Fréttablaðið - 04.03.2023, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 04.03.2023, Blaðsíða 14
Þeir fóru að hugsa um hvaða vitleysing þeir hefðu verið að kaupa, þá fer maður ósjálfrátt að brjóta sig niður og það var smá vesen. Ég hef átt nokkur símtöl við Arnar og við höfum talað vel um þetta. Líf atvinnumanns í knatt- spyrnu er ekki bara dans á rósum, því hefur hinn stóri og stæðilegi Hólmbert Aron Friðjónsson fengið að kynnast. Hann hefur upplifað hæðir og lægðir, og allt þar á milli. Hann leikur í dag með Holstein Kiel í næstefstu deild í Þýskalandi og hefur vakið athygli fyrir vaska framgöngu síðustu vikur. Fótbolti Hólmbert Aron, sem er í dag 29 ára gamall, fór fyrst út í atvinnumennsku árið 2013. Eftir frábæra frammistöðu með Fram vildi skoska stórliðið Celtic kaupa hann. Hólmbert var nálægt aðal- liðinu en fékk ekki sénsinn og fór á láni til Danmerkur. Hann sneri aftur heim árið 2015 og lék hér á landi í þrjú tímabil áður en hann fór aftur út í atvinnumennsku árið 2017. Hann lék í tvö ár í Noregi en var síðan seldur til Brescia á Ítalíu, áður en Holstein Kiel keypti hann. Á síðasta ári var Hólmbert á láni hjá Lilleström í Noregi og fann taktinn á nýjan leik eftir erfiða tíma vegna meiðsla. „Það er mjög gaman að hafa feng- ið tvo leiki í byrjunarliðinu og gera eitthvað í þeim leikjum, það hjálpar mér mikið og gerir mikið fyrir and- legu hliðina. Ég meiddist reyndar svo í kjölfarið. Ég meiddist aðeins í leiknum sem ég skoraði í, það kom þvílíkt mikil blæðing inn á vöðvann tveimur dögum eftir leikinn og læknirinn segir að það sé rifa. Þeir sjá það betur í myndatöku á næstu dögum hvað er í gangi í vöðvanum,“ segir þessi liðtæki framherji sem búsettur er í Kiel. Mikið á sjúkrabekknum Hjá Holstein Kiel hefur Hólmbert upplifað erfiða tíma sem komu í kjölfarið af meiðslatímabili á Ítal- íu. „Þjálfarinn sem fékk mig til Kiel fór og það kom nýr þjálfari hérna inn. Fyrsta hálfa árið mitt hérna og tímann hjá Brescia fór ég í gegnum allan skalann af meiðslum sem hægt var að ganga í gegnum á einu og hálfu ári. Þetta var endalaust, heill heilsu í mánuð en svo meiddur í sex vikur, heill heilsu í þrjár vikur en svo meiddur í mánuð. Þjálfarinn var orðinn þreyttur á mér,“ segir Hólmbert. Til að komast í gang ákvað Hólm- bert á síðasta ári að ganga í raðir Lilleström í Noregi á láni og þar fann hann sitt gamla form. „Það var ákveðið að fara á lán til Lilleström, þar fékk ég fjögurra mánaða undir- búningstímabil og þar komst ég algjörlega í gang. Þegar ég kom til baka til Kiel núna var þjálfarinn með sömu skoðun á mér og þegar ég var hérna áður. Ég labbaði inn á æfingasvæðið og fann að þeir vildu losna við mig strax, ég var í betra standi en áður og setti allt í botn. Ég vann mig hægt og rólega inn í þetta, ég skoraði í æfingaleikjum og þjálfarinn fór að tala vel um mig. Þjálfarinn vildi fyrst selja mig en þarna vildi hann halda mér og sagði að ég fengi að spila,“ segir Hólmbert. Ákvörðunin ekki í hans höndum Á dögunum reyndi sænska félagið Hammarby að kaupa Hólmbert en með þjálfarann á sínu bandi hjá Kiel ákvað Hólmbert að fara ekki fram á það að verða seldur. „Við hættum þá að hugsa um að fara en svo kemur þetta Hammarby-dót upp en ég hafði í reynd lítið um það að segja. Kiel var búið að ákveða að selja mig ekki,“ segir Hólmbert. „Þetta getur verið svo f ljótt að breytast, á mánuði fór þetta úr því að ég ætti að fara, í að byrja leiki og skora. Ég hélt ég væri að fara strax þarna í byrjun janúar, ég vildi bara ekki fara hvert sem er. Ég var að skoða í kringum mig, tók einn dag í einu og mætti á æfingar og reyndi að sanna mig. Það gekk og mér líður vel hérna, ég vildi ekkert ýta á það að komast til Hammarby því núna er þetta gott og þjálfarinn hefur trú á mér.