Fréttablaðið - 04.03.2023, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 04.03.2023, Blaðsíða 56
Ólöf Nordal hefur unnið mikið með fugla í verkum sínum og segir fugla vera þekkt minni í trúar- brögðum og þjóðsögum. Fréttablaðið/ Sigtryggur ari Ólöf segir Fyglin vera systurverk nýlegs verks hennar Mannfugla sem er staðsett í garði hjúkrunarheimilisins Móbergs á Selfossi. Mynd/aðSend Listamaðurinn Ólöf Nordal leitar í þekkt minni úr þjóð­ sögum og þjóðtrú á sýning­ unni Fygli í Ásmundarsal. tsh@frettabladid.is Ólöf Nordal sýnir nýja skúlptúra á sýningunni Fygli í Ásmundarsal. Ólöf hefur lengi unnið með fugla í verkum sínum og sækir gjarnan innblástur í íslenska þjóðtrú og samtímamenningu. Fygli Ólafar eru skúlptúrar steyptir í brons sem sýna fígúrur einhvers staðar mitt á milli manna og fugla. „Ég er að leika mér með tæknina, efni og aðferð. Mig langaði til þess að gera verk sem væru unnin milli­ liðalaust í ákveðið efni. Ég veit ekki af hverju mig langaði til þess en það er kannski eitthvað í tíðarandanum sem kallaði á það. Þetta eru verk sem eru búin til fyrst í leir, frekar lítil, og síðan blásin upp. Þau eru þrívíddar­ skönnuð og síðan þrívíddarprentuð og steypt í bronssteypu,“ segir Ólöf. Þekkt minni úr trúarbrögðum Ólöf segir verkin vera algjörlega skálduð en þau sæki þó í þekkt mótíf úr þjóðsögum, þjóðtrú og trúarbrögðum. „Það er þekkt minni í öllum trúarbrögðum að sálin umbreytist í fugl og f ljúgi upp til himna.“ Þá segir hún Fyglin vera systur­ verk nýlegs verks hennar sem ber heitið Mannfuglar og er stað­ sett í garði hjúkrunarheimilisins Móbergs á Selfossi. „Í Mannfuglum var ég svolítið að hugsa um þetta með líkamann og hvernig hann umbreytist í gegnum tíðina, frá fæðingu til dauða. Inni á hjúkrunarheimili þá er ein­ hvern veginn verið að vinna með ummyndunina, fólk missir færni, öðlast aftur færni, svo á endanum missir það hana alveg. Það þekkist í f lestum trúarbrögðum og er mjög lifandi í nútímanum að fólki finnst að andinn eða sálin umbreytist í fugl á dánarstund og f ljúgi burt í formi fugls. Það er mjög sterkt minni og margar sögur, líka sam­ tímasögur, um að fuglar vitji hins deyjandi og f ljúgi burt með sálina. Eftirlifendur tengja svo oft látinn ástvin við ákveðinn fugl,“ segir hún. Farfuglar og mannfólk Hefurðu mikinn áhuga á fuglum? „Þegar ég byrjaði að hugsa um fugla þá var það hrafninn og það var beint upp úr þjóðtrúnni. Á Íslandi þá er náttúrlega svo lítið af dýrum, það er refurinn og svo bara fuglar, í raun og veru. Það eru fuglar í þjóð­ trúnni okkar, við hlustum á fugla og það er til fólk sem talar fugla­ mál.“ Ólöf kveðst þó ekki fylgjast sér­ staklega með fuglum eða stunda fuglaskoðun. Þá bætir hún því við að innsetningin Fygli sæki einnig innblástur til farfugla. „Við erum alltaf að gleðjast yfir farfuglunum sem koma f ljúgandi yfir hafið, þeir koma með vorið, vonina, með háreysti og fuglasöng, hamingju og gleði. Svo hverfa þeir aftur í sumarlok, eru bara hérna örstutt, en við teljum þá samt vera hluta af okkur heimi og vera „íslenska fugla“. Ég var svolítið að hugsa um það þegar ég tók verkin úr þessu spítalasamhengi þá fá fyglin opnari túlkunarmöguleika. Ég fór að sjá farfuglana í samhengi við allt mannfólkið sem flýgur hingað og sækist eftir því að fá að verða hluti af okkar lífi en okkur finnst vera mjög framandi,“ segir Ólöf og vísar þar til f lóttamanna og hælisleitenda. „Orðið flótti og að fljúga er af sama meiði.