Veiðimaðurinn - 01.12.1986, Page 62
út úr lélegum laxveiðisumrum hér á landi.
Samkvæmt ofansögðu eru þessar tólf ár
með mesta veiði á stöng sumarið 1986:
1. Laxá í Aðaldal .............. 2800
2. Blanda og Svartá ........... 2206
3. Þverá ...................... 2138
4. Laxá í Dölum ............... 1907
5. Laxá á Ásum ................ 1863
6. Grímsá og Tunguá ........... 1826
7. Langá ...................... 1770
8. Miðfjarðará ................ 1722
9. Hofsá ...................... 1680
10. Laxá í Leirársveit .......... 1613
11. Vatnsdalsá .................. 1560
12. Víðidalsá og Fitjaá ......... 1550
1986 varð
annað bezta
stangveiðisumarið
Stangveiðin sumarið 1986 varð 48.000 lax-
ar. Aðeins veiðisumarið mikla 1978 gaf
meira, eða 52.700 laxa.
Veiðin byrjaði vel strax. Góðar laxa-
göngur voru í árnar og komu snemma. Var
góð veiði í flestum ám fram eftir sumri, en
þá fór vatnsleysi að segja til sín í mörgum
ám, sem eru viðkvæmar fyrir slíku.
Urkoma var mjög lítil sunnan- og vest-
anlands, eins og sumarið 1985. Og fyrir
norðan og austan, þar sem sumarið 1985
var úrkomusamt, voru nú einnig langvar-
andi þurrkar. Þar við bættist, að óvenju-
mikil og langvarandi hlýindi í júní og fyrr
leystu upp snjó að mestu til fjalla, svo að
lítill sem enginn varaforði varð þar eftir til
að hressa upp á vatnið í ánum, þegar kom
fram á veiðitímann. Ekki er ósennilegt, að
nýtt met hefði verið sett í stangveiði hér á
landi, ef rignt hefði duglega þegar leið á
sumarið.
En stangveiðimenn gátu yfírleitt verið
ánægðir með sinn hlut, enda jókst veiðin
um rúm 40% frá árinu áður, sem þótti
þokkalegt veiðisumar, og þær ár sem ekki
tóku þátt í sveiflunni upp á við sumarið
1985, bættu nú flestar ráð sitt verulega.
Þannig jókst veiðin í Víðidalsá og Fitjaá
um 117% frá árinu áður, á Blöndusvæðinu
um 101%, í Laxá í Leirársveit um 88% og í
Vatnsdalsá um 82%. Þá héldu árnar norð-
austanlands áfram að bæta sig eftir lægð-
ina miklu þar. Er ástandið þar nú orðið
eðlilegt og í Hofsá í Vopnafirði varð met-
veiði s.l. sumar. Af öðrum ám sem slógu
sín fyrri met má nefna Laxá í Dölum,
Vatnsdalsá, Haffjarðará og Hrútafjarðará.
Ein er sú á, sem sker sig úr fyrir lélegan
árangur, en það er Stóra-Laxá í Hreppum.
Enda segja kunnugir, að vatnið við ósinn
hjá Iðu hafi vart verið meira en í skóvarp,
og ætti afar léleg veiði í ánni nú tvö ár í
röð að knýja á um lagfæringar við ósinn.
Eins og áður segir komu góðar laxa-
göngur í árnar s.l. sumar, bæði smálax og
vænn lax, eins og spáð hafði verið. Tals-
vert veiddist af 20 punda laxi og þar yfir í
ýmsum ám, meira en um nokkurt árabil. I
nokkrum ám veiddust nú laxar af þessari
stærð í fyrsta sinn í mörg ár. Einn lax náði
30 pundum, í Víðidalsá, eins og getið er um
hér á næstu síðu.
Þess má að lokum geta, að í netin feng-
ust um 19.000 laxar, sem er 46% aukning
frá fyrra ári. Ur hafbeit fengust um 24.000
laxar.
Hlutur stangveiðinnar í veiðinni í ánum
er um 72% eins og árið áður, en netin tóku
28%.
M.Ó.
60
VEIÐIMAÐURINN