“ Enginn skilningur á Ítalíu Eftir að hafa verið heill nánast allan sinn feril samdi Hólmbert við Brescia á Ítalíu haustið 2020, hann kom meiddur til félagsins. Það reyndist þessum Kópavogsbúa erfið brekka að byrja í og losnaði hann aldrei úr henni. „Ég hef allan minn feril verið þokkalega heill, ég skrifa svo undir hjá Brescia og er með brot í ristinni. Ég var frá í rúma fjóra mánuði og það var allt í klessu hjá klúbbnum. Ég var með einhverja sex þjálfara, alltaf verið að skipta út. Svo byrjaður maður að æfa og ég fann það eftir fjóra mánuði frá að ég gat nánast ekkert, Ítalirnir gáfu mann ekki neinn afslátt þrátt fyrir langa fjarveru. Þeir fóru að hugsa um hvaða vitleysing þeir hefðu verið að kaupa, þá fer maður ósjálfrátt að brjóta sig niður og það var smá vesen. Ég var alltaf meiddur og var að kljást við það þangað til hjá Lilleström. Ég hefði ekkert komið mér í gang ef ég hefði ekki fengið fjóra mánuði til að stjórna álagi hjá Lille- ström, æfa vel og fá leiki. Fjórir mán- uðir að græja allt, þú færð þetta ekk- ert á mörgum stöðum í Evrópu. Ég hef verið alveg heill þangað til núna og það er smá óvissa.“ Engin partíborg Í Kiel eru búsettir rúmlega 200 þúsund íbúar en Hólmbert segir Upp og niður og aftur upp Hörður Snævar Jónsson hordur @frettabladid.is borgina langt því frá iða af lífi. „Það er allt í lagi, þetta er ekkert nein partíborg. Ég er með kærustu sem er flutt út til mín og það gerir lífið auð- veldara. Þetta er mjög rólegt hérna í Kiel, Hamborg er 50 mínútur frá þar sem er meira líf. Það er ekkert mikið að gera hérna í borginni. Mér er byrjað að líða vel innan vallar, þá skipta þessir hlutir ekki jafnmiklu máli. Ég var ekki á n æ g ð u r h é r n a 3 . j a n ú a r þega r ég hélt að ég væri að fara, þá varð maður f ljótt þungur. Á þremur vikum fór þetta úr 0 og upp í 100.“ Hann segir gaman að spila í Þýskalandi, í næstefstu deild Þýska- lands þar sem Holstein Kiel spilar er mikið af stórum félögum og vel mætt á vellina. „Það er mjög gaman að fara á þessa velli þar sem eru 30 til 40 þúsund á vellinum, mig langaði að vera hérna af því að þetta er skemmtileg deild. Það er vel mætt á vellina og mikil umfjöllun, mér finnst mjög gaman að vera hérna og sérstaklega ef maður fær að spila og skorar eitthvað.“ Samtöl við Arnar Það var síðasta sumar sem Hólmbert Aron dró sig út úr A-landsliðshópnum, honum fannst athuga- vert hvernig Arnar Þór Viðarsson valdi hópinn og taldi betur heima setið en af stað farið. Þeir Arnar hafa undan- farið átt regluleg samtöl og framherjinn öflugi er klár í að koma aftur. Hann á að baki sex A- landsleiki og vonast til að þeim fjölgi. „Ég hef átt nokkur símtöl við Arnar og við höfum talað vel um þetta, ég veit ekki hvort hann velji mig en ég er klár og hann veit það. Ef hann hefur not fyrir mig þá er ég 100 prósent klár, það er leiðinlegt fyrir næsta glugga að vera eitthvað smá meiddur núna. Við erum búnir að eiga góð samtöl og Arnar veit stöðuna, vonandi kíkir hann á mig fyrir næstu verkefni. Ég vil vera með í þessu, ég er pepp- aður ef ég fæ tæki- færið. Það væri næs, það er möguleiki á sæti á Evrópumóti í ár og það vilja allir vera með í því,“ segir Hólmbert Aron. n 14 íþróttir FRÉTTABLAÐIÐ 4. mARs 2023 LAUGArDAGUr
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.