Veiðimaðurinn - 01.12.1986, Page 15
O FERSKVATNSELDI
• HAFBEIT
A STRANDELDI
A SJÓKVÍAR
Mynd 1. Helstu eldis- og hafbeitarstöðvar á Islandi.
Dæmi um þetta eru Hólastöðin í Hjalta-
dal og Fiskræktarstöð Vesturlands í
Borgarfirði. í þeim tilfellum er heppilegra
að frárennsli stöðvanna sé í vatnsmiklar ár
sem ekki hafa mikla laxaframleiðslu. Stað-
setning Hólastöðvarinnar er að þessu leyti
eins og best verður kosið, hvað varðar
lífrænan úrgang sem fer í fremur snauða á.
Þá er ekki teljandi laxaframleiðsla í
Hjaltadalsá. Öðru máli gegnir um Fisk-
ræktarstöð Vesturlands sem hefur frá-
rennsli í Hvítá í Borgarfirði, sem er
móðurá eins gjöfulasta laxveiðisvæðis
landsins. Hinsvegar er laxaseiða-
framleiðsla í Hvítá ofan til mun minm en í
bergvatnsánum sem í hana renna og smit-
og mengunarhætta frá stöðinni því minni
heldur en ef hún væri staðsett við einhverja
bergvatnsána.
Hafbeit
Auk stöðva, sem staðsettar eru uppi í
landi, er oft rætt um hættu sem veiðiám hér
á landi gæti stafað af hafbeitarstöðvum og
stöðvum sem ala lax í sjókvíum. Hafbeit
hefur verið stunduð hér á landi allt frá
stofnun Laxeldisstöðvar ríkisins upp úr
1960. I fyrstu var framleiðslan tiltölulega
lítil, miðað við laxveiðina, en á síðasta ári
var rúmlega þriðjungur af laxveiðinni úr
hafbeit.
Með mikilli aukningu í gönguseiða-
13
VEIÐIMAÐURINN