Veiðimaðurinn - 01.12.1972, Síða 47
Þátttaka var allgóð í flugulengdarköstun-
um, eða 10 auk tveggja drengja, báðir 10
ára. Enginn gaf sig fram í beitulengdarköst-
unum, og er það miður, en væntanlega
verður hægt að keppa í þeirri grein næst.
Enda þótt haustveðráttan hafi verið held-
ur risjótt, var veður gott, hægur andvari,
þurrt en sólarlaust.
Keppnisskilyrði voru því góð, en árangur
ur þriggja efstu manna í hvorri grein, var
sem hér segir:
Flugulengdarköst með framþungri línu
(forward taper)
1. Haraldur Lúðvíksson 28,90 metrar
2. Ólafur Sigurjónsson 26,90 —
3. Sveinn Ingvarsson 25,40 —
Flugulengdarköst með skotlínu.
1. Haraldur Lúðvíksson 31,09 metrar
2. Ólafur Sigurjónsson 30,67 —
3. Finnbogi Sigmundsson 28,16 —
Þá var árangur beggja drengjanna ágæt-
ur með skotlínu. Sigurður Guðmundsson
kastaði 24,89 metra en Aðalsteinn Svavars-
son kastaði 21 metra. Ætti þetta að vera
hvatning til unglinga um að æfa sig meira
með flugu og jafnframt að taka þátt í næsta
móti. Tilvalið tækifæri til æfinga er í Laug-
ardalshöllinni á sunnudagsmorgnum í vetur.
Á þessu móti kom það greinilega fram,
sem ég raunar þóttist vita áður, að venju-
legir stangaveiðimenn kasta ekki ýkja mik-
ið lengra með skotlínu heldur en með góðri
framþungri línu (forward taper). Munurinn
var almennt um 2—3 metrar. Gerir sá
lengdarmismunur sjaldan neitt útslag í
veiði, en framþungar línur hafa ótvíræða
kosti fram yfir skotlínu, sérstaklega þar
sem ávallt er mikil hætta á að skotlínugim-
ið flækist og allt stendur svo fast þegar
sízt skyldi, þ. e. þegar fiskur gripur fluguna.
Ég vil svo þakka stjórn og félagsmönn-
um í Stangaveiðifélagi Hafnarfjarðar fyrir
góðan undirbúning og aðstoð og síðast en
ekki sízt fyrir góða þátttöku, sem gerði
mót þetta mögulegt. Félagar úr Kastklúbbi
Reykjavíkur önnuðust dómarastörf og að-
stoðuðu á annan hátt við mótið af sínum
velþekkta áhuga.
Félagar í Stangaveiðifélagi Hafnarfjarðar
hafa bent á, að æskilegt væri að hvert fé-
lag héldi, árlega, innanfélags veiðimanna-
kastmót. Þetta er ágæt hugmynd og ættu
Hafnfirðingar að ríða á vaðið og halda slíkt
mót næsta vor jafnframt því, sem ég vil
beina þessari hugmynd til annarra stanga-
veiðifélaga. Beztu menn í hverju móti gætu
svo tekið þátt í veiðimannakastmóti Lands-
sambands stangaveiðifélaga.
Hákon Jóhannsson.
LEIÐRÉTTING.
Hr. ritstjóri.
í grein minni í ,,Áhugamál og viðhorf
stangaveiðimanna,“ sem birtist í síðasta tbl.
Veiðimannsins, nr. 89, er meinleg villa á bls.
15, sem á rót sína að rekja til handritsins.
I greininni stendur:
„Með lögum nr. 5/1886 voru landsleigu-
bálkur Jónsb. og viðaukalög afnumin. Þá
var lax friðaður 3 mánuði o. s. frv.,“ en á
að vera. „Þá var lax friðaður nema 3 mánuði
fyrir veiðum í sjó, ám og vötnum á hverju
sumri og vikufriðun ákveðin 36 klst.“
Jón Finnsson.
VEIÐIMAÐURINN
45