Fréttablaðið - 04.03.2023, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 04.03.2023, Blaðsíða 41
Margrét Ágústsdóttir er ótrúleg ofurkona þegar kemur að hreyfingu. Hún stundar þríþraut og lætur ekki aldurinn stoppa sig. Til að verja liði tekur hún Active JOINTS frá Eylíf. Margrét segist vera búin að stunda þríþraut í ellefu ár en því fylgir mikið álag á líkamann. „Á þessum aldri og eftir miklar líkamlegar æfingar í gegnum árin þurfti ég að finna eitthvað sem héldi liða- mótunum góðum. Ég var búin að prófa ýmislegt þegar ég rambaði á Active JOINTS frá Eylíf fyrir svona tveimur árum. Síðan hef ég ekki fundið fyrir neinu í liðunum. Active JOINTS virkar svona vel fyrir mig. Þess vegna finnst mér í góðu lagi að mæla með því fyrir aðra. Ég vil að fólk viti af þessu fæðubótarefni,“ segir Margrét. „Ég var farin að finna fyrir eymslum í liðunum eftir strangar æfingar, sérstaklega á morgnana þegar ég fór fram úr. Ég finn ekki fyrir því lengur. Að keppa og æfa mikið fylgir meiðslahætta. Ef það gerist þarf að slaka aðeins á, ég fer til sjúkraþjálfara og passa upp á mig,“ heldur Margrét áfram. „Fyrir tveimur árum náði ég mér í bein- mar í hné og þarf stundum að nota spelku frá Össuri ef ég finn mikið fyrir því. Liðirnir eru fínir og það þakka ég Active JOINTS.“ Byrjaði eftir fimmtugt „Ég var komin yfir fimmtugt þegar vinnufélagi minn þáverandi kynnti mig fyrir þríþraut og ég kolféll fyrir íþróttinni. Mér fannst þetta ofboðslega skemmtilegt, góður félagsskapur og æfingarnar meiriháttar fyrir líkamann. Ég æfði mikið, 8 til10 tíma á viku. Ég féll vel í þennan hóp og fannst einstaklega gaman að keppa. Mér finnst alltaf gott að reyna á mig lík- amlega,“ segir Margrét. „Þríþrautin samanstendur af sundi, hlaupi og hjólreiðum. Vegalengdirnar eru mislangar, allt frá sprettþraut sem ég klára á 45 mínútum upp í heilan járnkarl sem er 16 tíma vinna. Ég æfi og keppi með Þríþrautar- deild Breiðabliks. Þríþrautin á hug minn allan og mig langar ekkert að hætta. Ég ætla að halda áfram svo lengi sem ég get og finnst gaman.“ Tók þátt í járnkarli Í fyrrasumar fór Margrét til Danmerkur og tók þátt í hálfum járnkarli. „Það var ótrúlega gaman. Keppnin felst í 1.900 metra sundi sem fram fór í höfninni á Helsingjaeyri. Síðan hjóluðum við í 90 kílómetra um Norður-Sjáland og hlupum síðan hálft maraþon í miðbæ Helsingjaeyrar. Þetta fannst mér óskaplega skemmtilegt. Við eigum að gera það sem við höfum ánægju af, sérstaklega þegar aldur- inn færist yfir og ekki fyrir neinum að sjá nema okkur sjálfum.“ Margrét segist reyna að hvíla einu sinni til tvisvar í viku. „Stundum eru æfingar tvisvar á dag,“ segir hún. Margrét keppir í sínum aldursflokki en hún viður- kennir að hópurinn sé ekki stór. Það er merkilegt að Margrét var aldrei í íþróttum þegar hún var yngri. „Áhuginn vaknaði þegar ég var dregin inn í þetta komin yfir miðjan aldur,“ segir hún og hlær. „Ég fann strax hvað þetta var gaman og hentaði mér vel. Ég æfi þessar þrjár greinar sem þríþrautin er, en með fram því þarf ég að gera styrktaræfingar og teygjur. Það er afar mikilvægt,“ segir hún. CrossFit í pásunni Margrét tók líka þátt í sprett- þraut sem