Veiðimaðurinn - 01.12.1986, Page 22
við ekki verða eftirbátar annarra í þeim
efnum. Það er því vel til fundið að ýta nú úr
vör og hefja róðurinn fyrir þessari þörfu
viðvörun með aðalefni þessa fundar að
leiðarljósi, sem ber yfirskriftina: „Hugs-
anleg áhrif eldisfiska á náttúrulega stofna. “
Munu þeir Arni Isaksson veiðimála-
stjóri og Logi Jónsson lífeðlisfræðingur
flytja hér framsöguerindi og fundarmönn-
um gefast kostur á því að leggja þar orð í
belg.
Eg efast ekki um það, að á þessum fundi
muni margt fróðlegt koma fram um það
grundvallaratriði stangveiðinnar, að okkur
takist að viðhalda og jafnvel efla fisk-
stofna í ám og vötnum landsins, okkur
sjálfum og ekki síður afkomendum okkar
til aukinnar farsældar og lífsfyllingar.
Eg vona að umræður allar verði mál-
efnalegar, gagnlegar og heiðarlegar.
36. aðalfundur Landssambands stang-
arveiðifélaga er settur.
Skýrsla formanns
Því næst flutti varaformaður skýrslu
Gylfa Pálssonar um störf stjórnar L.S. á
liðnu starfsári, og fara hér á eftir nokkrir
kaflar úr henni, en ýmsu sleppt, m.a.
greinargerð um Veiðimannaráðstefnu L.S.
og Veiðidag fjölskyldunnar, sem áður hef-
ur verið getið hér í blaðinu:
Góðir félagar og gestir.
A fyrsta fundi stjórnar L.S. skiptu
stjórnarmenn með sér verkum. Formaður
er Gylfi Pálsson, varaformaður Rafn
Hafnfjörð, ritari Rósar Eggertsson, gjald-
keri Hjörleifur Gunnarsson og meðstjórn-
andi Sigurður Pálsson. Varamenn eru
Garðar Þórhallsson, Matthías Einarsson
og Sigurður Sveinsson. Stjórnin hélt 16
bókaða fundi auk óformlegra vinnufunda.
Tillögu sem kom fram á aðalfundinum
frá Stangveiðifélagi Hafnarfjarðar, þar
20
sem varað var við mengunarhættu af fiski-
eldi í vötnum sem þegar er veiði í, var
send hlutaðeigandi aðilum sem eru land-
búnaðarráðherra, veiðimálastjóri, veiði-
málanefnd, náttúruverndarráð, L.V.,
L.F.H. og formenn allra þingflokka og
virtust þeir sem við var rætt sammála um
að slík aðgerð væri varhugaverð og óráðleg.
18. nóvember var sameiginlegur fundur
með stjórn L. V. og síðar um daginn veiði-
málastjóra og ýmissa starfsmanna hans.
Við veiðiréttareigendur var eins og venju-
lega rætt um verð veiðileyfa og sýndist sitt
hverjum og kom fram hjá stjórnarmönnum
L.V. að þeirra væri rétturinn og valdið að
ráðstafa búhlunnindum sínum að vild og í
rauninni væru stangveiðifélögin ónauð-
synlegur milliliður eins og einn þeirra
komst að orði. Meira væri upp úr útlend-
ingum að hafa en landanum og að því leyti
væru þeir eftirsóknarverðari viðskiptavin-
ir, þótt áður hafi þeir látið að því liggja að
innlendir veiðimenn væru hinn tryggi
kjarni. Ljóst er að margir veiðiréttareig-
endur við hinar eftirsóttari ár reka veiði-
leyfasölu sem hörð viðskipti frá ári til árs
þótt aðrir fari varlegar í sakirnar og með
meiri fyrirhyggju.
Ræddar voru nýlegar fregnir um að
merktur lax frá Islandi hefði veiðst við
Grænland og Færeyjar. Þarna var um að
ræða fiska úr Selá og Vesturdalsá í Vopna-
fírði, og Miðfjarðará. Ennfremur var rætt
um úthafsveiðar almennt og hugsanlega
hættu af aukinni hafbeit með tilliti til erfð-
amengunar. Starfsmenn Veiðimálastofn-
unar sýndu kvikmynd um þverrandi veiði
í skoskum ám, „Salmon in a Sea of Trou-
ble“.
í kjölfar þessa fundar var send út sam-
eiginleg ályktun L.S., L.V. og Landssam-
bands fiskeldis- og hafbeitarstöðva þar
sem segir að þessi sambönd skori á ríkis-
VEIÐIMAÐURINN