Fréttablaðið - 04.03.2023, Blaðsíða 46
Við treyst-
um gestum
okkar og
munum
gera það
áfram.
Brynhildur
Guðjónsdóttir
Kannski er
þetta
uppsöfnuð
spenna í
landanum
eftir inni-
veruna.
Marta Nordal
Það væri leiðinleg
forræðishyggja að
banna öllum leikhús-
gestum, sem langflestir
eru til fyrirmyndar, að
fá sér vínglas.
Björk Jakobsdóttir
Rétt eins og aðrar þjóðir hafa
Íslendingar fagnað því óspart
að geta um frjálst höfuð
strokið eftir að hafa upplifað
takmarkanir á skemmtana-
haldi. Umræða um breytt
hegðunar- og neyslumynstur
landans hefur skotið upp
kollinum og þykir sumum
fagnaðarlætin fullmikil.
Leikhúsin eru einn geirinn
sem samkomutakmark-
anir bitnuðu illa á en eru
nú sannarlega í miklum
blóma. En eru leikhúsgest-
ir að fá sér of mikið? Við heyrðum
í leikhússtjórum og spurðum þá
hvort áfengisneysla leikhúsgesta
væri truflandi.
Meira á söngleikjum og försum
Björk Jakobsdóttir, leikkona og leik-
hússtjóri Gaflaraleikhússins, segist
verða meira vör við að vín bæði sjá-
ist og heyrist á leikhúsgestum.
„Já, því miður finnst mér það.
Bæði hef ég orðið vör við það sem
leikkona á sviði og sem áhorfandi
í leikhúsinu,“ segir hún en Björk er
hluti þríeykisins á bak við verkið
Bíddu bara sem hefur slegið í gegn
í vetur. „Þetta á ekki bara við um
leikhúsin heldur alla viðburði og ég
held að f leiri skemmtikraftar taki
undir það.“
Sara Martí Guðmundsdóttir,
leikhússtjóri Tjarnarbíós, segir
vandann ekki endilega hafa auk-
ist, heldur hafa verið viðloðandi í
langan tíma.
„Í f lestum tilfellum er þetta ekki
vandamál en það kemur fyrir á sýn-
ingum þar sem er smá stuð að fólk
er orðið ölvað þegar það er að mæta
í leikhúsið og heldur svo áfram að
dæla í sig,“ segir Sara.
Marta Nordal, leikhússtjóri Leik-
félags Akureyrar, er ekki frá því að
eitthvað hafi breyst eftir Covid.
„Án þess að hafa gert vísindalega
rannsókn á þessu, þá finnst okkur
eins og áfengisneysla hafi aðeins
aukist eftir Covid á sumum sýn-
ingum,“ segir hún.
„Kannski er þetta uppsöfnuð
spenna í landanum eftir inni-
veruna. En þetta er auðvitað mjög
háð tegund sýninga. Söngleikir og
til dæmis farsar sem hafa mikið
skemmtanagildi og njóta almennrar
lýðhylli draga frekar að sér djamm-
stemninguna.
Þar eru hópar að gera sér daga-
mun, stundum vinnustaðatengt,
fara gjarnan út að borða á undan
og svo að djamma á eftir. En á lang-
f lestum öðrum leiksýningum er
þetta nákvæmlega ekkert vanda-
mál. Þetta er líka mismunandi eftir
sýningark völdum, laugardags-
kvöldin eru hressust í þessu en á
virkum kvöldum svo sem fimmtu-
dögum er sáralítið drukkið og flest-
ir bara í sódavatninu,“ segir Marta.
Magnús Geir Þórðarson Þjóðleik-
hússtjóri segist ekki hafa orðið var
við aukna drykkju í sínu leikhúsi.
„Þetta hefur ekki verið vandamál
enda höfum við ekki hvatt til þess
að farið sé með drykki inn í salina
heldur höfum við hvatt gesti okkar
til að panta drykki fyrir sýningu sem
bíða þeirra tilbúnir á fráteknu borði í
hléi. Þessi þjónusta er mjög vinsæl og
gestir eru þakklátir fyrir þetta fyrir-
komulag. Annað fyrirkomulag er svo
í Þjóðleikhúskjallaranum en þar er
beinlínis gert ráð fyrir að fólk njóti
veitinga við borð meðan á sýningu
stendur og þar virkar það mjög vel,
bæði á kvöldsýningum og í Hádegis-
leikhúsinu okkar,“ segir hann.
