreindum takmörkunum
um þátttöku. Um útboðið gildir ÍST 30:2012 Almennir útboðs-
og samningsskilmálar um verkframkvæmdir.
Verkið er liður í uppbyggingu nýs Landspítala við Hringbraut.
Það innifelur uppsteypu bílakjallara, á tveimur hæðum, ásamt
tengigöngum.
Heildarflatarmál bygginganna er áætlað 7.500 m2.
Um er að ræða almennt útboð að ræða eins og því er lýst í
2. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016.
Fyrirspurnir varðandi verkefni 21729 skulu sendar rafrænt í
gegnum TendSign og verða svör birt þar.
Fyrirspurnartími rennur út 31. mars 2023.
Tilboðum skal skila í gegnum útboðskerfið Tendsign.is fyrir
kl. 10:00 föstudaginn 14. apríl 2023.
Allar nánari upplýsingar um ferlið og útboðsskilmála er að
finna gjaldfrjálst í útboðskerfinu TendSign, á vefslóðinni
https://tendsign.is/.
Leiðbeiningar um skráningu og skil á tilboðum er hægt að
nálgast á heimasíðu Ríkiskaupa.
Sjá nánar á www.utbodsvefur.is
ÚTBOÐ
kopavogur.is
Leikskóli við Skólatröð. Deiliskipulag.
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti þann 10. janúar 2023 í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir nýjan leikskóla við Skólatröð (Áður Vallartröð 12A). Deiliskipulagssvæðið
sem er um 0,2 ha að stærð afmarkast af raðhúsalóðum við Vallartröð og Álfhólsveg til vesturs og norðurs.
Raðhúsalóðum við Skólatröð til austurs og bæjarlandi/gönguleið til suðurs. Á lóðinni var áður starfræktur leikskóli
í byggingum sem þegar hafa verði fjarlægðar.
Áætlað er að fyrirhuguð nýbygging verði um 650 m2 að flatarmáli og að byggingin verði á einni hæð. Gert er ráð
fyrir að í leikskólanum verði þrjár deildir fyrir um 75 börn.
Miðað er við að aðkoma að leikskólanum verði eftir botnlanga frá Skólatröð og að bílastæði verði samnýtt með
Kópavogsskóla eins og hefur verið undanfarin ár.
Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:1000 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags. 13. desember
2022. Tillögunni fylgir jafnframt umhverfismat dags. í desember 2022 og uppfært 26. janúar 2023 ásamt
minnisblaði um umferð og aðkomu dags. 18. október 2022 og uppfært 1. febrúar 2023.
Ofangreind tillaga er aðgengileg á vef Kópavogsbæjar, www.kopavogur.is og í þjónustuveri Kópavogsbæjar
að Digranesvegi 1 frá kl. 8:30 til 16:00 mánudaga til fimmtudaga og á föstudögum frá kl. 8:30 til 13:00.
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Athugasemdir og ábendingar
skulu hafa borist skriflega til skipulagsdeildar Umhverfissviðs, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða á netfangið
skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 16:00 miðvikudaginn 19. apríl 2023.
Skipulagsfulltrúinn í Kópavogi.
Auglýsing um tillögu að
deiliskipulagi í Kópavogi
Borgartúni 26, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
AUGLÝSA EFTIRFARANDI EIGN TIL SÖLU:
AÐALGATA 4, 621 DALVÍK
Eignin verður sýnd þriðjud 14. mars á milli kl. 16:30 - 17:30
Fasteignin er 6-7 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum
með sambyggðum skúr, alls 188,3 m2.
Eign sem þarfnast viðhalds, bæði að innan sem utan. Eignin
er á góðum stað á Hauganesi með fallegu útsýni.
Verð: 20.000.000,-
Frekari upplýsingar um eignirnar má finna á heimasíðu
Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is
Innkaupaskrifstofa
Sími 411 1111
ÚTBOÐ
Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg:
• Hálsaskógur/ Borg, endurgerð lóðar 2023 - 2. áfangi, útboð nr. 15762
• Suðurborg, endurgerð lóðar 2023 - 1. áfangi, útboð nr. 15763
• Tjörn/Tjarnarborg, endurgerð lóðar 2023 - 1. áfangi, útboð nr. 15764
• Borgaskóli, endurgerð lóðar 2023 - 1.áfangi, útboð nr. 15765
• Málun 2023 í hverfum 1,2 og 3 í fasteignum
Reykjavíkurborgar, útboð nr. 15771
• Málun 2023 í hverfum 4 og 5 í fasteignum
Reykjavíkurborgar, útboð nr. 15773
• Múrverk 2023 í hverfum 1, 2, 3 og 4, 5 í fast-
eignum Reykjavíkurborgar, útboð nr. 15774
Nánari upplýsingar er að finna á
www.reykjavik.is/utbod
Þarftu að ráða
starfsmann?
RÁÐUM EHF • Sími 519 6770
www.radum.is • radum@radum.is
Ráðum sérhæfir
sig í ráðningum og
mannauðs ráðgjöf.
Við komum til móts
við þarfir fyrirtækja
og sérsníðum
lausnir sem henta
hverjum viðskiptavini.
ATVINNUBLAÐIÐ 9LAUGARDAGUR 4. mars 2023