Veiðimaðurinn - 01.12.1986, Page 33
Halldór Þórðarson með 13 p hrygnu og Ólafur H. Ólafsson með 20 p hœnginn og 15 p hrygnuna af Suður■
eyrinni 27. júlí 1986. Ljósm. Jimmy Sjöland.
Jimmy náði henni í háfmn eftir um 20
mínútna viðureign. Hún reyndist 15 pund,
bústin hrygna og spegilfögur.
Það var um það bil klukkutíma seinna,
að ég var að veiða mig niður Suðureyrina
og Jimmy stóð við hlið mér. Við röbbuðum
um heima og geima meðan flugulínan rann
yfír svæðið. Þegar við vorum komnir mjög
neðarlega, þar sem straumurinn myndar
smá V og áin eins og dettur niður í lítinn
bolla, sáum við báðir lax koma upp í yfír-
borðið og grípa fluguna. Eg gaf honum
tíma áður en ég tók á honum og þóttist
viss um að hafa fest vel í honum. Við óðum
í land og upp á grasbakkann og Jimmy náði
í háfínn.
Þessi lax hagaði sér allt öðruvísi en sá
fyrri, lá djúpt í strengnum og utarlega. Hjá
honum virtist skynsemin ráða, engin ærsl
til að þreyta sjálfan sig. Ég fann að þessi lax
var ekki minni en sá fyrri, sennilega hæng-
ur. Þessi viðureign var ekki jafn viðburða-
rík og sú fyrri, en tók ívið lengri tíma. Þetta
reyndist vera einn af þessum vitru hæng-
um, sem notaði strauminn og lá djúpt, það
söng í línunni við átakið.
Það var helst löndunin sem var við-
burðarík, því að það reyndist ekki létt verk
fyrir Jimmy að koma háfnum undir þessa
stóru skepnu á grunna vatninu við landið,
en það tókst að lokum og við fögnuðum
báðir, brosandi út að eyrum.
Þetta reyndist 20 punda hængur, 98 sm
langur og vel þykkur. Stærsti lax sem ég
hef veitt til þessa. Veiðigyðjan hafði verið
örlát þennan morgun.
Ég þakka Islandiu ekki síður þessa veiði
en veiðigyðjunni, hún er svo sannarlega
búin að vinna sér sess í mínu fluguboxi það
sem eftir er ævinnar.
VEIÐIMAÐURINN
31