Fréttablaðið - 04.03.2023, Blaðsíða 64
frettabladid.is
550 5000
RitstjóRn
ritstjorn@frettabladid.is
AuglýsingAdeild
auglysingar@frettabladid.is
PRentun & dReifing
Torg ehf.
2022 - 2025
bakþankar |
Óttars
Guðmundssonar
Mér hefur lengi fundist ég vanmet-
inn af þjóð minni og bókmennta-
gagnrýnendum. Bækur mínar
seljast ekki nógu vel og mér gengur
ekkert að komast í Kiljuna eða til
Gísla Marteins. Ég fór því á fund í
„samtökum um sjálfsvorkunn“ sem
haldinn var í Breiðfirðingabúð á
dögunum. Inngönguskilyrðin eru
að vorkenna sjálfum sér og álíta að
öll vandamál séu öðrum að kenna.
Félagsmenn bera ófeimnir misrétti
heimsins á torg í fjölmiðlum.
Gunnar á Hlíðarenda var á
fundinum enda mikill þolandi.
Hann hefur komið fram í ótal
hlaðvarpsviðtölum til að segja frá
ofbeldi Hallgerðar konu sinnar. Á
ögurstundu lánaði hún honum ekki
einu sinni hárlokk í bogastrenginn.
Heiðursgestir fundarins voru
verkalýðsleiðtogarnir Ragnar Þ. og
Vilhjálmur B. Þeir höfðu í fljótræði
samið við Samtök atvinnulífsins
og þannig misst af öllu fjörinu í
kringum yfirstandandi verkföll
og verkbann. Þeir báru sig illa og
kenndu fagurgala sáttasemjara
um. „Það eru svakaleg örlög að vera
róttækur verkalýðsforingi og sjá
Eflingu stela senunni,“ sagði Ragnar
Þ. „Það er dapurlegt að þurfa að sitja
hjá í hörðustu vinnudeilum aldar-
innar,“ sagði Vilhjálmur hnugginn.
„Auðvitað langar okkur til að
klæðast gulum vestum og ganga
um göturnar með gjallarhorn.“
Forseti ASÍ afneitaði samningnum
sem hann var nýbúinn að gera.
„Við erum ekki stéttasvikarar og
styðjum verkfallsmenn á laun!“
sagði hann baráttuglaður.
Egill afi minn sleit fundinum og
kenndi foreldrum sínum um öll
sín vandræði. „Þau gerðu mig að
ofbeldismanni,“ sagði hann „Mig
langaði alltaf í læknisfræði!“ n
Fórnarlömb
dagsins
Fartölvur frá 39.990
NÝJAR VÖRUR OG TILBOÐ
MAGNAÐUR
MARS
Sparaðu
tímann
og gerðu
einfaldari
innkaup á
netto.is
©
Inter IKEA System
s B.V. 2023
Verslun opin 11-20 alla daga ̵ IKEA.is
Halló allt á
sínum stað
PANSARTAX
kassar með loki
B33�D33, H33 cm
1.990,-/stk.
PANSARTAX
kassi með loki
B16,5�D16,5, H16,5 cm
795,-
PANSARTAX
kassar með loki
B33�D33, H16,5 cm
1.490,-/stk.