Fréttablaðið - 04.03.2023, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 04.03.2023, Blaðsíða 46
Við treyst- um gestum okkar og munum gera það áfram. Brynhildur Guðjónsdóttir Kannski er þetta uppsöfnuð spenna í landanum eftir inni- veruna. Marta Nordal Það væri leiðinleg forræðishyggja að banna öllum leikhús- gestum, sem langflestir eru til fyrirmyndar, að fá sér vínglas. Björk Jakobsdóttir Rétt eins og aðrar þjóðir hafa Íslendingar fagnað því óspart að geta um frjálst höfuð strokið eftir að hafa upplifað takmarkanir á skemmtana- haldi. Umræða um breytt hegðunar- og neyslumynstur landans hefur skotið upp kollinum og þykir sumum fagnaðarlætin fullmikil. Leikhúsin eru einn geirinn sem samkomutakmark- anir bitnuðu illa á en eru nú sannarlega í miklum blóma. En eru leikhúsgest- ir að fá sér of mikið? Við heyrðum í leikhússtjórum og spurðum þá hvort áfengisneysla leikhúsgesta væri truflandi. Meira á söngleikjum og försum Björk Jakobsdóttir, leikkona og leik- hússtjóri Gaflaraleikhússins, segist verða meira vör við að vín bæði sjá- ist og heyrist á leikhúsgestum. „Já, því miður finnst mér það. Bæði hef ég orðið vör við það sem leikkona á sviði og sem áhorfandi í leikhúsinu,“ segir hún en Björk er hluti þríeykisins á bak við verkið Bíddu bara sem hefur slegið í gegn í vetur. „Þetta á ekki bara við um leikhúsin heldur alla viðburði og ég held að f leiri skemmtikraftar taki undir það.“ Sara Martí Guðmundsdóttir, leikhússtjóri Tjarnarbíós, segir vandann ekki endilega hafa auk- ist, heldur hafa verið viðloðandi í langan tíma. „Í f lestum tilfellum er þetta ekki vandamál en það kemur fyrir á sýn- ingum þar sem er smá stuð að fólk er orðið ölvað þegar það er að mæta í leikhúsið og heldur svo áfram að dæla í sig,“ segir Sara. Marta Nordal, leikhússtjóri Leik- félags Akureyrar, er ekki frá því að eitthvað hafi breyst eftir Covid. „Án þess að hafa gert vísindalega rannsókn á þessu, þá finnst okkur eins og áfengisneysla hafi aðeins aukist eftir Covid á sumum sýn- ingum,“ segir hún. „Kannski er þetta uppsöfnuð spenna í landanum eftir inni- veruna. En þetta er auðvitað mjög háð tegund sýninga. Söngleikir og til dæmis farsar sem hafa mikið skemmtanagildi og njóta almennrar lýðhylli draga frekar að sér djamm- stemninguna. Þar eru hópar að gera sér daga- mun, stundum vinnustaðatengt, fara gjarnan út að borða á undan og svo að djamma á eftir. En á lang- f lestum öðrum leiksýningum er þetta nákvæmlega ekkert vanda- mál. Þetta er líka mismunandi eftir sýningark völdum, laugardags- kvöldin eru hressust í þessu en á virkum kvöldum svo sem fimmtu- dögum er sáralítið drukkið og flest- ir bara í sódavatninu,“ segir Marta. Magnús Geir Þórðarson Þjóðleik- hússtjóri segist ekki hafa orðið var við aukna drykkju í sínu leikhúsi. „Þetta hefur ekki verið vandamál enda höfum við ekki hvatt til þess að farið sé með drykki inn í salina heldur höfum við hvatt gesti okkar til að panta drykki fyrir sýningu sem bíða þeirra tilbúnir á fráteknu borði í hléi. Þessi þjónusta er mjög vinsæl og gestir eru þakklátir fyrir þetta fyrir- komulag. Annað fyrirkomulag er svo í Þjóðleikhúskjallaranum en þar er beinlínis gert ráð fyrir að fólk njóti veitinga við borð meðan á sýningu stendur og þar virkar það mjög vel, bæði á kvöldsýningum og í Hádegis- leikhúsinu okkar,“ segir hann. Brynhildur Guðjónsdóttir Borgar- leikhússtjóri segist hafa orðið vör við breytta hegðun, meira hömluleysi. „Hvort það stafar af víndrykkju eða ekki er ómögulegt að segja til um. Það verður að ítreka að 99,9 pró- sent gesta Borgarleikhússins eru til stakrar fyrirmyndar og komnir til að skemmta sér.