Veiðimaðurinn - 01.12.1972, Síða 16
hann innbyrðir einn uxa, átta laxa, líklega
þá mjög væna, og þrjár tunnur eða ámur
öls.
Þá er sagan um Loka er segir að hann
hafi brugðið sér í laxlíki og falist í Frán-
angursfossi, en náðist þar. Frásögnin er ná-
kvæm lýsing á netaveiði til foma og er í
Snorra-Eddu og hljóðar svo:
„Oft um daga brá hann sér í laxlíki
og falsk þá þar, sem heitir Fránangursfors.
Þá hugsaði hann fyrir sér, hverja vél æsir
mundu finna, at taka hann í forsinum. En
er hann sat í húsum, tók hann língarn ok
reið á ræksna, sem net er síðan gjört, en
eldr brann fyrir honum. Þá sá hann, at
æsir áttu skamt til hans, ok hafði Óðinn sét
ór Hlíðskjálfinni, hvar hann var. Hann
hljóp þegar upp ok út í ána, en kast-
aði netinu fram á eldinn. En er æsir
koma til hússins, þá gekk sá fyrst inn er
allra var vitrastur, er Kvasir heitir, ok er
hann sá á eldinum fölskvana, er netið hafði
bmnnit, þá skildi hann, at þat myndi vél
vera til at taka fiska, ok sagði ásunum. Því
næst tóku þeir, ok gerðu net, eptir því sem
þeir sá á fölskvanum at Loki hafði gjört.
Ok er búit var netit, þá fara æsir til árinn-
ar ok kasta neti í forsinn. Helt Þórr öðmm
nethálsi, en öðrum heldu allir æsir ok drógu
netit. En Loki fór fyrir ok leggst niður á
milli steina tveggja. Drógu þeir netit yfir
hann ok kenndu, að kykt var fyrir, ok fara
í annat sinn upp undir forsinn ok kasta
út netinu ok binda við svá þungt, að eigi
skyldi undir mega fara. Ferr þá Loki fyrir
netinu, en er hann sér, at skamt er til
sævar, þá hleypur hann yfir þinulinn ok
rennir upp í forsinn. Nú sá æsirnir hvar
hann fór, fara enn upp til forsins ok skipta
liðinu í tvá staði, en Þórr veðr þá eptir
miðri ánni, ok fara svá út til sævar. En er
Loki sér tvá kosti, var þat lífsháski at
hlaupa á sæinn, en hinn var annar, at hlaupa
enn yfir netit, ok þat gerði hann, hljóp sem
snarast yfir netþinulinn. Þórr greip eftir
honum, svá at staðar nam höndin við sporð-
inn, ok er fyrir þá sök laxinn apturmjór. Nú
var Loki tekinn griðlauss ...“
Goðsögn þessi segir frá að menn ríði net
og veiðiaðferðin er lík og verið hefur gegn-
um aldirnar, að draga netið með straumn-
um niður á grynningar.
Vafalaust hefur lax verið verzlunarvara
í Noregi eins og frásögn í Biskupasögum
getur um, þegar Magnús konungur lét
bjóða Árna Þorlákssyni (Staða-Áma), bisk-
upi (1269—1298) er staddur var í Björgvin,
að láta flytja í skip hans, eins og stendur
í sögunni, „laxa og skreiðar."
í Laxdælasögu er getið um laxveiðar á-
samt öðrum góðum landkostum í þeim
fagra dal. Meðal annars segir þar frá því
þegar Björn austræni og Helgi bjólan
reyndu að fá föður sinn Ketil flatnef með
sér til íslands og freistuðu hans með mikilli
laxveiði hér á landi. Þótt ekki gini hann við
þessu agni og hann flyttist aldrei hingað,
Veiðihús Laxárfélagsins við Laxamýri.
14
VEIÐIMAÐURINN