Veiðimaðurinn - 01.12.1986, Page 40
2581 lax, eins og um getur á öðrum stað
hér í blaðinu.
í þessu sambandi skal þess og getið, að
í 83. hefti Veiðimannsins er grein um
Miðfjarðará eftir þá Kristján Sigurmunds-
son og Magnús Olafsson. Þar er fjallað
nokkuð um árnar hverja um sig, umhverfi
þeirra og getið allmargra veiðistaða af
þeim um 150, sem þeir segja að nafn-
greindir séu. Allt veiðisvæðið er um 60 km
að lengd. Einnig er þar getið meðalveiði á
5 ára tímabilum þau 25 ár, sem þá voru
liðin frá því að áin var friðuð fyrir neta-
veiði. Bezta 5 ára tímabilið á þessum 25
árum var árin 1958-1962, þá var meðal-
veiðin um 1700 laxar.
Með hliðsjón af því sem sagt hefur verið
hér á undan kann einhver að líta svo á að
það sé að bera í bakkafullan lækinn að
skrifa enn um á þessa, þar sem svo mikið
sé þegar um hana til í fyrri árgöngum
blaðsins, en hvatinn að því, að ég fór að
taka þetta saman var sá góði árangur, sem
orðið hefur af seiðasleppingum á vatna-
svæðið og á er minnzt hér í upphafi grein-
arinnar. Talið er að um þriðjungur veið-
innar 1985 hafí verið af þeim uppruna
kominn. Það er því sízt ofmælt í grein
Magnúsar F. Jónssonar, að þarna séu „hin
beztu skilyrði til uppeldis fyrir lax“, og
reyndar talar hann um sjóbirtinginn líka,
en um veiði á honum hafa blaðinu engar
fréttir borizt. En vitað er, að af einhverjum
ástæðum hefur veiði á þeim stofni hrakað
mjög á síðari árum víðast hvar, hvað sem
því veldur.
38
VEIÐIMAÐURINN