Brynhildur Guðjónsdóttir Borgar-
leikhússtjóri segist hafa orðið vör við
breytta hegðun, meira hömluleysi.
„Hvort það stafar af víndrykkju
eða ekki er ómögulegt að segja til
um. Það verður að ítreka að 99,9 pró-
sent gesta Borgarleikhússins eru til
stakrar fyrirmyndar og komnir til að
skemmta sér.“
Drukkið fólk missir skynbragð
Aðspurð hvort áfengisneysla hafi
orðið til vandræða á leiksýningum
Magnús Geir Þórðarson
Þjóðleikhúsinu
Marta Nordal
Leikfélagi Akureyrar
Brynhildur Guðjónsdóttir
Borgarleikhúsinu
Sara Martí Guðmundsdóttir
Tjarnarbíó
Stórfurðulegt val
að vera drukkinn
á leiksýningu
segir Sara Martí það hafa komið
fyrir.
„Það kemur fyrir að fólk er það
ölvað að það er að tala upphátt á
miðjum sýningum sem er truflandi
fyrir aðra leikhúsgesti og þá sem eru
að koma fram. Þeir gestir sem eru
að fá sér meðan á sýningu stendur,
þurfa líka iðulega að fara oftar á kló-
sett en aðrir, sem er truflandi, sér í
lagi þegar fólk á erfitt með að gera
það hljóðlega, sem það gerir alls
ekki þegar það er ölvað,“ segir hún.
Björk Jakobsdóttir segir það
geta reynst erfitt að tækla þetta
því að sjálfsögðu eigi allir skilið að
skemmta sér og viðbrögð séu mis-
jöfn.
„En þegar viðbrögð eru orðin
algerlega hlustunarlaust ölvunar-
ástand með stanslausum frammí-
köllum og háværum samræðum, þá
verður það alveg óþolandi fyrir þá
sem eru að horfa og mjög erfitt fyrir
leikara á sviði,“ segir hún og bætir
við: „Það er líka mjög erfitt að þurfa
að stöðva sýningu til að vísa fólki út.“
Marta Nordal bendir á að drukkið
fólk eigi það til að missa skynbragð
á umhverfi sitt.
„Aðallega getur mikil áfengis-
neysla verið truflun við aðra gesti.
Þeir sem eru drukknir missa svolítið
skynbragð á umhverfi sitt, tala hátt
og jafnvel mikið meðan á sýningum
stendur. Eru kannski ráfandi úr
salnum og lengi að koma sér inn og
svo framvegis,” segir hún.
„Þetta veldur auðvitað miklum
pirringi hjá öðrum gestum sem
eru notabene búnir að borga fullt
af peningum fyrir miðana sína og
komnir til að njóta sýningarinnar
og eiga rétt á því. Svo truflar þetta
auðvitað líka leikarana á sviðinu. En
við höfum sem betur fer ekki lent í
miklum vandræðum með þetta á
síðustu árum, allt verið frekar sak-
leysislegar uppákomur sem auðvelt
hefur verið að díla við.”
Magnús Geir upplifir vandræðin
ekki meiri en áður og segir slíkt í
raun undantekningartilvik.
„Í gegnum tíðina hafa ef laust
verið einstaka tilvik þar sem ein-
hver hefur verið til vandræða en
slíkt hefur sem betur fer verið ákaf-
lega sjaldgæft og í raun alger undan-
tekningartilvik.“
Björk segir vandann ekki alveg
nýjan af nálinni en þó hafa aukist.
„Ég man eftir að hafa upplifað
einstaka ölvaða einstaklinga í hópi
áhorfenda í gegnum tíðina, þeir
eru þó teljandi á fingrum annarrar
handar. Mér finnst þetta hafa færst
aðeins í aukana.“
Brynhildur segir hömluleysið
sem þau hafi orðið vör við í Borgar-
leikhúsinu lýsa sér meðal annars
í ákveðnu skeytingarleysi í garð
annarra, gesta sem og starfsfólks
leikhússins.
„Því miður hefur það komið fyrir
að gestir á ákveðnum sýningum
hafa haft í frammi truflandi hegð-
un. Verið með frammíköll og óþarfa
ráp.“
Fólk að mæta drukkið
Í Gaflaraleikhúsinu er gestum leyft
að taka með sér drykk inn í salinn.
