Veiðimaðurinn - 01.12.1972, Page 48
HALLDDR ERLENDSSON:
'A
Œ
Œ
LlI
>
I
Með flugu — —. Ýmsir hafa sér til
ánægju lesið bókina Með flugu í höfðinu,
sem Stefán Jónsson fréttamaður skráði. En
eins og höfundur tekur sjálfur fram í bók-
inni, þá orka þar „mörg atriði tvímælis.“
Um það atriði er ég mjög sammála höfundi,
og mér finnst mjög miður að þegar um
fræðslu á að vera að ræða, þá sé „tvímæl-
um“ gerð skil aðeins frá alveg einhliða
sjónarmiði, þ. e. a. s. okkar eigin persónu-
lega, og án þess að geta annarra útbreiddra
skoðana eða óska, — en slíkt vill víst verða
algeng fallgryfja okkar allra. Hér mun ég
að sinni aðeins drepa á tvö atriði úr bók
Stefáns.-------Hið fyrra tel ég byggja á
algjörri rökleysu, en hið síðara vera mjög
slæma „fræðslu“ vegna þröng-einhliða fram-
setningar.-------Eg tel rétt að fram komi
hér, að sennilega er ekki rétt að skrá firr-
ur bókarinnar um tæknileg atriði eingöngu
á reikning Stefáns. Hann mun hafa talið sig
tryggja tæknihlið máls síns með því, að
hann hafði trú á, að einn þeirra fjórmenn-
inga, sem hann nefnir í bók sinni sem ráðu-
nauta sína, hefði til að bera tæknilega
þekkingu um þessi atriði. En svo fór um
sjóferð þá.
Stefán segir um hringlykkjur á flugu-
stangir, að þær séu miklu endingabetri og
haldi línunni betur frá stönginni en snák-
lykkjur. Þetta tel ég vera tvímælalaust rétt
og vera atriði til mikilla bóta. En þau um-
mæli Stefáns, að hringlykkjur séu það
þvngri en snáklykkjur að um muni sem
1—2 línunúmerum, tel ég vera hreina rök-
leysu. Hringlvkkjusett á flugustöng vegur
1—2 g meira en sæmilegt snáklvkkjusett.
En þar sem lvkkjurnar dreifast á alla stöng-
ina og þær þyngstu eru neðstar, þá gefur
auga leið að sú þyngdaraukning verkar
ekkert svipað og álíka mikil þungaaukn-
ing á línunni, sem orkar beint á blátopp
stangarinnar. Að segja slíkt, tel ég allt að
því viðlíka rökvillu og segja að 2ja g þyng-
ing hólks á miðri stöng verki álíka á stöng-
ina og 2ja g þynging flugulínunnar.
Hitt er svo auðvitað annað mál, að
óþarflega þung topplykkja hefur veruleg
áhrif á burðarlitla flugustöng, en það er
önnur saga, þótt skvld sé.---------í þessu
sambandi telur Stefán að hringlykkjur beri
ofurliði „léttar“ flugustangir. Eg held að
síðan Stefán skráði þetta hafi hann skipt
um skoðun á þessu atriði, t. d. hvað varðar
8V2 feta létta (svo sem 4 oz. = ca. 120 g)
flugustöng, sem kastar gjarnan fyrirhafnar-
lítið línum no. 6 til 8. Ef þetta „hald“ mitt
reynist rangt, þá ætla ég að biðja Stefán
að ræða um þetta, eða þá önnur atriði, í
þessum þætti í næsta blaði, en eins og menn
vita, þá hefur Stefán verið skemmtilega
leitandi, rabbandi og ritandi um þessi mál
undangengin ár, og eins og fvrr hefur kom-
ið fram, þá tel ég að margir veiðimenn hafi
áhuga á að ýmsu slíku og þvíumlíku sé
komið á framfæri.
Um flugulínur kemur í ljós í bók Stefáns,
að hann kýs aðallega að nota framþunga,
46
VEIÐIMAÐURINN