Veiðimaðurinn - 01.12.1972, Síða 30

Veiðimaðurinn - 01.12.1972, Síða 30
ar á tanganum er farinn,“ kallaði ég til Sigga. „Það er skrýtið," segir Siggi. „Það er rétt eins og hann hafi gufað upp. Eg sé hann heldur ekki neins staðar á sandinum." Þokan var nú óðum að færast lengra út til hafs og það var tekið að sjá í heiðan him- ininn milli skýjanna. Við gleymdum nú aft- ur manninum á tanganum. Það þarf ekki að orðlengja það meir, að þama drógum við hann rétt eins og þorsk, og auðvitað á loðnuna. Allt skínandi fallegar bleikjur. Það var orðið áliðið, er við gátum slitið okkur frá þessu. Þegar við gengum austur sandinn fórum við aftur að tala um manninn, sem hafði bjargað fvrir okkur deginum. Nú áttaði ég mig á því hvað það var, sem ég ekki hafði ekki skilið fyrr í dag, er við hittum mann- inn fyrst. Maðurinn ávarpaði okkur áður en hann hafði litið við. Hvernig hafði hann vitað af okkur þarna, þar eð hann sneri í okkur bakinu. Nú dettur Sigga líka í hug, hvernig hann hefði getað vitað, hvað hann var að hugsa. Hann hafði einmitt talað til Sigga og sagzt vita, að hann væri að hugsa um það, hvemig hann færi að því að fá fiskinn til þess að taka. Óljós grunur lædd- ist inn í vitund okkar. Við ákváðum því að koma við á bænum, sem stendur rétt ofan við vatnið og vita hvort einhver þekkti ekki þennan undarlega mann. Við vildum líka gjarnan þakka fyrir veiðileyfið. Bóndinn stóð sjálfur úti á hlaði og heils- aði okkur. Kvaðst hann hafa séð til ferða okkar og spurði, hvort við vildum ekki borða með sér kvöldverð. Það ætti einmitt að fara að borða núna. Við þáðum þetta ágæta boð hans. Við matborðið hóf ég máls á því, hver hann væri þessi í mosagrænu úlpunni með barðastóra hattinn, sem hefði verið að veiða þarna fram frá í dag. Ég sé að bónda bregður. „Það hefur auðvitað verið niður á stóra tanganum." Ég jánka því. Bóndinn yftir brúnum og lítur stómm augum á konu sína, sem er að taka saman diskana á borðinu. „Þarna sérðu kona, hvort ég hefi ekki sagt satt.“ Hann snýr sér að mér, alvarlegur á svip og segir: „Það er enginn vafi drengir, lýsingin kemur heim, já og svo tanginn, það var einmitt eftirlætis staðurinn hans. Maðurinn, sem þið hittuð þarna framfrá í dag er dáinn. Já, dáinn fyrir meira en ári. Ég hef sjálfur séð hann nokkr- um sinnum síðan, en konan hefur ekki vilj- að trúa mér. Hann var mikill veiðimaður. Kom alltaf á hverju sumri og dvaldi þá oft hér hjá okkur lengi í einu. Trygglyndur var hann og reyndist okkur alltaf vel. Hann elskaði þetta umhverfi. í hans augum varð allt svo fagurt. Og þá held ég nú að hann hafi elskað vatnið, ja, og fiskinn. Hann kunni betur að meta fegurð náttúrunnar heldur en við héma.“ Við kvöddum að loknum kvöldverði og héldum til bílsins. Ég minnist þess ekki, að við segðum neitt á heimleiðinni. Þetta var allt svo nýtt fyrir okkur og eitthvað svo fjarstæðukennt. „Jæja, svona var nú þetta,“ segir Valdi og lítur á mennina sem sitja á legubekknum. „Skrýtið, finnst ykkur það ekki?“ „Það er svo margt skrýtið í kýrhausnum,“ segir ann- ar mannanna á legubekknum. Kannski þetta hafi bara verið ofsjónir, sem eiga sér einhverja skýringu, sem við ekki vitum hver er. Hinn maðurinn, sem situr á legu- bekknum, lítur upp og segir: „Ef við göng- um út frá því að líf sé að loknu þessu, ja því skyldi maður þá ekki halda áfram að veiða handan við landamærin." Sá rauð- 28 VEIÐIMAÐURINN

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.