Veiðimaðurinn - 01.12.1986, Page 60
Hættuleg
soðning
Það kann ekki alltaf, og raunar sjaldnast,
góðri lukku að stýra, þegar maðurinn tekur
það ráð, að breyta lögmálum náttúrunnar í
hagnaðarskyni og ætlar sér jafnframt með
því að betrumbæta hennar aðferðir.
Glöggt dæmi um þetta var frétt, sem
barst hingað frá Noregi fyrir nokkru og
skýrt var frá í Morgunblaðinu. Þar var sagt
frá ráði, sem fundið hefur verið til þess að
koma í veg fyrir sjúkdóma í eldislaxi. í
þeim tilgangi er laxi í norskum og fínnsk-
um eldisstöðvum gefið fúkkalyf og eitur-
efnið neguvon. I Noregi er þó bannað að
gefa honum þessi efni þremur mánuðum
fyrir slátrun.
Nú bar það við, að kona nokkur frá
Bergen, sem var í heimsókn á Þelamörk,
kom þar að sem flutningabíl með eldislax
frá vesturströnd Noregs, á leið til Finn-
lands, hafði hlekkzt á og lá á hliðinni utan
vegarins. Bílstjórinn bauð fólki, sem þarna
átti leið um, að fá sér í soðið laxa, sem lágu
spriklandi þarna við vegarbrúnina. Áður-
nefnd kona þáði þetta boð. Um fleiri er
ekki getið í fréttinni. Þegar hún hafði borð-
að laxinn brá svo við að hún varð skyndi-
lega fárveik og var lögð inn á sjúkrahús.
Þar lá hún í hálft ár, en þjáist ennþá af lifr-
arsjúkdómi og bólgum. Þegar hún veiktist
missti hún allan mátt í báðum handleggj-
um, en hefur nú fengið aftur mátt í hægri
hendina, en er enn máttvana að hluta í
þeirri vinstri. Læknar konunnar segja að
þessi þungbæri sjúkdómur hennar sé of-
næmi gegn fúkkalyfjunum og eiturefninu
í laxinum. Vísindamenn á hafrannsóknar-
stofnuninni í Bergen segja, að notkun
þessara efna sé „taumlaus ogeftirlitslaus“,
og þeir halda því einnig fram, að dýralækn-
ar sem gefi út lyfseðla á þessi efni, fylgist
ekki með notkun þeirra. Efnunum sé „dælt
út í tonnatali“ í norskum eldisstöðvum,
sem eru um 700 talsins, og fiskveiðar í
nágrenni stöðvanna séu varasamar, að ekki
sé talað um að næla sér í soðningu úr þeim.
Loks er þess getið, að við 25 fiskeldis-
stöðvar í Austurvoll, í nágrenni Bergen,
hafi verið sett upp aðvörunarspjöld þar
sem varað er við hættunni af fiskstuldi og
veiðum í nágrenni stöðvanna. Á þeim orð-
um lauk fréttinni.
Vonandi er að ekkert þessu líkt eigi eftir
að koma fyrir hjá okkur Islendingum.
Nógu mörg eru samt skakkaföllin sem, að
því er virðist, geta átt sér stað af öðrum
ástæðum í þessum atvinnuvegi, sem marg-
ir binda miklar hagnaðarvonir við, ef allt
gengur að óskum.
V.M.
Astvaldur enn
Islandsmeistari
Á íslandsmótinu í stangarköstum 1986,
sem haldið var í blíðskaparveðri á gamla
kastvellinum í Laugardal í Reykjavík 6. og
13. septemer s.l., tryggði Ástvaldur Jóns-
son sér Islandsmeistaratitilinn einu sinni
enn, en hann hefur borið sigur úr býtum á
þessu móti mörg undanfarin ár.
Keppt var í sjö greinum og sigraði Ást-
valdur í fimm þeirra. Hann kastaði flugu
tvíhendis 65,03 m, 18 g lóði með spinn-
hjóli 98,21 m, 18 g lóði með rúlluhjóli
67,21 m, og varð hlutskarpastur í hitti-
köstum með 7,5 g lóði af spinnhjóli og 18 g
lóði af rúlluhjóli.
Gísli R. Guðmundsson sigraði í flugu-
kasti einhendis, kastaði 50,33 m, og í
lengdarkasti með 7,5 g lóði af spinnhjóli,
60,14 m.
58
VEIÐIMAÐURINN