“ Drukkið fólk missir skynbragð Aðspurð hvort áfengisneysla hafi orðið til vandræða á leiksýningum Magnús Geir Þórðarson Þjóðleikhúsinu Marta Nordal Leikfélagi Akureyrar Brynhildur Guðjónsdóttir Borgarleikhúsinu Sara Martí Guðmundsdóttir Tjarnarbíó Stórfurðulegt val að vera drukkinn á leiksýningu segir Sara Martí það hafa komið fyrir. „Það kemur fyrir að fólk er það ölvað að það er að tala upphátt á miðjum sýningum sem er truflandi fyrir aðra leikhúsgesti og þá sem eru að koma fram. Þeir gestir sem eru að fá sér meðan á sýningu stendur, þurfa líka iðulega að fara oftar á kló- sett en aðrir, sem er truflandi, sér í lagi þegar fólk á erfitt með að gera það hljóðlega, sem það gerir alls ekki þegar það er ölvað,“ segir hún. Björk Jakobsdóttir segir það geta reynst erfitt að tækla þetta því að sjálfsögðu eigi allir skilið að skemmta sér og viðbrögð séu mis- jöfn. „En þegar viðbrögð eru orðin algerlega hlustunarlaust ölvunar- ástand með stanslausum frammí- köllum og háværum samræðum, þá verður það alveg óþolandi fyrir þá sem eru að horfa og mjög erfitt fyrir leikara á sviði,“ segir hún og bætir við: „Það er líka mjög erfitt að þurfa að stöðva sýningu til að vísa fólki út.“ Marta Nordal bendir á að drukkið fólk eigi það til að missa skynbragð á umhverfi sitt. „Aðallega getur mikil áfengis- neysla verið truflun við aðra gesti. Þeir sem eru drukknir missa svolítið skynbragð á umhverfi sitt, tala hátt og jafnvel mikið meðan á sýningum stendur. Eru kannski ráfandi úr salnum og lengi að koma sér inn og svo framvegis,” segir hún. „Þetta veldur auðvitað miklum pirringi hjá öðrum gestum sem eru notabene búnir að borga fullt af peningum fyrir miðana sína og komnir til að njóta sýningarinnar og eiga rétt á því. Svo truflar þetta auðvitað líka leikarana á sviðinu. En við höfum sem betur fer ekki lent í miklum vandræðum með þetta á síðustu árum, allt verið frekar sak- leysislegar uppákomur sem auðvelt hefur verið að díla við.” Magnús Geir upplifir vandræðin ekki meiri en áður og segir slíkt í raun undantekningartilvik. „Í gegnum tíðina hafa ef laust verið einstaka tilvik þar sem ein- hver hefur verið til vandræða en slíkt hefur sem betur fer verið ákaf- lega sjaldgæft og í raun alger undan- tekningartilvik.“ Björk segir vandann ekki alveg nýjan af nálinni en þó hafa aukist. „Ég man eftir að hafa upplifað einstaka ölvaða einstaklinga í hópi áhorfenda í gegnum tíðina, þeir eru þó teljandi á fingrum annarrar handar. Mér finnst þetta hafa færst aðeins í aukana.“ Brynhildur segir hömluleysið sem þau hafi orðið vör við í Borgar- leikhúsinu lýsa sér meðal annars í ákveðnu skeytingarleysi í garð annarra, gesta sem og starfsfólks leikhússins. „Því miður hefur það komið fyrir að gestir á ákveðnum sýningum hafa haft í frammi truflandi hegð- un. Verið með frammíköll og óþarfa ráp.