Veiðimaðurinn - 01.12.1986, Qupperneq 41
Björn Jóhannesson
Um „laxalykt“
Þegar ég, ásamt félögum mínum, málara-
meisturunum Marinó og Kristni Guð-
mundssonum, vann að tilraun með flutn-
ing á bleiklaxi frá Alaska til Islands á árun-
um 1965 og 19661 , gengum við frá til-
raunapolli í Straumsvíkurlónum, þar sem
seiðum var haldið þar til þeim var sleppt
til sjávar. í mynni Pollsins var komið fyrir
gildru, þannig að laxinn gat gengið í Poll-
inn, en komst ekki þaðan út.
Athuganir okkar höfðu sýnt, að laxa-
seiði silfruðust eða smoltuðu í 4°C jafn-
heitu vatni þessa tilraunapolls og gengu til
sjávar2. Af ástæðum, sem ekki verða rakt-
ar hér, var það fyrst sumarið 1980, að um
100 sjógönguseiðum var sleppt úr körfu í
tilraunapollinum þann 15. júní, eftir 55
daga dvöl í körfunni.
Mér var kunnugt um tilgátu norska
vísindamannsins Nordeng, sem í megin-
atriðum boðar, að laxar gangi ekki í fersk-
vatn nema þar séu fyrir laxaseiði, er gefa
frá sér svokallaða „pheromones11. A al-
þýðlegu máli er talað um að laxinn gefi
frá sér eða skapi „laxalykt“.
Vegna þessarar tilgátu komum við fé-
lagarnir fyrir sömu körfunni sumarið 1981
í tilraunapollinum og héldum í henni um
50 laxaseiðum sumarlangt. Hér um bil öll
þessi seiði lifðu af án fóðurs í 84 daga í
hinu kalda vatni. Og 6. september 1981
skilaði sér 4 Zi punds hrygna í tilrauna-
pollinn og lagðist í skugga körfunnar3.
Raunar vissum við þá ekki hvort hrygnan
myndi hafa gengið í Pollinn, hefðu þar
ekki verið fyrir laxaseiði. En neðangreind-
Dr. Björn Jóhannesson er verkfraðingur og
jarðvegsfraðingur. Hann hefur skrifað
greinar um Atlantshafslaxinn í blöð og
tímarit, m.a. Veiðimanninn, sem birtir hér
tvar greinar, sem Björn hefur sent blaðinu.
í bréfi til ritstjóra, sem fylgdi fyrri grein-
inni, segir Björn m.a.:,,... égerþess nasta
viss, að hvergi í löndunum við norðanvert
Atlantshaf séu til staðar svo ótrúlega góðar
aðstaður til að kanna sannleiksgildi,,laxa-
lyktar“-kenningar Nordeng og í Straums-
vík. Auk þess munu naumast hafa skapast
annars staðar svo fyrirhafnarlitlar og
kostnaðarlausar, ncestum sjálfgerðar, að-
stceður til að kanna sannleiksgildi þessarar
kenningar“.
VEIÐIMAÐURINN
39