Fréttablaðið - 04.03.2023, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 04.03.2023, Blaðsíða 50
Merkisatburðir | Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna Útfararþjónusta í yfir 70 ár Við tökum vel á móti ástvinum í hlýlegu og fallegu umhverfi Sólarhringsvakt: 581 3300 & 565 5892 Komum til aðstandenda og ræðum skipulag sé þess óskað Sverrir Einarsson S: 896 8242 Jón G. Bjarnason S: 793 4455 Jóhanna Eiríksdóttir Útfararstofa Íslands www.utforin.is w Auðbrekku 1, Kópavogi Útfararstofa Hafnarfjarðar www.utfararstofa.is w Dofrahellu 9b, Hafnarfirði arnartomas@frettabladid.is Háskóladagurinn fer aftur fram í raun- heimum í dag en hann fór fram á netinu undanfarin tvö ár vegna samkomutak- markana. Viðburðurinn er samstarfs- verkefni allra háskóla á Íslandi þar sem starfsfólk og nemendur skólanna leyfa væntanlegum nemendum og öðrum gestum að skyggnast inn í starf ólíkra fræðigreina og námsleiða. „Við vonum að fólk fjölmenni til að kynna sér allt það frábæra nám sem er í boði hjá háskólum landsins,“ segir Jón Örn Guðbjartsson, markaðs- og sam- skiptastjóri hjá Háskóla Íslands. „Það er ótrúlega fjölbreytt nám í boði á öllum fræðasviðum. Það er mikilvægt að fólk sem hyggur á háskólanám nýti tæki- færið á morgun til að kynna sér nám við hæfi.“ Í ár verða allir háskólar landsins með fulltrúa á dagskránni hjá Háskóla Íslands auk þess sem aðrir skólar á borð við Listaháskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík verða einnig með dagskrá á heimavelli. Háskóladagurinn er að venju gríðarlega vel sóttur og segir Jón Örn að margir komi með einbeittan vilja til að kynna sér bara eitt tiltekið nám en endi svo með allt aðra ákvörðun að deginum loknum. „Margir koma með eitthvað ákveðið í huga en stundum verður bara einhver vitrun á leiðinni um húsin. Fólk finnur eitthvað sem það vissi ekki af sem fangar algerlega hug þess og ákvörðun er hrein- lega snarbreytt,“ segir Jón Örn og vísar í dæmi í nærumhverfinu. „Ein af talskonum skólans úr hópi nemenda er til dæmis góð í stærðfræði og ætlaði að velja eitthvað raungreina- tengt en uppgötvaði tómstunda- og félagsmálafræði á háskóladeginum. Þú getur nefnilega allt í einu rekist á eitt- hvað sem heillar þig og breytir fyrri ákvörðun – þú getur líka bara fengið staðfest að eitthvað nám sem þig langar í henti þér best.“ Dagskráin í dag stendur yfir á milli klukkan 12 og 15. n Háskóladagurinn snýr aftur í raunheima Haraldur Bóasson og Þóra Fríður Björnsdóttir hafa sagt skilið við rekstur Dalakofans eftir ellefu ár. Haraldur segir góðar viðtökur hjá kúnnum hafa verið frábært veganesti. arnartomas@frettabladid.is Þau tímamót hafa nú orðið í Dalakofan- um, vininni við veginn norðan heiða, að Haraldur Bóasson og Þóra Fríður Björns- dóttir hafa sagt skilið við reksturinn. Hjónin ráku kofann í um ellefu ár en eftirláta nú nýjum aðilum þennan vin- sæla stað. Þegar Fréttablaðið náði tali af Haraldi var hann staddur í Liverpool-borg að grúska í tref lum til að fara með á leik- inn gegn United á Anfield í dag. Hann var nýkominn af Bítlasafninu þegar hann gaf sér tíma fyrir blaðamann en kvaðst þó ekki hafa hitt á Ringo eða Paul. „Ég var aðeins viðriðinn f y rir- tækið sem átti húsnæðið áður en við ákváðum að kaupa það á sínum tíma til að sjá hvað við gætum gert,“ segir Haraldur. Þau Þóra Fríður voru áður með tærnar í ferðaþjónustunni þar sem þau ráku gistingu en þar áður voru þau bændur áður en þau seldu jörð sína. „Við ákváðum að skella okkur í þetta sem hefur verið mikið ævintýri en líka mikil vinna.“ Kúnnahópurinn í Dalakofanum hefur verið góð blanda af ferðalöngum og fólki af svæðinu. „Það er góður kjarni sem býr þarna en yfir sumarið er líka mikið af túrist- um,“ segir Haraldur. „Við höfum reynt að vera með einhverja viðburði en sá sem gekk best er kótilettukvöldið sem er alltaf gríðarlega vinsælt.“ Veitingastaðurinn í kofanum er vin- sæll staður til að fylla á tankinn. Har- aldur á erfitt með að segja til um hvaða réttur sé vinsælastur en mælir þó hik- laust með pitsunum. „Þær hafa fengið mjög mikið hól,“ segir hann. „Við höfum líka verið með þjóð- lega rétti eins og kótilettur, plokkfisk og silung. Útlendingarnir eru mjög hrifnir af því að gæða sér á einhverju svona sér- íslensku. Við höfum verið að vinna með kjöt frá bændum úr héraðinu og það mun halda áfram og aukast hjá þeim sem er tekinn við.“ Þar sem þú ert nú kominn til Liverpool er spurningunni um hvað taki við kannski þegar svarað? „Nú er eins gott að segja sem minnst!“ svarar hann hlæjandi. „Það er ekkert plan en við ætlum aðeins að kasta mæðinni, hjálpa börnum og barnabörnum og svo förum við kannski eitthvert í haust. Við erum svo sem komin af léttasta skeiði.“ Að lokum vill Haraldur þakka gestum Dalakofans fyrir góðar viðtökur í gegn- um árin. „Mér hefur fundist það einstaklega gott veganesti!“ n Kveðja Dalakofann sátt 1861 Abraham Lincoln verður sextándi forseti Banda­ ríkjanna. 1877 Emile Berliner finnur upp hljóðnemann. 1936 Zeppelinloftfarið Hindenburg flýgur sitt fyrsta reynsluflug. 1955 Armed Forces Radio and Television Service Keflavik fær heimild íslenskra stjórnvalda til sjónvarps­ útsendinga. 1964 Hljómar frá Keflavík slá í gegn á fyrstu bítlatónleikunum á Ís­ landi. Tónleikarnir eru haldnir í Háskólabíói. Fjórar aðrar hljóm­ sveitir koma þar fram. 1968 Fyrsta leikritið sem sett er upp sérstak­ lega fyrir sjónvarp á Íslandi er sent út. Það er verkið Romm handa Rósalind eftir Jökul Jakobsson. 1971 Íslendingar kaupa uppstoppaðan geirfugl á upp­ boði í London. Áður var safnað fyrir fuglinum um allt land. 1983 Menningarmiðstöðin Gerðuberg er opnuð í Breið­ holtshverfi í Reykjavík. 2005 Háskólinn í Reykjavík og Tækniháskóli Íslands sam­ einast undir merkjum þess fyrrnefnda. Háskóladagurinn er iðulega mjög vel sóttur. Fréttablaðið/SteFán Haraldur og Þóra Fríður fyrir miðju ásamt börnum sín­ um fjórum. Mynd/aðSend Kofinn er oft þétt setinn. 30 tímamót FRÉTTABLAÐIÐ 4. mARs 2023 LaUGaRDaGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.