Veiðimaðurinn - 01.12.1986, Side 5

Veiðimaðurinn - 01.12.1986, Side 5
TT SVFR Veiðimaðurinn Málgagn stangveiðimanna 42. árg. Nr. 122 Desember 1986 Ritstjórar: Víglundur Möller og Magnús Ólafsson Uppsetning og útlit: Magnús Ólafsson og Rafn Hafnfjörð Útgefandi: Stangaveiðifélag Reykjavíkur Afgreiðsla: Háaleitisbraut 68, 105 Reykjavik, sími 68 6050 Kemur út í apríl, ágúst og desember Eftirprentun: Aðeins með leyfi útgefanda Litgreining: Prentmyndastofan Filmuvinna: Prentþjónustan Setning og prentun kápu: LITBRÁ-offset Prentun innihalds: Umbúðamiðstöðin Verð: Kr. 170 Heilabrot í skammdeginu Sumarið 1986 er liðið, vetur genginn í garð og skammdegismyrkrið scekir á með hverjum deginum sem líður. Þetta sumar fcer góðan vitnisburð hjá veðurfrceðingum og landsmönnum yfirleitt. Það byrjaði að sönnu með nokkrum kalsa, en úr því rcettist fljótlega, og góða hlýindakafla fengu menn í öllum landshlutum, hvort sem þeir komu nú alls staðar á þeim tíma, sem þeirra var helzt óskað. Þar hefur íslenzkum náttúruöflum löngum reynzt erfitt að gera öllum til hcefis, en segja mcetti mér að þau hefðu gert bezt við þá á Norðausturlandi, eins og oft endrancer. Ekki brugðust spár fiskifrceðinganna um laxagöngurnar þetta sumarið, frekar en endrancer, er óhcett að segja, því að þeir reynast jafnan sannspáir í þessu efni. Og eftir því sem mér hefur skilizt gera þeir ráð fyrir góðum laxheimtum a. m. k. tvö næstu sumur, og er það okkur stangveiðimönnum mikið tilhlökkunarefni. En ekki veit ég hverju veðurfrceðingarnir treysta sér til að spá um tíðarfarið svo langt fram í tímann. Þar getur, eins og við vitum, margt gerzt, sem erfitt er að sjá fyrir. Og veðráttan hefur sem kunnugt er alltaf mikil áhrif á veiði bceði í sjó og vötnum. Það er t. d. talið víst, að þurrkarnir hér suðvestanlands s. I. sumar hafi valdið því, að minna veiddist í sumum ánum en efni stóðu til sökum þess, hve vatnslitlar þcer voru. Sjávarhitinn hefur einnig sitt að segja. Við eigum ekki víst að hann verði eins hár og hann var í sumar. Eitthvað minnir mig að ég hafi heyrt um að búast megi við að sjór fari heldur kólnandi ncestu árin. A tuskilyrði laxins í hafinu geta líka verið breytileg og haft sín áhrif ásamt tíðarfarinu, á vöxt laxins og hvernig hann skilar sér upp í árnar. Þrátt fyrir stórauknar vísindalegar rannsóknir er enn margt á huldu um líflaxins 3 VEIÐIMAÐURINN

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.