Veiðimaðurinn - 01.12.1972, Qupperneq 50

Veiðimaðurinn - 01.12.1972, Qupperneq 50
bókstaflega yfirfull. Fyrstu aðgerðir hlutu því að verða þær að grisja bleikjustofninn og voru keypt smáriðin net í þeim tilgangi. Þetta gekk vel, og 15. maí voru um 8300 bleikjur komnar á land. Stærð þeirra var 20—24 cm og enginn var meira en 200 g á þvngd. Einnig veiddust um 530 urriðar. Megnið af aflanum var selt. 20. september hófust síðan veiðar að nýju, og veiddust í haust um 7300 bleikjur og 500 urriðar. Alls hafa því veiðst í netin 15.600 bleikjur og 1030 urriðar, samtals 1764 kg. Merkingar sem gerðar voru á bleikjunni sýna, að þegar netaveiðin hófst í vor, þá hafa verið 30—50 þúsund bleikjur af veiðanlegri stærð í vatninu. Þetta er geigvænleg tala og þar á ofan bætist svo ungbleikjan, sem ekki er enn farin að ánetjast, og allur urriðinn. Veiðin í vatninu hefur sl. sjö ár verið 2320 urriðar og 290 bleikjur að meðaltali á ári (eingöngu stangveiði), og því hvergi nærri nóg til þess að vega upp á móti fjölg- uninni. Ætlunin er að halda þessum fiskirækt- araðgerðum áfram eins lengi og nauðsynlegt þykir og ætti árangur að fara að sýna sig eftir 2—3 ár, og þá þannig, að bæði bleikj- an og urriðinn auki vaxtarhraðann og verði feitari en nú er. Varla þarf að taka fram að fvlgst verður nákvæmlega með þeim breytingum, sem fiskstofnar vatnsins taka, þannig að ekki verði t. d. hætta á rányrkju eða ofveiði. Jón Kristjánsson. „Mér brá illa við“ sagði Jón Kristjáns- son, fiskifræðingur, „þegar ég heyrði að TIL LESENDA. Eg mæltist til þess við ykkur í síðasta blaði, að þið senduð mér efni. Ymsir hafa brugðist vel við þeirri ósk. En meira má, ef duga skal. Ætlunin er að næsta blað komi út í lok marzmánaðar n. k. og svo ann- að síðast í júní. Til þess að þetta megi tak- ast, þarf ég á mjög mikilli aðstoð frá ykkur að halda. Ég heiti því á alla, sem eitthvað hafa fram að færa, að senda mér greinar og sögur eða hvert annað efni, sem þið teljið eiga hér heima. — Og myndir með greinum eru mjög kærkomnar líka. Ritstj. bleikja hefði veiðzt í Veiðivötnum á Land- mannaafrétt.“ Prívat og persónulega er Jóni síður en svo illa við bleikjuna, en í næsta blaði eigum við von á pistli frá Jóni um þetta efni. Fleiri pistlar bíða næsta blaðs, svo sem um það hvort rétt sé og skynsam- legt að opna laxi gönguleið úr á eins og t. d. Elliðaánum upp vatn eins og Elliða- vatn. Einnig um örlæti og--------? okkar veiði- og fiskiræktarmanna, varðandi það að stríðala fiskiendur, svartbak og skarf á laxa- og silungsseiðum og hrognum. Enn- fremur verður væntanlega drepið á hinar almennu umræður um það, hvort Islending- ar séu rúmlega 200 þús. að tölu, eða hvort þeir eru 5 þús. eða innan við það, þ. e. a. s. raunverulegir íslendingar, sem eiga ein- hvern hlut að Islandi og almennum gögn- um þess og gæðum. H. E. 48 VEIÐIMAÐURINN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.