Fréttablaðið - 04.03.2023, Blaðsíða 25
Síðan árið 1981
hefur Natures Aid
sérhæft sig í framleiðslu
á hágæðabætiefnum en
þeirra helsta markmið er
að vera alltaf einu skrefi
á undan á sviði náttúru-
og jurtaefna.
Gunnar Freyr Steinsson
hefur notað Glúkósamín
& Kondróitín frá Natures
Aid í dágóðan tíma og með
einstökum árangri. Hann
mælir með þessu bætiefni
fyrir öll þau sem finna fyrir
eymslum í liðum.
Glúkósamín er í hópi efna sem
líkaminn framleiðir sjálfur og
nýtir sér til gagns en sú fram-
leiðsla minnkar þó með aldrinum.
Glúkósamín byggir upp brjósk og
gagnast því vel við hinum ýmsu
kvillum sem tengjast liðum. Inn-
taka glúkósamíns í formi bætiefna
eykur framboð þess í líkamanum
sem þýðir að viðgerðarhæfni hans
eykst umfram það sem annars
væri mögulegt. Bætiefnablanda
af glúkósamíni og kondróitíni er
talin hafa afar hvetjandi áhrif á
brjóskfrumur í ræktun en hvort
efnið um sig gæti gagnast hinum
mikla fjölda fólks sem þjáist af
fjölda kvilla tengdum liðum.
Eitt af algengustu vandamálum
stoðkerfisins eru eymsli í liðum
Ýmislegt getur haft áhrif á liðheilsu
okkar og er því mikilvægt að huga
að ákveðnum þáttum sem geta
haft jákvæð áhrif og jafnvel dregið
úr eymslum. Eitt af algengustu
vandamálum stoðkerfisins eru
eymsli í liðum. Mismunandi er í
hvaða liðum eymsli koma fram
en oft og tíðum eru hné eða fingur
hvað verst. Margir finna einn-
ig fyrir eymslum í mjöðmum og
ökklum. Til að koma í veg fyrir
eða fyrirbyggja slíka kvilla er
mikilvægt að stunda reglulega
hreyfingu við hæfi, styrkja vöðva
í kringum liðina og huga vel að
hollu og fjölbreyttu mataræði. Að
auki getur verið góður kostur að
taka inn blöndu af glúkósamíni og
kondrótíni í formi bætiefna sem
hefur jákvæð áhrif á liðina.
Orðinn allt annar í hnjánum
„Liðeymsli í hnjám er ættgengur
kvilli, mamma og báðir bræður
hennar hafa öll farið í hnjáliða-
skipti á báðum fótum, einnig
móðurafi minn, svo ég þykist vita
hvað bíður mín,“ segir Gunnar
Freyr sem hefur glímt við mikil
eymsli í hnjám og notað Glúkó-
samín & Kondróitín-formúluna frá
Natures Aid í dágóðan tíma.
„Fyrir fimm árum var ég orðinn
það slæmur í hnjánum að ég
staulaðist um eins og gamalmenni,
þá ekki nema 43 ára. Tengdafor-
eldrar mínir bjuggu á fjórðu hæð í
lyftulausu húsi og ég kveið því að
heimsækja þau vegna þess hversu
vont mér þótti að ganga tröpp-
urnar. Mér fannst ansi vont að
ganga upp tröppurnar en talsvert
verra að ganga niður þær. Þá var ég
farinn að þurfa að ganga á hlið til
að finna minna til,“ segir Gunnar
Freyr sem fór alltaf í góðar hné-
hlífar ef hann vissi að hann þyrfti
að ganga eitthvað að ráði.
„Svo gerist tvennt seinna um
sumarið. Annars vegar fer ég að
hjóla af nokkrum krafti, nokkuð
sem ég hafði ekki gert nema í mjög
litlum mæli síðan ég var kannski 13
ára, og hins vegar fór ég að taka inn
Glúkósamín & Kondróitín hylkin,
tvö á dag,“ segir Gunnar Freyr.
„Þremur vikum eftir að ég
byrjaði að innbyrða hylkin fórum
við í heimsókn til tengdaforeldra
minna. Þegar ég var kominn niður
um eina eða tvær hæðir áttaði ég
mig á því að ég gekk eðlilega og
fann engin óþægindi í hnjánum.
Allar götur síðan hef passað upp á
taka inn hylkin daglega. Þegar ég
hef farið í ferðalög, hvort sem það
er innanlands eða erlendis, hef ég
ekki alltaf nennt að hafa hylkin
meðferðis en þá er eins og við
manninn mælt að ég finn heldur
betur fyrir því í hnjánum. Þá
eykst þreytupirringur í hnjánum,
óþægindi og almenn vanlíðan og
það þótt ég sé ekki endilega að
ganga mikið og þreyta hnén. Þetta
fylgir mér ef ég gleymi að taka inn
hylkin, sama hvort ég sé mikið
á ferðinni eða einungis heima í
afslöppun,“ segir Gunnar Freyr
og kveðst afar þakklátur fyrir til-
komu Glúkósamíns & Kondróitín-
formúlunnar í sína daglegu rútínu
þar sem líðan hans í hnjám er mun
betri.
Frábært bætiefni fyrir liðina
Glúkósamín & Kondróitín
formúlan frá Natures Aid er vel
samsett liðbætiefnablanda þar
sem tekið er á fjölmörgum þáttum
sem tengjast gjarnan eymslum og
óþægindum í liðum. Auk glúkósa-
míns inniheldur blandan kondró-
itín súlfat sem er byggingarefni
brjósks og geta þessi tvö efni verið
afar góð saman fyrir liðina.
Dagskammtur inniheldur
1.000 mg af glúkósamíni og 200
mg af kondróitíni, ásamt engifer,
túrmeriki, C-vítamíni og rósaldini.
Engifer og túrmerik eru rætur
sem hafa lengi verið þekktar fyrir
heilsueflandi eiginleika sína og
C-vítamín stuðlar að eðlilegri
myndun kollagens fyrir eðlilega
starfsemi brjósks. n
Hættur að finna til í hnjánum
Gunnar Freyr hætti að finna til í hnjánum aðeins þremur vikum eftir að hann fór að taka inn bætiefnið. MYND/AÐSEND
Glúkósamín & Kondróitín er öflug
liðbætiefnablanda frá Natures Aid.
PROBI FJÖLSKYLDAN
ÞARMA-
FLÓRAN
ER LYKILLINN
AÐ HEILSUNNI
ÞESSI Í GRÆNA KASSANUM
PROBI® MAGE
ALLT kynningarblað 3LAUGARDAGUR 4. mars 2023