„Ég held að vandinn sé ekki að
það sé selt vín í hléi heldur er fólk
að mæta of drukkið í leikhúsið,“
segir Björk sem vill þó ekki ganga
svo langt að banna áfengisneyslu í
leikhúsinu. „Það væri leiðinleg for-
ræðishyggja að banna öllum leik-
húsgestum, sem langflestir eru til
fyrirmyndar, að fá sér vínglas. Það
má kannski bara minna áhorfendur
á að samræður og hávær frammí-
köll geta truflað aðra leikhúsgesti
sem og leikara á sviði. Eins vil ég
biðja áhorfendur að taka starfs-
fólki í framhúsi vel ef það biður
gesti að stilla sig aðeins. Það er ekki
án ástæðu.“
Hjá Leikfélagi Akureyrar er gest-
um ekki leyft að taka drykki með
sér inn í sal.
„Mér finnst persónulega ekki
skemmtilegt að fólk sé að dröslast
með vínglös og bjór inni í sal. Það
er ekki gert ráð fyrir glösum og
flöskum hjá sætunum, lítið pláss og
því hvergi hægt að leggja þetta frá
sér nema á gólfið sem gerir þetta
soldið sjoppulegt allt saman,“ segir
Marta.
„Við erum með hlé á f lestum
sýningum og fólk getur vökvað
sig þá. Mér finnst vera hálfgerður
ósiður að leyfa vín og bjór inni í
sölunum og ekki fara saman við
leiksýningar. Þetta kemur bara
niður á hlustun áhorfenda enda
njóta fáir leiksýninga rallhálfir,“
segir Marta og heldur áfram: „Það
að leyfa áfengisneyslu inni í sal er
frekar nýleg breyting og ég veit satt
að segja ekki af hverju hún kom til.
Kannski hreinlega til að selja meira
á barnum og auka tekjur leikhússins
af kvöldinu. Og einhverjum finnst
líklega einhver stemning í þessu
og frelsi. En þegar heildarmyndin
og hagsmunir allra eru skoðaðir þá
held ég að það sé farsælast að banna
áfengisneyslu inni í áhorfendasal.“
Settu þak á magnið
Í Tjarnarbíó má taka drykk með sér
inn í sal. „Eftir að starfsfólk hafði
orð á því í byrjun leikárs að áhorf-
endur væru sumir hverjir að kaupa
sex bjóra og setja þá undir stólana
sína, þá ákváðum við að setja þak
á magnið sem mátti kaupa í einu,“
segir Sara Martí.
Í Þjóðleikhúsinu er ekki hvatt til
þess að gestir taki drykki með sér
inn í sal að sögn Magnúsar Geirs.
„Við höfum ekki í hyggju að breyta
þessu fyrirkomulagi enda hefur það
reynst vel. Við viljum að leikhús-
gestir fái fullkomið næði til að njóta
þeirra sýninga sem boðið er upp á
og því hvetjum við frekar til þess
að gestir njóti fjölbreyttra veitinga
fyrir sýningu, í hléi og eftir sýningu
en að þeir séu að klyfja sig og fara
með drykki inn í salina.“
Í Borgarleikhúsinu hefur verið
leyft að taka drykki með sér inn í
Stóra sal í meira en áratug.
„Ef fólk er ekki búið að klára
drykkinn sinn þegar sýning hefst
þá hefur verið leyfilegt að taka hann
inn. Fæstir gera það. Tekið skal fram
að barinn er ekki opinn meðan
á sýningu stendur. Við treystum
gestum okkar og munum gera það
áfram,“ segir Brynhildur
Sara Martí segist ekki sjá neitt að
því að fólk fái sér drykk þegar það
fer á leiksýningu.
„En að vera drukkið á leiksýningu
finnst mér bara stórfurðulegt val,“
segir hún og bætir við: „Ég myndi
helst vilja að ölvun ógilti miðann.
En það er líka erfitt að biðja starfs-
fólk mitt að þurfa að vega og meta
svoleiðis aðstæður og fara í hlutverk
dyravarða, sem það er ekki, enda er
Tjarnarbíó ekki skemmtistaður,
heldur leikhús.“ n
Björk
Eiðsdóttir
bjork
@frettabladid.is
Björk Jakobsdóttir
Gaflaraleikhúsinu
26 helgin FRÉTTABLAÐIÐ 4. mARS 2023
lAUgARDAgUR