AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.1993, Blaðsíða 12
VÍFILL ODDSSON formaðurVFÍ
Það er mér sérstök ánægja að skrifa nokkrar línur
í fyrsta tölublað þessa nýja rits er ber nafnið
Arkitektúr, verktækni og skipulag. Hér hefur
tekist samkomulag milli arkitekta. verkfræðinga
og tæknifræðinga um útgáfu sameiginlegs rits
sem verður væntanlega sterkt málgagn þessara stétta. Það
hefur lengi háð þessum stéttum og ekki hvað síst verkfræð-
ingum hversu lítt þeir hafa haft sig í frammi á opinberum
vettvangi. Verkfræðingar þurfa að hafa það í huga eins og
aðrir í nútímaþjóðfélagi að þeir þurfa að markaðssetja
störf sín eins og reyndar flestir aðrir þurfa að gera er bjóða
fram þjónustu sína á almennum markaði. Verkfræðingum
hefur löngum verið ósýnt um að auglýsa sig, jafnvel ekki
þótt það nógu fínt og sumir jafnvel talið slíkt brjóta í bága
við siðareglur stéttarinnar. Þetta er auðvitað rangt. Ekkert
er sjálfsagðara en greint sé frá einstökum fyrirtækjum,
stærð þeirra og reynslu.
Nú, þegar þrengir að í atvinnumálum stéttarinnar eftir
u.þ.b. 25 ára öruggt atvinnuástand, er nauðsynlegt að
verkfræðingar sýni frumkvæði, leiti nýrra leiða í
atvinnumálum og sæki inn á ný svið sem þeir hafa ekki
sinnt áður. Aðeins með því móti getum við vænst þess að
halda fullri atvinnu næstu árin. Eftirtektarvert er hversu
fáir verkfræðingar starfa beint eða óbeint við fiskveiðar
eða fiskvinnslu sem eru undirstöðugreinar þjóðfélagsins.
Þetta ættu ungir verkfræðingar og verkfræðinemar að hafa
í huga.
Nú er nýlokið afmælisári Verkfræðingafélagsins. Margt
var gert til að minnast þess. Nær undantekningarlaust var
góð þátttaka félagsmanna í hinum einstöku ráðstefnum,
fundum, kynnisferðum og öðru sem til boða stóð á
afmælisárinu. Þá var einnig nokkuð gert til að minnast
sögu félagsins en hún er hin merkilegasta. Þannig voru til
dæmis á fundi í Verkfræðingafélaginu settar fram
grunnhuguyndir að Hitaveitu Reykjavíkur. Þar urðu einnig
til hugmyndir og útfærslur á fyrstu raforkuverum Islend-
inga. Vega- og brúargerðarmálum voru gerð góð skil,
ýmist á fundum í félaginu eða þá í einstökum greinum í
tímariti félagsins.
Nú er senn að Ijúka formannstíð minni. Það hefur bæði
kosti og galla að kjósa formann aðeins til eins árs í senn.
Reyndar situr formaður 3 ár í stjórn. Það er út af fyrir sig
nægjanlega langur tími og tryggir góða samfellu milli
stjórna hverju sinni.
Höfuðgallinn er sá að formaður situr ekki það lengi að
hann nái að kynna sig út á við sem málsvara félagsins. Nú
er ég læt af störfum vil ég þakka stjómarmönnum,
starfsfólki félagsins og öðrum félagsmönnum ánægjulegt
samstarf á sl. starfsári. Jafnframt óska ég nýrri stjóm alls
hins besta á komandi starfsári. ■
Oi'ygásbók -Trompbók
m *
m mr i
öraggiim
\exti
SPARISJÓÐUR
KÓPAVOGS
Digranesvegi 10, sími 41900
Engihjalla 8, sími 41900