fram fór í Reykjanesbæ. „Sprettþrautin er stysta vegalengd- in, þá er synt 400 metra í sundlaug, hjólað 10 kílómetra og hlaupið 2,5 kílómetra,“ segir þessi ofurkona. „Næsta sumar fer ég svo í hálfan járnkarl í Svíþjóð með félögum mínum í Breiðabliki,“ segir Mar- grét sem hefur eignast marga vini í kringum sportið. „Þetta er svolítið extreme sport og hentar ekki öllum. Hins vegar ættu allir að reyna að finna eitthvað við sitt hæfi, hreyfing á þessum aldri er mjög mikilvæg þótt hún þurfi ekki að vera keppnis. Ég er orkumikil og finnst gaman að vera til. Þríþrautin gefur lífinu lit,“ segir hún. Margrét tekur þrjú hylki af Active JOINTS frá Eylíf á morgnana eins og mælt er með. „Ég fann mjög fljótlega að liðleikinn varð allt annar. Ég er því ákveðin í að halda áfram að taka Active JOINTS. Mér finnst mikill plús að Active JOINTS er íslenskt fæðubótarefni með hreinum efnum úr okkar náttúru- auðlindum.“ Heilsan er dýrmætust Vörulínan Eylíf býður upp á fimm frábærar heilsuvörur sem reynst hafa fólki vel. Þær eru Active JOINTS, Stronger BONES, Smooth- er SKIN & HAIR, Happier GUTS, og Stronger LIVER er nýjasta varan. Vörurnar eru framleiddar á Íslandi úr hreinum, íslenskum hráefnum og engum aukefnum er bætt við. Ólöf Rún Tryggvadóttir er stofnandi Eylíf. „Hugmyndin að vörulínunni kom til vegna þess að mig langaði að setja saman þau frábæru hrá- efni sem framleidd eru á Íslandi á sjálfbæran hátt úr íslenskum, náttúrulegum auðlindum og auka þannig aðgengi fólks að þessum hráefnum,“ upplýsir Ólöf. Framleiðslan fer fram á Grenivík og þróun varanna er í samstarfi við sérfræðinga frá Matís. „Vinsælasta varan okkar er Active JOINTS sem inniheldur fjögur íslensk nær- ingarefni og sýna margra ára rann- sóknir fram á jákvæð áhrif þeirra,“ segir Ólöf Rún. „Við vöndum til verka, sækjum í sjálfbærar auðlindir úr sjó og af landi, og notum hreina, íslenska náttúruafurð og hrein hráefni sem eru framleidd af viðurkenndum íslenskum framleiðendum.“ Hráefni sem notuð eru í bætiefnin frá Eylíf eru ekki erfðabreytt. „Þau stuðla að heilbrigði og sveigjan- legri líkama því þá erum við færari um að takast á við verkefnin í dagsins önn. Við vitum öll að heilsan er okkur dýrmætust og því er svo mikilvægt að gæta vel að henni og fyrirbyggja ýmis heilsu- farsvandamál. Heilbrigð melting er grunnur að góðri heilsu og þess vegna vildum við hjá Eylíf bjóða upp á hágæðavöru fyrir melting- una,“ segir Ólöf Rún. n Eylíf vörurnar fást í öllum apó- tekum, Fjarðarkaupum, Hagkaup, Nettó, Heilsuhúsinu, Krónunni og Melabúðinni. Ókeypis heimsend- ing ef keypt er fyrir 7.000 krónur eða meira á eylif.is Margrét varð 65 ára í haust sem leið og tók þátt í hálfum járnkarli í Danmörku í fyrrasumar. Hún keppir í ár í Svíþjóð. Vörulínan Eylíf býður upp á fimm frábærar heilsuvörur. Ofurkona sem keppir í þríþraut Fæðubótarefni kemur ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki ætlað börnum né barnshafandi konum. Ekki er ráðlagt að taka meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Geymist þar sem börn ná ekki til. ALLT kynningarblað 7LAUGARDAGUR 4. mars 2023
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.