Fréttablaðið - 04.03.2023, Page 56
Ólöf Nordal
hefur unnið
mikið með
fugla í verkum
sínum og segir
fugla vera þekkt
minni í trúar-
brögðum og
þjóðsögum.
Fréttablaðið/
Sigtryggur ari
Ólöf segir Fyglin vera systurverk nýlegs verks hennar Mannfugla sem er
staðsett í garði hjúkrunarheimilisins Móbergs á Selfossi. Mynd/aðSend
Listamaðurinn Ólöf Nordal
leitar í þekkt minni úr þjóð
sögum og þjóðtrú á sýning
unni Fygli í Ásmundarsal.
tsh@frettabladid.is
Ólöf Nordal sýnir nýja skúlptúra á
sýningunni Fygli í Ásmundarsal.
Ólöf hefur lengi unnið með fugla
í verkum sínum og sækir gjarnan
innblástur í íslenska þjóðtrú og
samtímamenningu. Fygli Ólafar eru
skúlptúrar steyptir í brons sem sýna
fígúrur einhvers staðar mitt á milli
manna og fugla.
„Ég er að leika mér með tæknina,
efni og aðferð. Mig langaði til þess
að gera verk sem væru unnin milli
liðalaust í ákveðið efni. Ég veit ekki
af hverju mig langaði til þess en það
er kannski eitthvað í tíðarandanum
sem kallaði á það. Þetta eru verk sem
eru búin til fyrst í leir, frekar lítil, og
síðan blásin upp. Þau eru þrívíddar
skönnuð og síðan þrívíddarprentuð
og steypt í bronssteypu,“ segir Ólöf.
Þekkt minni úr trúarbrögðum
Ólöf segir verkin vera algjörlega
skálduð en þau sæki þó í þekkt
mótíf úr þjóðsögum, þjóðtrú og
trúarbrögðum. „Það er þekkt minni
í öllum trúarbrögðum að sálin
umbreytist í fugl og f ljúgi upp til
himna.“
Þá segir hún Fyglin vera systur
verk nýlegs verks hennar sem ber
heitið Mannfuglar og er stað
sett í garði hjúkrunarheimilisins
Móbergs á Selfossi.
„Í Mannfuglum var ég svolítið að
hugsa um þetta með líkamann og
hvernig hann umbreytist í gegnum
tíðina, frá fæðingu til dauða. Inni
á hjúkrunarheimili þá er ein
hvern veginn verið að vinna með
ummyndunina, fólk missir færni,
öðlast aftur færni, svo á endanum
missir það hana alveg. Það þekkist
í f lestum trúarbrögðum og er mjög
lifandi í nútímanum að fólki finnst
að andinn eða sálin umbreytist í
fugl á dánarstund og f ljúgi burt
í formi fugls. Það er mjög sterkt
minni og margar sögur, líka sam
tímasögur, um að fuglar vitji hins
deyjandi og f ljúgi burt með sálina.
Eftirlifendur tengja svo oft látinn
ástvin við ákveðinn fugl,“ segir
hún.
Farfuglar og mannfólk
Hefurðu mikinn áhuga á fuglum?
„Þegar ég byrjaði að hugsa um
fugla þá var það hrafninn og það var
beint upp úr þjóðtrúnni. Á Íslandi
þá er náttúrlega svo lítið af dýrum,
það er refurinn og svo bara fuglar, í
raun og veru. Það eru fuglar í þjóð
trúnni okkar, við hlustum á fugla
og það er til fólk sem talar fugla
mál.“
Ólöf kveðst þó ekki fylgjast sér
staklega með fuglum eða stunda
fuglaskoðun. Þá bætir hún því við
að innsetningin Fygli sæki einnig
innblástur til farfugla.
„Við erum alltaf að gleðjast yfir
farfuglunum sem koma f ljúgandi
yfir hafið, þeir koma með vorið,
vonina, með háreysti og fuglasöng,
hamingju og gleði. Svo hverfa þeir
aftur í sumarlok, eru bara hérna
örstutt, en við teljum þá samt
vera hluta af okkur heimi og vera
„íslenska fugla“. Ég var svolítið að
hugsa um það þegar ég tók verkin úr
þessu spítalasamhengi þá fá fyglin
opnari túlkunarmöguleika. Ég fór
að sjá farfuglana í samhengi við allt
mannfólkið sem flýgur hingað og
sækist eftir því að fá að verða hluti af
okkar lífi en okkur finnst vera mjög
framandi,“ segir Ólöf og vísar þar
til f lóttamanna og hælisleitenda.
„Orðið flótti og að fljúga er af sama
meiði.“
Sálin umbreytist í fugl á dánarstund
Á sýningunni mun miðilsfundurinn hljóma af vínylplötu sem gefin er út í
takmörkuðu upplagi ásamt nýjum vatnslitaverkum eftir Gjörningaklúbbinn.
