Arkitektúr og skipulag - 01.04.1992, Page 11

Arkitektúr og skipulag - 01.04.1992, Page 11
G E S T U R O L A F S S O N Undanfarin ár hefur umrœða um byggingarlist á íslandi fœrst í aukana og er það vel. Þeir sem hafa getað slitið sig frá þeirri lífseigu skoðun að engin list jafnist á við ritlistina eru að byrja að gera sér grein fyrir því, sem aðrar menningarþjóðir hafa vitað í þúsundir ára, að byggingarlist lœtur menn ekki í friði. Bók er alltaf hœgt að loka. Það er líka hœgt að slökkva bœði á útvarpinu og sjónvarpinu og forðast konserta, leikhús og málaralist ef menn vilja. Byggingarlistin er hins vegar hluti af daglegu um- hverfi okkar, sem enginn getur umflúið. Hugsanlegt er líka að í framtíðinni fari einhverjir sem ekki láta sér nœgja svarið „af því bara" að velta fyrir sér hinum fjölmörgu hliðum þessarar listgreinar og fari að leita einhverra svara við því sem er að gerast. Byggingarlistin hefur það nefnilega fram yfir margar aðrar listgreinar að þar er bœði óhœtt og nauðsynlegt að spyrja spurn- ingarinnar „hvers vegna" þegar horfst er í augu við innsta kjarna þeirrar hugmyndafrœði sem rœðurbyggðuumhverfi. Þeirrarspurningareraldrei of oft spurt. Hvers vegna þurfum við íslendingar Þjóðarbókhlöðu þegar upplýsingar leika á öldum Ijósvakans heimshorna á milli inn í tölvur og sjónvörp á hverju heimili? Hvers vegna fjölgar slysum stöðugt, þegar aldrei hefur verið til meiri þekking á því hvernig á að byggja öruggt umhverfi?Hversvegnaþurfumviðráðhúsátímum valddreifingar og samdráttar? Hvers vegna er byggingarlist samtímans jafnflókin og sundurleit og raun ber vitni þegar okkur hefur sjaldan legið jafnmikiðáaðfara vel með peninga? Hversvegna eru vínbúðir Áfengisverslunar ríkisins að verða eins og lager á járnsmíðaverkstceði? Ef við œttum vel menntaða fjölmiðlamenn þá myndu þeir spyrja þessara spurninga og margra fleiri og hugsanlega gcetum við þá líka lœrt eitthvað af því sem er að gerast í kringum okkur. Þegar Robert Venturi lagði grunninn að Post- módernismanum fyrir meira en aldarfjórðungi með bóksinni „ComplexityandContradictionin Archi- tecture,, þá benti hann á að það að móta umhverfi fyrir fólk verður ekki leyst með einfaldri formúlu. „Less is a bore." Við getum án efa bceði lœrt margt af fortíðinni og nýjum hugmyndum og straumum, ef við gleymum ekki í hita leiksins að kryfja þessi mál til mergjar. Hvað sem ismum dagsins líður þá heldur vindurinn á íslandi áfram að blása og sólin að skína og alltaf þurfum við að velja byggingum stað í því landslagi sem skapar- inn hefur eftirlátið okkur. ■ 9

x

Arkitektúr og skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.