Arkitektúr og skipulag - 01.04.1992, Page 20

Arkitektúr og skipulag - 01.04.1992, Page 20
 ~ a Colosseum byggt á árunum 72 - 80. Þetta er agað og formfast verk lagað að sínu hlutverki. Byggt á þeirrar tíðar þekkingu á burðarþolsfræði og með ríkri tilfinningu fyrir grunnþáttum byggingarlistarinnar, Ijósi og skuggum. og Eiffelturninn í París. Menn héldu heimssýningar til þess að sýna hvers þeir voru megnugir og undu glaðir við sitt, margir en þó ekki allir. I Englandi risu upp menn eins og Ebeneser Howard 1850 - 1928 og William Morris 1834 - 1896 og fóru að tala um að líf verksmiðjuþrælsins væri ekki mannsæmandi og að í raun væri allt að fara til fjandans og það yrði að koma manns- andanum aftur til vegs og virðingar. Morris, sem var af efnafólki, stofnsetti fyrirtæki hönnuða og listamanna og hannaði glervöru, teppi og húsgögn. Einnig stofnsetti hann útgáfufyrirtækið Kelmscott Press sem hafði mikil áhrif á prentun og útgáfu. I framhaldi af hans vinnu kom Arts & Crafts hreyfingin í Englandi sem barðist fyrir endur- vakningu handverksins og virðingu fyrir efnunum, sem unnið var með, og kom á félagi til sýninga á Arts & Crafts, 1882. Englendingum varð þó nokkuð ágengt og þar kom að prússneska stjórnin sendi einn mann, arki- tekt Muthesius, til dvalar og „smekknjósna” í Englandi. Hann bjó þar í sex ár. Eftir heimkomu Muthesiusar var að tillögum hans farið að breyta listiðnaðarskólum Þjóðverja. Komu þar til margir Musteri Antoninusar og Fástínu byggt 141. Því var síðar breytt í kirkju og barokkhliðin sem gnæfir yfir á myndinni var byggð 1601. Hér er kominn framandi hlutur inn á Forum Romanum án tengsla við fortíðina, en þeirrar tíðar „stíll” þegar hún var reist.

x

Arkitektúr og skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.