Veiðimaðurinn - 01.12.1986, Side 35
Æðarfossar í
Laxá í Aðaldal
(Sjá mynd til vinstri)
Eitt tignarlegasta veiðisvæðið í Laxá í
Þingeyjarsýslu er við Æðarfossa í landi
Laxamýrar. Þar fellur áin fram af bjarg-
brúnum á mikilfenglegan hátt milli kletta
og hólma. Það er hrikaleg sjón í bland við
fallegan og litríkan gróður.
Rafn Hafnfjörð tók þessa mynd af svæð-
inu frá skemmtilegu sjónarhorni úr flug-
vél. Þarna eru óvenjumargir og góðir veiði-
staðir, hvort sem veitt er á maðk, spón eða
flugu. Fluguveiði með Portlandsbragði er
jafnvel orðin vinsæl í ólgum og stríðum
strengjum neðan fossanna.
Fyrir ofan bjargbrúnina að austan er
Kríuskerið, neðar Töppin og að vestan
Háasker. Töppin milli stóru fossanna heit-
ir Peningatöpp. Hólmarnir neðar heita
Kletthólmi, Fosshólmi og Kistuhólmi
(eða Laxhólmi), þar sem kisturnar voru
staðsettar fyrir 1941. Efst í fjarska má
greina Mýrarkvíslina og vestur að Heiðar-
enda.
Æðarfossasvæðið er ákaflega eftirsótt af
veiðimönnum, en þarna eru margir gjöful-
ustu veiðistaðirnir í Laxá. Náttúran er
sífellt á iði þarna og beljandi áin hefur
undanfarin ár brotið mikið úr klettinum
við Stórafoss. Laxamýrarbændur hafa ætíð
lagt þunga áherslu á að veiðimenn fari var-
lega við laxveiðar við Æðarfossa. Mörgum
reynist erfitt að veiða þarna, enda þarf að
nota báta eða vaða eins og vætt er, oft við
erfíðar aðstæður. En það er kannski ein-
mitt þess vegna sem veiðarnar eru svo
spennandi.
Orri Vigfússon
Vetrarstarf S.V.F.R.
1986-1987
AÐ HÁALEITISBRAUT 68, 2. HÆÐ
7. nóv. Opið hús
9. jan. Opið hús
22. jan. Rabbkvöld
6. feb. Árshátíð
19. feb. Rabbkvöld
6. mars Opið hús
19. mars Rabbkvöld
3. apríl Opið hús
7. apríl Rabbkvöld
Húsið er ætíð opnað kl. 8.30
SKEMMTINEFNDIN
VEIÐIMAÐURINN
33