Veiðimaðurinn - 01.12.1972, Qupperneq 45

Veiðimaðurinn - 01.12.1972, Qupperneq 45
Enskur lávarður kom eitt sinn að veiði- þjóf, sem hann þekkti, við ána sína. Þjóf- urinn var svo niðursokkinn í verk sitt, eða öllu heldur undirbúning þess, að hann varð komumanns ekki var. Lávarðinum datt þá í hug að gaman gæti verið að sjá hvern- ig þjófurinn færi að og hvort hann næði laxi. Hann lagðist því niður skammt frá, þar sem hann gat leynzt, en séð þó vel til árinnar. Veiðiþjófurinn hafði háf með löngu skafti. Bakkinn var ekki hár, en djúpt við hann, og beint fyrir neðan þar sem þjófurinn var lágu oftast nokkrir laxar. Lávarðurinn þurfti ekki að bíða lengi eftir að sjá þjófinn stinga háfnum niður í ána, en hann kom upp með hann aftur tóm- an. Hann reyndi aftur og í þriðja og fjórða sinn, en árangurslaust. Þá brast hann þolin- mæði og hreytti út úr sér stundarhátt: „Þið eruð varir um ykkur, bölvaðir lordarnir vkkar!“ J Gerðar hafa verið tilraunir með að taka seiði undan sjóbleikju og sleppa þeim í ár allmiklu sunnar en þau voru tekin, en þá hefur svo brugðið við, að þau ganga ekki í sjó. Er því nær að halda að umhverfið skapi sjógönguáhugann, en ekki eiginleikar í fiskinum sjálfum. Bleikjan er mikilvægur fiskur fyrir okkur íslendinga og þessi dæmi, sem minnst hefur verið á, ættu að gefa nokkra hugmynd um þau verkefni, sem enn eru óunnin. Þá hló lávarðurinn innilega með sjálfum sér, og um leið datt honum í hug að gera þrjótnum dálíitð bilt við. Hann greip ífær- una, henti til þjófsins og miðari svo vel, að hún kom niður fast við hlið hans. Þjófurinn hrökk í kút við dynkinn, skimaði í allar átt- ir, og sá engan, en svo rak hann augun í ífæruna og varð svo mikið um, að hann stakkst fram af bakkanum á hausinn í ána. Lávarðurinn gekk fram á bakkann, tók ífæruna, dró hana úr slíðrum og rétti krók- inn til þjófsins þar sem hann var að busla við bakkann. En þetta var meira en hann þoldi, því að nú leið yfir hann og hann fór að sökkva. Lávarðurinn lagðist þá á bakk- ann, teygði sig niður og gat krækt ífærunni í buxnarass þjófsins. En þar með var þraut- in ekki leyst. Hann gat ekki landað honum þama og hafði því ekki önnur ráð en að draga hann á rassinum góðan spöl niður með bakkanum, þangað sem lægra var og grvnnra. Og loks rankaði djöfsi við sér, en það stóð ekki lengi, því að þegar hann sá framan í lávarðinn, leið yfir hann aftur. „Það er verst, ef ég þarf að fara að gera lífgunartilraunir á mannskrattanum,“ hugs- aði lávarðurinn, „ég kann þær ekki. En guð hjálpi mér, ef hann drepst hér í höndunum á mér! Jæja ég verð, hvað sem öðru líður, að draga hann á land og nú kippti hann í, en heldur fast og reif út úr buxunum! En sem betur fór var þá orðið gmnnt á þjófnum og aðstaðan til löndunar svo miklu betri, að það var auðvelt að draga hann upp á þurrt. Þá opnaði hann fljótlega aug- un, saup hveljur og horfði skelfingu lost- inn á lífgjafa sinn. Lávarðurinn sagði ekki orð, horfði að- eins framan í hann á móti. Þannig leið nokkur stund. Þjófurinn virtist eiga erfitt VEIÐIMAÐURIMN 43
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.