Fréttablaðið - 04.03.2023, Síða 42
Það er alltaf freist-
andi að tefla saman
ljúffengum ávöxtum,
ostum, hráskinku,
hnetum og fleira góð-
gæti.
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
Fram undan í kvöld er
Söngvakeppni og þá er lag að
bjóða í gómsæta partírétti til
að njóta með fjölskyldu og
vinum.
Á sjónvarpskvöldum er gaman
að vera með bragðmikla og fjöl-
breytta stemningsrétti sem auðvelt
er að borða. Hér eru tillögur að
réttum sem eiga eftir að kitla
bragðlaukana og steinliggja í partíi
eða á sjónvarpskvöldi.
Freistandi sælkerabakkar
Upplagt er að setja saman
skemmtilegan osta- og sælkera-
bakka. Þá er fjölbreytnin ráðandi
og alltaf freistandi að tefla saman
ljúffengum ávöxtum, ostum,
hráskinku, pistasíuhnetum og
fleira góðgæti.
Á bakkanum hér á eftir er
geitaostur, hráskinka, kryddpylsa,
hrátt nautakjöt, brómber, hindber,
blæjuber, vínber, kryddkurl,
pistasíuhnetur, hrökkkex, perur,
ferskja, reyktur lax og foie gras.
Með reykta laxinum er borinn
fram sýrður rjómi sem er toppaður
með steinselju og foie gras sem
er toppað með grófum, svörtum
saltflögum. Vert er að leyfa hug-
myndafluginu að ráða hvað fer á
bakkann og svo getur hver og einn
valið sína uppáhalds osta, ávexti,
sæta bita eða hvað eina sem hann
langar til að bjóða upp á. Svo er lag
að vera með bakaðan brie-ost með
þessum sælkerabakka.
Ljúffengt andasalat
1 andalæri
Ferskt blandað salat
2-3 mandarínur
Hindber
Ferskar sprettur
1 pera
Létt dressing:
Sýður rjómi
Safi úr appelsínu
Ferskt andasalat er kærkomið
á þessum árstíma og tekur
örskamma stund að útbúa. Rífið
niður andakjöt og setið á bakka.
Setjið blandað salat með, ásamt
mandarínulaufum, hindberjum og
ferskum sprettum. Salatið er svo
toppað með perubitum og léttri
dressingu með, sýrðum rjóma með
appelsínukeim.
Bakaður brie-ostur með
mangó chutney
1 stk. brie-ostur að eigin vali
½ krukka mangó chutney
Valhnetur eftir smekk
Byrjið á að hita ofninn í 200°C.
Setjið ostinn í eldfast mót eða litla
pönnu sem má fara inn í bakar-
ofn. Setjið mangó chutney yfir
ostinn, hafið magnið eftir smekk
og toppið ostinn með nokkrum
valhnetum. Bakið í um það bil
15 mínútur eða þar til osturinn
hefur bólgnað aðeins út án þess að
opnast. Berið fram með súrdeigs-
brauði eða kexi að eigin vali.
Chili Con Carne með nýrri
útfærslu
500 g nautahakk
1 laukur, smátt skorinn
2–3 hvítlaukar (þessir í körfunni,
geiralausir), smátt skornir
2 stk. ferskt rautt chili smátt skorið
1 tsk. chiliduft
1 tsk. paprikuduft
1 tsk. cumin
300 ml soðið vatn
1 msk. nautakraftur
1 dós niðurskornir tómatar
2 msk. tómatpúrra
½ tsk. oreganó
1 dós rauðar nýrnabaunir
Salt og pipar eftir smekk
Meðlæti
Tortillabátar eða mini tortillu
Sýrður rjómi
Nachos-flögur
Rifinn mozzarellaostur
Byrjið á að steikja lauk við lágan
hita á djúpri pönnu eða í potti
þar til hann er orðinn mjúkur.
Bætið þá hvítlauk, fersku chili,
chilidufti, paprikudufti og cumin
saman við.
Steikið nautahakkið á pönnu
við háan hita og brúnið það.
Partíréttir sem steinliggja með Söngvakeppninni
Hér er ljúf-
fengt, litríkt
og brakandi
ferskt andasalat
með sumar-
ívafi, toppað
með frískandi
appelsínudress-
ingu.
Leyfum hugmyndafluginu að ráða
hvaða krásir fara á veislubakkann. Bakaður brie-ostur með mangó chutney er sælkeraréttur sem fáir standast.
Chili con Carne
er veislu-
réttur sem hittir
alltaf í mark og
þessi nýstár-
lega útgáfa er
einfaldlega
ómótstæðileg.
MYNDIR/AÐSENDAR
Freistandi bakki
með ostum,
kexi, berjum,
ávöxtum, hnet-
um, hráskinku,
reyktum lax og
foie gras.
Setjið hakkið síðan saman við
laukinn og hitt hráefnið. Bætið við
nautateningnum ásamt 300 ml af
heitu vatni (getið forsoðið vatnið
í tekatli), hellið því út á pönnuna/
pottinn ásamt tómötum, tómat-
púrru og oreganó. Látið malla í um
það bil 20 mínútur.
Bætið þá nýrnabaunum saman
við og látið malla í 10 mínútur
til viðbótar. Saltið og piprið eftir
smekk og bætið við chilikryddi ef
þurfa þykir. Mikilvægt er að leyfa
réttinum að standa í 10 mínútur
áður en hann er borinn fram.
Þegar rétturinn er tilbúinn
er lag að setja eina til tvær
meðalstórar ausur af blöndunni
í tortillabáta eða á mini tortilla-
pönnukökur, toppa síðan með
sýrðum rjóma, rifnum osti og
nachos-f lögum.
Raðið á bretti eða bakka og
berið fram. Gott er að hafa sýrðan
rjóma, rifinn ost og nach os- f lögur
til hliðar svo hver og einn geti
bætt við meðlæti eftir smekk. n
8 kynningarblað A L LT 4. mars 2023 LAUGARDAGUR