Fréttablaðið/Sigtryggur ari
tsh@frettabladid.is
Gjör n i ng a k lúbbu r i n n opna r
sýninguna Skilaboð að handan í
Gallery Porti í dag á 147. fæðingar
afmæli Ásgríms Jónssonar list
málara. Sýningin hverfist um upp
töku af miðilsfundi sem þær Eirún
Sigurðardóttir og Jóní Jónsdóttir
áttu við Ásgrím árið 2019 á fyrr
verandi heimili listamannsins að
Bergstaðastræti en fundurinn var
hluti af undirbúningi fyrir sýningu
Gjörningaklúbbsins, Vatn og blóð,
um líf og list Ásgríms Jónssonar í
Listasafni Íslands.
„Við ákváðum að athuga hvort
við yrðum einhvers meira vísari
um Ásgrím, annað en það sem er
sagt um hann í sögubókunum og sjá
hvort að við myndum ná til hans í
gegnum miðil,“ segja þær Eirún og
Jóní.
Náðuð þið sambandi við Ásgrím?
„Fyrst var miðillinn ekki viss
hvort þetta væri Ásgrímur eða ekki
en svo kom hann bara mjög skýrt í
gegn. Þessi miðill þekkir ekki neitt
til Ásgríms og hún var ekki einu
sinni á staðnum því hún var að
miðla í gegnum Facetime.“
Miðillinn sem Gjörningaklúbb
urinn notaðist við heitir Brynja
Magnúsdóttir Lyngdal en hún hefur
áður unnið með þeim.
„Þetta er aðferð sem við köllum
miðillmiðill, þegar við fáum svona
miðil með okkur á frumstigi verk
efnis. Venjulega erum við ekkert að
sýna neinum þessar frumheimildir,
þetta er bara eitt af verkfærunum í
okkar verkfærakistu. En það varð
okkur alveg ljóst þegar við fórum að
skoða betur þennan fund og hlusta
á hann í framhaldinu að við urðum
að koma þessu á framfæri því þetta
eru skilaboð sem eru mikilvæg,“
segja Eirún og Jóní.
Á sýningunni í Gallery Porti
mun miðilsfundurinn hljóma af
vínylplötu sem gefin verður út í 30
platna upplagi ásamt nýjum vatns
litaverkum sem Gjörningaklúbb
urinn vinnur fyrir hvert eintak af
plötunni.
„Við erum búnar að gera þetta að
einstökum verkum, platan er fjöl
feldi en verkin eru samt einstök því
við gerum vatnslistaverk utan um
hverja plötu. Það var svona grunn
stefið í myndlist Ásgríms, hann var
mikill vatnslitameistari,“ segja þær.
Þá segjast Eirún og Jóní vera
að vinna að nýju verki út frá mið
ilsfundi sem verður frumf lutt á
Myrkum músíkdögum 2024.
„Við erum að vinna að mjög stóru
verkefni með Sinfóníuhljómsveit
Íslands þar sem við förum meira
inn í hlutamiðlun þar sem miðill
inn okkar skoðar allt upp í fjögur
hundruð ára gömul hljóðfæri.“
Gjörningaklúbburinn segist þó
enn sem komið er ekki vera með
neinar áætlanir um að ræða við
fleiri látna listamenn. „Það er samt
aldrei að vita, það væri alveg gaman
að hitta nokkra aðra.“ n
Ræddu við látinn listamann í gegnum miðil
Hljóðverk eftir son Ólafar
Á einum vegg sýningarrýmisins í
Ásmundarsal stendur vísa sem Ólöf
samdi: „Tístir rugl og rogl, á rumpi
situr fogl, fílíófó, fílíófogg, fyglið
Gylligogg.“
„Þessi vísa er náttúrlega bull,
svona þjóðvísurugl. Ég hef gaman af
því að leika með tungumálið líka,“
segir Ólöf kímin.
Hvert og eitt fygli Ólafar er með
sína eigin hljóðmynd sem heyra má
óma um salarkynni Ásmundarsalar.
Hljóðverkið er unnið af syni Ólafar,
Hjalta Nordal tónskáldi.
„Mér fannst það gaman því þeir
eru þarna að tísta rugl og rogl,
á annarlegu tungumáli sem við
skiljum takmarkað, og svona aðeins
fyrir ofan okkur. Mér fannst tilbúið
foglamál vera eitthvað sem gæti lyft
skúlptúrunum upp og náð húm
ornum inn, því mér finnst mynd
irnar fyndnar og ég vildi ýta aðeins
undir það og taka þetta ekki allt of
alvarlega. Þetta er hljóðmynd sem
ég vann með Hjalta syni mínum
þar sem hann spilar þetta ruglmál á
saxófón. Ég valdi saxófóninn vegna
þess að í honum er bæði kvak og
tíst, og það er oft talað um að saxó
fónninn sé það hljóðfæri sem líkist
mannsröddinni hvað mest,“ segir
Ólöf. n
Það er þekkt minni í
öllum trúarbrögðum
að sálin umbreytist í
fugl og fljúgi upp til
himna.
36 menning FRÉTTABLAÐIÐ 4. mARS 2023
LAUgARDAgUR