Veiðimaðurinn - 01.12.1972, Page 40

Veiðimaðurinn - 01.12.1972, Page 40
Þar sem fiskstofninn er í jafnvœgi við nœringarframboð vatnsins er bleikjan feit og falleg, eins þessi mynd frá Hólmavatni ber með sér. staðurinn á náttúrulegu útbreiðslusvæði urriðans, því hann var hvorki til á Græn- landi eða í Norður-Ameríku, en til Ameríku var hann fluttur frá Evrópu árið 1883. Utlit urriðans er mjög margbreytilegt eftir því í hvaða umhverfi hann lifir. Við tölum um sjóurriða, eða sjóbirting, vatna- urriða og lækjarsilung, allir mjög frábrugðn- ir hverjir öðrum hvað útlit snertir og vaxt- arhraða, en allt sama tegundin, urriði, (salmo trutta L.). Þó tegundin sé sú sama, er þó rétt að nota hin ýmsu heiti, sem gefa til kynna hvar fiskurinn heldur sig og hvernig hann hagar sér, aðeins að hafa það hugfast, að 38 hér er samkvæmt tegundaskilgreiningunni um eina tegund að ræða. Það er til dæmis algengt að sjóurriðaseiði hafi verið sett í fisklaus vötn með góðum árangri, og eins er það víst, að afkomendur vatnaurriða, sem aldrei hefur í sjó komið gangi til sjáv- ar og verði að sjóbirtingi. Urriði hrygnir alltaf í rennandi vatni, og lækir eða lindir verða því að vera í tengslum við þau stöðu- vötn, sem hann býr í. Hann hrygnir venju- legast seint í september og október og vel- ur sér þá stað á malar- og steinbotni, þar sem líklegt er að ekki verði hnjask eða um- rót yfir veturinn. Hrygnan grefur holu í mölina með sporðinum, og þegar því er VEIÐIMAÐURINN

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.