Veiðimaðurinn - 01.12.1972, Blaðsíða 14

Veiðimaðurinn - 01.12.1972, Blaðsíða 14
og vélasala, Fossberg, er hann lét laxana hugsa á enska tungu í vísu þeirri sem hér fer á eftir. Tilefnið var það, að strandað hafði togari að nafni „Linconshire“ út af Gróttu, að ég held 1934, var honum komið á flot og hann dreginn inn undir Elliðavog en þar sökk hann. Þá kvað Fossberg: „Laxamir sem lifa í sjó lítið segja en hugsa þó: What is that is Linconshire there is Linconshire everywhere?" Snúum okkur þá að því hvað fornsögur okkar segja um laxveiðar. Fiskirækt í ám eða vötnum er nú ofar- lega á baugi hérlendis og hefur verið það sem betur fer síðasta áratuginn. Framsýnir bændur og einstaka veiðimenn höfðu þó löngu fyrr komið auga á þetta mikla vel- ferðarmál til aukningar lax- og silungsstofni í ám og vötnum á Íslandi. Á þetta minnist ég hér þar eð ég held að hugsun og athug- un um fiskirækt hafi leynst með þjóðinni gegnum aldimar, þótt lítið yrði um fram- kvæmdir af eðlilegum ástæðum á þeim tím- um er þjóðin var á barmi tortímingar af völdum harðréttis á flestum sviðum. Landnámsmennirnir hugsuðu einnig um fiskirækt og framkvæmdu hana í verki. í Þorskfirðingasögu (bls. 340) segir svo um Ketilbjörn og Þóri Oddsson: „Þeir tóku fiska ór vatninu ok báru í læk þann, er þar er nær, ok fæddust þeir þar. Sá heitir nú Ali- fiskalækr. Þar var veiði mikil....“ í árbók Ferðafélags íslands 1959, um Barðastrandarsýslu, saminni af Jóhanni Skaptasyni, sýslumanni, segir svo: „Vatnið (þ. e. Berufjarðarvatn) er í miðju sundinu (þ. e. láglendissund norður af botni Beru- fjarðar). í það rennur m. a. Alifiskalækur úr smávötnum, sem eru í friðsælum daldrög- um í norðanverðum Hofstaðahálsi. I lækinn voru fluttir silungar í fyrstu tíð íslands- byggðar, og hefst þar með fiskirækt hér á landi“ — Berufjörður, sem hér er getið um, er hluti Reykhólasveitarinnar, og takmark- ar hann austurhlið Reykjaness en Þorska- fjörður að vestan. — Laxveiði hefur verið víða bæði í Noregi og á Islandi. Til munu vera tiltölulega ná- kvæm ákvæði í Gulaþingslögum um þess- ar veiðar, en þau lög ásamt Frostaþingslög- unum voru þær fvrirmyndir, sem Ulfljótur hafði með sér til íslands og okkar fvrstu lög voru samin uppúr. Frá þessum laga- ákvæðum munu komnar reglur og ákvæði t. d. í Grágás og í aðrar lagabækur á mið- öldum, þar sem t. d. fiskveiðar voru bann- aðar á helgidögum, en voru þó leyfðar á sérstökum helgidögum og sem stendur orð- rétt „ef landgangur verðr at fiskum. Þá er landgangur at, ef menn höggva höggjámum (ífæru) eða taka höndum. Eigi skal net hafa né öngla,“ segir Grágás. Þetta þýðir að menn máttu aðeins taka fiskinn með höndunum og er auðsætt að fiskmergðin hefur verið mikil. Þá voru einnig ákvæði um það í Grágás að gefa skyldi hluta af helgidagaveiði. Til eru skráðar heimildir um veiðireglur á Englandi og Skotlandi á miðöldum. Hafði Eðalráður II bannað sölu á smáfiski árið 996. Einnig setti Melkólfur II Skotakonung- ur lög um laxveiðitíma og Robert konung- ur III gaf út fyrirskipun árið 1471, um að ekki mætti veiða lax á friðunartíma og varðaði það dauðarefsingu. Líklegt er að fommönnum hafi verið kunnugt um að ernir klófestu laxa og drápu 12 VEIÐIMAÐURINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.