“ Fólk að mæta drukkið Í Gaflaraleikhúsinu er gestum leyft að taka með sér drykk inn í salinn. „Ég held að vandinn sé ekki að það sé selt vín í hléi heldur er fólk að mæta of drukkið í leikhúsið,“ segir Björk sem vill þó ekki ganga svo langt að banna áfengisneyslu í leikhúsinu. „Það væri leiðinleg for- ræðishyggja að banna öllum leik- húsgestum, sem langflestir eru til fyrirmyndar, að fá sér vínglas. Það má kannski bara minna áhorfendur á að samræður og hávær frammí- köll geta truflað aðra leikhúsgesti sem og leikara á sviði. Eins vil ég biðja áhorfendur að taka starfs- fólki í framhúsi vel ef það biður gesti að stilla sig aðeins. Það er ekki án ástæðu.“ Hjá Leikfélagi Akureyrar er gest- um ekki leyft að taka drykki með sér inn í sal. „Mér finnst persónulega ekki skemmtilegt að fólk sé að dröslast með vínglös og bjór inni í sal. Það er ekki gert ráð fyrir glösum og flöskum hjá sætunum, lítið pláss og því hvergi hægt að leggja þetta frá sér nema á gólfið sem gerir þetta soldið sjoppulegt allt saman,“ segir Marta. „Við erum með hlé á f lestum sýningum og fólk getur vökvað sig þá. Mér finnst vera hálfgerður ósiður að leyfa vín og bjór inni í sölunum og ekki fara saman við leiksýningar. Þetta kemur bara niður á hlustun áhorfenda enda njóta fáir leiksýninga rallhálfir,“ segir Marta og heldur áfram: „Það að leyfa áfengisneyslu inni í sal er frekar nýleg breyting og ég veit satt að segja ekki af hverju hún kom til. Kannski hreinlega til að selja meira á barnum og auka tekjur leikhússins af kvöldinu. Og einhverjum finnst líklega einhver stemning í þessu og frelsi. En þegar heildarmyndin og hagsmunir allra eru skoðaðir þá held ég að það sé farsælast að banna áfengisneyslu inni í áhorfendasal.“ Settu þak á magnið Í Tjarnarbíó má taka drykk með sér inn í sal. „Eftir að starfsfólk hafði orð á því í byrjun leikárs að áhorf- endur væru sumir hverjir að kaupa sex bjóra og setja þá undir stólana sína, þá ákváðum við að setja þak á magnið sem mátti kaupa í einu,“ segir Sara Martí. Í Þjóðleikhúsinu er ekki hvatt til þess að gestir taki drykki með sér inn í sal að sögn Magnúsar Geirs. „Við höfum ekki í hyggju að breyta þessu fyrirkomulagi enda hefur það reynst vel. Við viljum að leikhús- gestir fái fullkomið næði til að njóta þeirra sýninga sem boðið er upp á og því hvetjum við frekar til þess að gestir njóti fjölbreyttra veitinga fyrir sýningu, í hléi og eftir sýningu en að þeir séu að klyfja sig og fara með drykki inn í salina.“ Í Borgarleikhúsinu hefur verið leyft að taka drykki með sér inn í Stóra sal í meira en áratug. „Ef fólk er ekki búið að klára drykkinn sinn þegar sýning hefst þá hefur verið leyfilegt að taka hann inn. Fæstir gera það. Tekið skal fram að barinn er ekki opinn meðan á sýningu stendur. Við treystum gestum okkar og munum gera það áfram,“ segir Brynhildur Sara Martí segist ekki sjá neitt að því að fólk fái sér drykk þegar það fer á leiksýningu. „En að vera drukkið á leiksýningu finnst mér bara stórfurðulegt val,“ segir hún og bætir við: „Ég myndi helst vilja að ölvun ógilti miðann. En það er líka erfitt að biðja starfs- fólk mitt að þurfa að vega og meta svoleiðis aðstæður og fara í hlutverk dyravarða, sem það er ekki, enda er Tjarnarbíó ekki skemmtistaður, heldur leikhús.“ n Björk Eiðsdóttir bjork @frettabladid.is Björk Jakobsdóttir Gaflaraleikhúsinu 26 helgin FRÉTTABLAÐIÐ 4. mARS 2023 lAUgARDAgUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.