Veiðimaðurinn - 01.12.1972, Side 15

Veiðimaðurinn - 01.12.1972, Side 15
20 p. hœngur úr Laxá í Aðaldal. Ungur verðandi veiðimaður horfir hugfanginn á konung fiskanna. — Ljósm. R. H. þá sér til matar. Fögur er sú lýsing sem höfundur Völuspár dregur upp, þegar jörð iðjagræn rís úr ægi eftir ragnarök, en þar segir: „falla forsar flýgur örn yfir sá er á fjalli fiska veiðir.“ Mönnum hefur því verið kunn sú stað- reynd á landnámsöld og fyrir þann tíma, að ernir veiða fiska, væntanlega bæði laxa og silunga, úr fossum og fjallavötnum. í heiðnum sið og Asatrúnni er víða get- ið laxa, svo sem bezt sést í Eddunni. í Þrymskviðu segir frá heimsókn Þórs dul- búins í gervi Freyju til Þryms þursa, sem stolið hafði hamri hans. Segir þar að Þór var boðið til veizlu: „Ö1 var fram borit einn át oxa, átta laxa ... drakk Sifjar ver sáld þrjú mjaðar.“ Vert er að veita eftirtekt að lax er fram borinn sem veizlumatur, og hraustlega eða lítt kvenlega tekur Þór til matar síns er VEIÐIMAÐURINN 13

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.