Veiðimaðurinn - 01.12.1972, Page 43
Frá Selá i Vopnafirði. Þekktur, islenzkur veiðimaður er að landa 18 p. laxi. Eflaust
þekkja ýmsir manninn. Hann er líka kunnur fyrir að taka góðar myndir, en konan
hans kann lika nokkuð fyrir sér í listinni og hún tók þessa. Hver er maðurinn?
árnar, líkt og hún gerir á Grænlandi enn í
dag. Síðan settist hún að í jökullónum og
stöðuvötnum, sem mynduðust þegar ísfarg-
inu létti af landinu og það fór að rísa úr sæ.
Að bleikjan er fiskur, sem bezt þrífst í
köldu loftslagi má marka af því, að hún
hefur sína mestu útbreiðslu á okkar breidd-
argráðum, og allt norður til Grænlands og
Svalbarða. Hún hefur lægri kjörhita en urr-
iði og lax, og þegar bleikjuvötn hitna um
of á sumrin, leitar hún í kaldari ár og læki,
sem í vatnið renna. — Þótt bleikjan sé al-
gengur fiskur í norðlægum löndum, er hún
sá laxfiskanna, sem minnzt hefur verið
rannsökuð, og því margt í fari hennar, sem
enn er mönnum ráðgáta. Ahugi vísinda-
manna á bleikjunni hefur samt vaxið á síð-
ustu árum og henni er nú mun meiri gaum-
ur gefinn en fyrr.
Eitt hið merkilegsta og torráðnasta við
hana er það, að í sama vatni virðast oft
vera mörg afbrigði eða undirtegundir með
mismunandi útlit og hegðun, án þess þó að
hægt sé að finna öruggar og óvéfengjanleg-
ar staðreyndir, sem leiða í Ijós að um fleiri
en eina tegund sé að ræða.
VEIÐIMAÐURINN
41