Arkitektúr og skipulag - 01.04.1992, Qupperneq 69
Waterloo Road hverfið í Middlesborough.
La Villette eftir Bernard Tshumi.
en eina milljón mismunandi
undirhópa. Þessi geysimunur á
fjölbreytni sýnir þá margbreyti-
legu byggingu er hálfnet getur haft
samanborið við einfaldleikann í
byggingu trés. Það er þessi skortur
á margbreytileika byggingar, þetta
einkenni trjáa, sem er að
eyðileggja hugmyndir okkar um
hvað nútímaborg eigi að vera.”
Um þetta leyti kemur Post-
módernisminn (ný- rationalismi,
ný- traditionalismi) til skjalanna
með fullum krafti. Skipulag fer að
verða aftur hálfnet en mest endur-
tekning á því sem gamalt er, skref
til fortíðar en ekkert nýtt.
Ricardo Bofill og Taller de Arqui-
tectura koma fram með endur-
notkun á klassískum formum,
rýmum og torgum auk tilvitnana í
hinn franska garð. Skipulagið „Les
arcades du lac” er dæmigert fyrir
hugmyndafræði þeirra.
Krier- bræður, og þá einkum Leon,
aðhyllast í sínum skipulagshug-
myndum álíka hugmyndafræði,
þ.e. endurvakningu hinnar
evrópsku borgar. Því er vel lýst í
tillögu Leons Kriers að skóla í
sama hverfi og Bofill skipulagði.
Þar segir hann að skóli megi ekki
vera byggður sem ein bygging með
einum inngangi, heldur eins og
borg með litlum og stórum húsum,
mismunandi eftir mikilvægi þeirra.
í anda þessarar hugmyndafræði er
ráðhús í Mississauga, rétt utan við
Toronto, sem Michael Kirkland og
Edward Jones unnu í samkeppni,
en arkitektúrinn dregur sterkan
keim af verkum James Stirlings,
sem reyndar sat í dómnefnd
samkeppninnar.
I Danmörku verða viðbrögðin við
fúnksjónalismanum af meiri tih
finningasemi við dönsku sveita-
rómantíkina og hverfi með þéttri
og lágri byggð líta dagsins ljós,
unnin í anda sveitaþorpanna. Þar
ber hæst að nefna hverfið Tin-
gaarden eftir teiknistofuna
Vandkunsten.
Hugmyndafræði Rudolf Steiner-
skólanna, sem eru í anda mikillar
náttúrudýrkunar, nær einnig
töluverðri athygli, samanber
skólann í Jarna í Svíþjóð eftir
Erik Asmussen.
Skýjakljúfaborgirnar fara ekki
varhluta af þróuninni eins og sést
á teikningu sem Rem Koolhaas og
Zoe Zenghelis gerðu af því sem
arkitektar í New York væru að
reyna að gera - innbyrða alla
hugmyndafræði og stíla heims.
I samkeppni um skipulag Les-
Halles- hverfisins í París 1980
koma fram mjög ólík skipulags-
viðhorf víðsvegar að úr heim-
inum, eins og miðaldarborgin
niðurgrafna eftir Jean Pattou,
sjávarplássið eftir Charles Moore,
og Rossi með sinn ný-rationah
isma.
I fyrrnefndri grein eftir Christo-
pher Alexander tekur hann sem
dæmi um skipulag sem er hálfnet
endurskipulag Ruth Glass á
Middlesborough. Dæmið er
hverfi við Waterloo Road (sjá
meðfylgjandi teikningu). Oslitna
línan sýnir takmörk hins
svokallaða hverfis sjálfs. Grái
depillinn er unglingaklúbburinn
og litlu lokuðu hringimir eru
bústaðir meðlima hans. DepilL
inn með hringnum umhverfis er
klúbbur fullorðna fólksins, og
meðlimir hans búa innan
67