Veiðimaðurinn - 01.12.1972, Síða 35
fyrra, eins og fyrr greinir. Síðan kemur
Langá, með um 2500. Þar hafa ýmsir aðilar,
aðallega þó einkaaðilar, ráðizt í fiskvegar-
framkvæmdir, vatnsmiðlun og ræktun, og
niðurstaðan er sú, að laxveiði þar hefur um
sexfaldast, síðan 1962. Þverá í Borgarfirði,
Grímsá og Laxá í Kjós gáfu og allar yfir
2000 laxa í fvrra.
J
Hlutdeild Stangaveiðifélags Reykjavíkur
í stangaveiðinni hérlendis mun nú vera um
fjórðungur, og hefur félagið yfir að ráða
nærri 60 laxastöngum á dag, þegar stanga-
fjöldi verður mestur á sumri komanda. En
laxveiðiárnar, sem félagið hefur nú á leigu
eru tíu. Víða á félagið veiðihús, og hyggst
nú koma upp nýju húsi við Grímsá, er taka
skal í notkun á sumri komanda.
Á þeim rúmlega þrjátíu árum, sem SVFR
hefur starfað, hefur orðið mikil breyting á
félagsstarfseminni. Við hverja á er nú starf-
andi ámefnd, sem vinnur tímafrek sjálfboða-
störf. Kennsla er í fluguköstum í Laugar-
dalshöllinni á hverjum sunnudagsmorgni,
yfir veturinn, en almenn félagsstarfsemi fer
fram í félagsheimili því, sem félagið á og
tók í notkun á síðastliðnu ári að Háaleitis-
braut 68 og þar eru einnig skrifstofur fé-
lagsins til húsa.
En mesta breytingin, sem orðið hefur að
undanförnu, er sú ákvörðun félagsins að
selja veiðileyfi til erlendra veiðimanna. Um
þetta hefur nokkuð verið ritað og rætt að
undanfömu, og spurningin er þá: Hvers
vegna hefir S\7FR lagt út á þessa braut?
Stjórnum SVFR hefur um alllangt skeið
verið ljóst, að sú mikla hækkun, sem orðið
hefur á leiguverði íslenzkra laxveiðiáa,
myndi leiða til þess, að félagið yrði að beina
starfsemi sinni inn á nýjar brautir. Ýmsir
innlendir aðilar, aðrir en stangaveiðifélög,
Frá Morritt / Gladding
International, Englandi
INTREPID
SUPERLINE
„Hin kjörna lína fyrir öll spinn-
hjól. Hún er sterk og þjál, hefir
hlutlausan lit og mjög hagstætt
verð.
SUPER TWIN HJOLIN
hafa alla æskilegustu eiginleika
góðra spinnhjóla.“
HJOL
STENGUR
LÍNUR
SPORTVÖRUGERÐIN
HALLDÓR ERLENDSSON
Mávahlíð 41 - Simi 18382
hafa um árabil tekið á leigu ár, en endur-
selt þær síðan að meira eða minna leyti er-
lendis, við því verði, sem þar hefur náðzt
bezt.
Til þess að geta haldið áfram að starfa
VEIÐIMAÐURINN
33