“ Sálin umbreytist í fugl á dánarstund Á sýningunni mun miðilsfundurinn hljóma af vínylplötu sem gefin er út í takmörkuðu upplagi ásamt nýjum vatnslitaverkum eftir Gjörningaklúbbinn. Fréttablaðið/Sigtryggur ari tsh@frettabladid.is Gjör n i ng a k lúbbu r i n n opna r sýninguna Skilaboð að handan í Gallery Porti í dag á 147. fæðingar­ afmæli Ásgríms Jónssonar list­ málara. Sýningin hverfist um upp­ töku af miðilsfundi sem þær Eirún Sigurðardóttir og Jóní Jónsdóttir áttu við Ásgrím árið 2019 á fyrr­ verandi heimili listamannsins að Bergstaðastræti en fundurinn var hluti af undirbúningi fyrir sýningu Gjörningaklúbbsins, Vatn og blóð, um líf og list Ásgríms Jónssonar í Listasafni Íslands. „Við ákváðum að athuga hvort við yrðum einhvers meira vísari um Ásgrím, annað en það sem er sagt um hann í sögubókunum og sjá hvort að við myndum ná til hans í gegnum miðil,“ segja þær Eirún og Jóní. Náðuð þið sambandi við Ásgrím? „Fyrst var miðillinn ekki viss hvort þetta væri Ásgrímur eða ekki en svo kom hann bara mjög skýrt í gegn. Þessi miðill þekkir ekki neitt til Ásgríms og hún var ekki einu sinni á staðnum því hún var að miðla í gegnum Facetime.“ Miðillinn sem Gjörningaklúbb­ urinn notaðist við heitir Brynja Magnúsdóttir Lyngdal en hún hefur áður unnið með þeim. „Þetta er aðferð sem við köllum miðill­miðill, þegar við fáum svona miðil með okkur á frumstigi verk­ efnis. Venjulega erum við ekkert að sýna neinum þessar frumheimildir, þetta er bara eitt af verkfærunum í okkar verkfærakistu. En það varð okkur alveg ljóst þegar við fórum að skoða betur þennan fund og hlusta á hann í framhaldinu að við urðum að koma þessu á framfæri því þetta eru skilaboð sem eru mikilvæg,“ segja Eirún og Jóní. Á sýningunni í Gallery Porti mun miðilsfundurinn hljóma af vínylplötu sem gefin verður út í 30 platna upplagi ásamt nýjum vatns­ litaverkum sem Gjörningaklúbb­ urinn vinnur fyrir hvert eintak af plötunni. „Við erum búnar að gera þetta að einstökum verkum, platan er fjöl­ feldi en verkin eru samt einstök því við gerum vatnslistaverk utan um hverja plötu. Það var svona grunn­ stefið í myndlist Ásgríms, hann var mikill vatnslitameistari,“ segja þær. Þá segjast Eirún og Jóní vera að vinna að nýju verki út frá mið­ ilsfundi sem verður frumf lutt á Myrkum músíkdögum 2024. „Við erum að vinna að mjög stóru verkefni með Sinfóníuhljómsveit Íslands þar sem við förum meira inn í hlutamiðlun þar sem miðill­ inn okkar skoðar allt upp í fjögur hundruð ára gömul hljóðfæri.“ Gjörningaklúbburinn segist þó enn sem komið er ekki vera með neinar áætlanir um að ræða við fleiri látna listamenn. „Það er samt aldrei að vita, það væri alveg gaman að hitta nokkra aðra.“ n Ræddu við látinn listamann í gegnum miðil Hljóðverk eftir son Ólafar Á einum vegg sýningarrýmisins í Ásmundarsal stendur vísa sem Ólöf samdi: „Tístir rugl og rogl, á rumpi situr fogl, fílíófó, fílíófogg, fyglið Gylligogg.“ „Þessi vísa er náttúrlega bull, svona þjóðvísurugl. Ég hef gaman af því að leika með tungumálið líka,“ segir Ólöf kímin. Hvert og eitt fygli Ólafar er með sína eigin hljóðmynd sem heyra má óma um salarkynni Ásmundarsalar. Hljóðverkið er unnið af syni Ólafar, Hjalta Nordal tónskáldi. „Mér fannst það gaman því þeir eru þarna að tísta rugl og rogl, á annarlegu tungumáli sem við skiljum takmarkað, og svona aðeins fyrir ofan okkur. Mér fannst tilbúið foglamál vera eitthvað sem gæti lyft skúlptúrunum upp og náð húm­ ornum inn, því mér finnst mynd­ irnar fyndnar og ég vildi ýta aðeins undir það og taka þetta ekki allt of alvarlega. Þetta er hljóðmynd sem ég vann með Hjalta syni mínum þar sem hann spilar þetta ruglmál á saxófón. Ég valdi saxófóninn vegna þess að í honum er bæði kvak og tíst, og það er oft talað um að saxó­ fónninn sé það hljóðfæri sem líkist mannsröddinni hvað mest,“ segir Ólöf. n Það er þekkt minni í öllum trúarbrögðum að sálin umbreytist í fugl og fljúgi upp til himna. 36 menning FRÉTTABLAÐIÐ 4. mARS 2023 LAUgARDAgUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.