Veiðimaðurinn - 01.12.1986, Side 48
mettaður í Evrópu. Það er athyglisvert, að
frystur Kyrrahafslax (einkum coho eða
silfurlax) berst í talsverðum mæli á
Evrópumarkað. Þannig flytja Frakkar -
mesta laxneysluþjóð Evrópu - inn um
20.000 tonn af Kyrrahafslaxi á ári, en um
5.000 tonn af norskum eldislaxi. Eru
Frakkar stærstu viðskiptavinir Norð-
manna á þessu sviði. Kyrrahafslaxinn er
eflaust talsvert ódýrari en norski laxinn, en
er talinn ágætt hráefni og hið mesta lost-
æti eftir hæfílega franska matreiðslumeð-
ferð.
I Bandaríkjunum hefur markaður fyrir
ferskan lax farið nokkuð ört vaxandi, en
vegna lækkunar dollarans miðað við
Evrópugjaldmiðla er þessi markaður ekki
eins hagstæður fyrir Evrópu og hann var
fyrir um ári síðan. Samkeppni fer þar
harðnandi vegna aukins framboðs á fersk-
um laxi framleiddum í Kanada, Chile,
Japan, og væntanlega einnig frá Færeyjum
og Shetlandseyjum, til viðbótar tiltölulega
miklum norskum innflutningi. Markaður-
inn í Bandaríkjunum heldur eflaust áfram
að vaxa, en verð í dollurum mun jafnframt
fara lækkandi vegna aukins framboðs.
Þeir sem besta hafa framleiðslu- og flutn-
ingsaðstöðu verða ráðandi á þessum mark-
aði, en hinir sem verr eru settir heltast úr
lestinni.
Ég tel einsætt, að Islendingar muni
aldrei ná umtalsverðri fótfestu á erlendum
laxamörkuðum þar til þeir geta boðið fram
mikið magn af fyrsta flokks frystum haf-
beitarlaxi, enda verði þá verð hans hag-
stceðara en á öðrnm laxi. Vegna yfirburða-
aðstöðu af náttúrunnar hálfu fyrir fram-
leiðslu sjógönguseiða og hagstæðrar lax-
veiðilöggjafar á Islandi er ástæða til bjart-
sýni um þróun þessa sérsviðs laxafram-
leiðslu. Þó mun slík þróun að hluta til háð
því, að tekið verði að mestu eða öllu leyti
fyrir laxveiðar Færeyinga og Grænlend-
inga á úthafí.
Mér sýnist borin von, að Islendingar
muni nokkurn tíma verða samkeppnis-
færir um matfiskframleiðslu á laxi við
þjóðir sem hafa að öllu leyti stórum betri
aðstöðu til slíkrar framleiðslu í sjókvíum
og um flutning og sölu á ferskum laxi á
heimsmarkaði, sbr. framangreindar at-
hugasemdir um matfiskeldi.
Fæst í næstu sportvöruverslun
Nýju Trimax
línurnar eru léttari,
grennri og sterkari.
Einkaumbéð
I. Gjtfðnumdsson & co hf.
Símar: 24020/11999.
46
VEIÐIMAÐURINN